Sex með réttarstöðu sakbornings í Samherjamáli – Þorsteinn Már einn þeirra

Sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn og stjórn­endur Samherja hafa verið kall­aðir til yfir­heyrslu hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og þeir fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings á meðan að á henni stóð.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi Samherja.

Hinir fimm sem kall­aðir hafa verið inn til til yfir­heyrslu og fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana eru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árnason, fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, og Jóhannes Stef­áns­son. RÚV greindi frá.

Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu um tíma en lék lyk­il­hlut­verk í því að upp­ljóstra um meintar mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um málið sem birt­ist í nóv­em­ber í fyrra. Hann stað­festi við Kjarnann í júlí að hann væri einn þeirra sem hefðu fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Til rannsóknar víða um heim

Sam­herj­a­málið komst í hámæli eftir að þáttur Kveiks sem opin­ber­aði starf­semi Samherja í Namibíu fór í loftið í nóv­em­ber á síð­asta ári en umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Al Jazeera og Wikileaks. Margra mán­aða rann­sókn­ar­vinna þeirra sýndi fram á meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namib­íu.

[links]Í þætti Kveiks gekkst Jóhannes við því að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namibíu og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a.

Hér á landi eru bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra með mál tengd starf­semi Sam­herja í Namibíu til rann­sókn­ar. Málið hefur einnig til rann­sóknar í Noregi. 

Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namibíu, Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Tamson Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, hafa ásamt fjórum öðrum setið í gæslu­varð­haldi frá því á síð­asta ári á meðan namibísk yfir­völd rann­saka mál þeirra. Þeir eru grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir kvóta.

Í bréfi sem Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóra Samherja sem var ráð­inn til félags­ins eftir að málið kom upp, birti á sjáv­ar­út­vegs­frétta­vefnum Undercurrent News 24. ágúst síð­ast­lið­inn sagði meðal ann­ars að eng­inn vafi væri að „Sam­herja hefur mis­tek­ist að verja dótt­ur­fé­lög sín gegn brotum ein­stak­linga. Okkur þykir það mjög leitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár