Björgólfur: Ekki vafi á að Samherja mistókst að verja félög sín gegn brotum einstaklinga

Annar for­stjóri Samherja birti í gær langt bréf á alþjóð­legri sjáv­ar­út­vegs­frétta­síðu. Þar segir að ein­stak­lingar hafi framið brot í dótt­ur­fé­lögum Samherja og kvartað yfir því að upp­ljóstr­ar­inn í mál­inu hafi ekki viljað ræða við rann­sak­endur fyr­ir­tæk­is­ins.

Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

„Það er eng­inn vafi að Samherja hefur mis­tek­ist að verja dótt­ur­fé­lög sín gegn brotum ein­stak­linga. Okkur þykir það mjög leitt.“ Þetta skrifar Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja, í bréfi sem birt var í gær á sjáv­ar­út­vegs­frétta­vefnum Undercurrent News, sem flutt hefur fréttir af þróun mála í rann­sóknum á meintum mútum, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Samherja i tengslum við við­skipti sam­stæð­unnar í Namibíu sem Kveikur og Stundin opin­ber­uðu í nóv­em­ber í fyrra.

Í bréf­inu segir Björgólfur, sem tók við sem for­stjóri Samherja eftir að málið kom upp þegar Þor­steinn Már Bald­vins­son ákvað að stíga tíma­bundið til hliðar eftir opin­berun áður­nefndra fjöl­miðla, að Samherji muni í haust hefja birt­ingu á efni úr rann­sókn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein á alþjóð­legri starf­semi sam­stæð­unnar. Sú var ráðin af stjórn Samherja til að rann­saka ásak­anir á hendur fyr­ir­tæk­inu eftir að þær komu fram, og hefur þegar skilað skýrslu sinni. Upp­haf­lega sögðu for­svars­menn að allar nið­ur­stöður Wikborg Rein yrðu birtar opin­ber­lega en hingað til hefur lítið sem ekk­ert verið greint frá því hvað norska lög­manns­stofan komst að.

Kvartar yfir því að uppljóstrari hafi ekki viljað hitta Wikborg Rein

Tilefni bréfs Björg­ólfs er við­tal sem Jóhannes Stef­áns­son, sem var einn for­svars­manna Samherja í Namibíu og sá sem upp­ljóstr­aði um starfs­hætt­ina þar, fór í við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv í byrjun ágúst­mán­aðar. Undercurrent news og fleiri alþjóð­legir miðlar hafa end­ur­sagt fréttir úr því við­tali.

[adspot]Í bréf­inu kvartar Björgólfur yfir því að Jóhannes hafi neitað að hitta og tala við rann­sak­endur sem Samherji hefði ráðið til að fara yfir ásak­anir hans. „Það virð­ist vera að hrein­skilni og gegn­sæi séu ein­ungis mik­il­væg þegar við­kom­andi stendur ekki frammi fyrir krefj­andi spurn­ingum frá þeim sem hafa fulla inn­sýn í stað­reyndir mála. Hið umfangs­mikla rann­sókn­ar­ferli sem pantað var af stjórn Samherja í nóv­em­ber í fyrra kom til vegna ásak­ana Jóhann­esar Stef­áns­sonar.“

Björgólfur segir að í gegnum þetta innra rann­sókn­ar­ferli hafi Samherji haldið allskyns hag­höfum upp­lýstum um stöðu mála. Þar á meðal séu bankar, við­skipta­vinir, end­ur­skoð­endur, yfir­völd og aðrir sem hafi reglu­lega fengið upp­færðar upp­lýs­ingar um hvernig rann­sóknin gengi.

Fókusinn á Jóhannesi

Björgólfur opin­berar að svo­kall­aðar ráð­gjafagreiðslur sem eru, sam­kvæmt mál­flutn­ingi Jóhann­esar og gögnum sem voru birt í tengslum við opin­berun Sam­herj­a­máls­ins mútu­greiðslur til að kom­ast yfir hrossa­makríl­kvóta í Namibíu, séu líka aðal­um­fjöll­un­ar­efni rann­sóknar Wikborg Rein á starf­semi Samherja.

Hann segir að greiðsl­urnar hafi verið rýndar af mik­illi nákvæmni. Það sem sé óum­deiland­legt sé að Jóhannes hafi stofnað til þeirra sam­banda við þá sem fengu umræddar greiðslur og hafi meira og minna séð um sam­skipti við þá þar til að hann hætti störfum hjá Samherja árið 2016.

[adspot]Vert er að taka fram að Jóhannes gekkst við því í þætt­i Kveiks í nóv­em­ber í fyrra að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og væri að aðstoð­a við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a. Hann gerði slíkt hið sama á Íslandi þar sem hann er nú með stöðu grun­aðs manns í umfangs­mik­illi efna­hags­rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara ásamt nokkrum öðrum mönnum sem hafa ekki verið nafn­greindir.

Jóhannes sagði hins vegar við Kveik hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema með aðkomu Þor­­steins Más, for­stjóra og eins aðal­eig­anda Samherja. Í gögnum máls­ins var einnig að finna úttekt sem sér­fræð­ingar á vegum KPMG í Hollandi unnu á starf­semi Samherja, fyrir fyr­ir­tækið, og komst að þeirri nið­ur­stöðu að for­stjór­inn væri nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu.

Mútu­greiðsl­urnar hefðu haldið áfram eftir að hann hætti störfum hjá Samherja og hann bæri ein­ungis ábyrgð á því að greiða 20-30 pró­sent þeirra sem látnar hefðu verið af hendi.

Sjö manns sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu vegna rann­sóknar þar­lendra yfir­valda á því, þar á meðal tveir fyrr­ver­andi ráð­herra. Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Noregi.

Hefði viljað að málið yrði innanhúsmál

Björgólfur full­yrðir í bréf­inu að Jóhannes sé sá eini sem Wikborg Rein hafi reynt að ná tali af, sem tengd­ist starf­semi Samherja í Namibíu, sem hafi neitað að tala við stof­una.

Hann telji að það hefði verið í sam­ræmi við bestu venjur, meg­in­reglur og lög í ýmsum löndum, að upp­ljóstr­ari eins og Jóhannes myndi fyrst vekja athygli á því innan sam­stæðu Samherja ef hann teldi að eitt­hvað óeðli­legt, eins og ólög­legar mútu­greiðslur, væru að eiga stað. „Einungis ef slíkar til­raunir bæru ekki árangur væri til­hlýði­legt að fara með málið í fjöl­miðla.“

Vert er að ítreka að Jóhannes hefur haldið því fram að æðsti yfir­maður Samherja, Þor­steinn Már, hafi alltaf vitað af því sem væri að eiga sér stað ásamt ýmsum öðrum hátt­settum starfs­mönnum. Auk þess hafa verið birtir tölvu­póstar og önnur gögn sem virð­ast sýna að umtals­verð vit­neskja var um við­skipta­hætti Samherja í Namibíu víða innan sam­stæð­unnar.

Markviss herferð gegn Samherja

Björgólfur segir að Jóhannes hafi þess í stað virst hafa ákveðið að taka þátt í mark­vissri her­ferð gegn Samherja. Til að und­ir­byggja þá ásökun vitnar Björgólfur í afrit af yfir­heyrslu sem Jóhannes fór í hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara á Íslandi 12. nóv­em­ber, sama dag og áður­nefndur þáttur Kveiks var sýndur.

Björgólfur segir að þar hafi Jóhannes útskýrt hvernig hann og Helgi Seljan, einn frétta­mann­anna sem vann umfjöll­un­ina um athæfi Samherja í Namibíu, hefði hent gaman af frétta­til­kynn­ingu Samherja sem send hafði verið út dag­inn fyrir þátt­inn. Björgólfur hefur eft­ir­far­andi eftir Jóhann­esi úr yfir­heyrsl­unni: „Ég held að þeir viti ekki hvað þeir eigi að gera, þeir vita ekki hvaða gögn við erum með nákvæm­lega og mér finnst, þetta er eins og þegar Helgi Seljan hringdi í mig í gær og sagði bara: þessi frétta­til­kynn­ing er eig­in­lega bara djók, vegna þess að hún er svo veik, vegna þess að við erum með svo sterk gögn.“

[links]Hægt er að lesa inni­hald umræddrar frétta­til­kynn­ingar hér en þar var meðal ann­ars kvartað yfir því að Samherji hefði ekki fengið að „setj­ast niður“ með Kveik til að fara yfir þær upp­lýs­ingar sem þátt­ur­inn byggði á. Eftir sýn­ingu þátt­ar­ins birti Kveikur sam­skipti sín við Samherja í aðdrag­anda sýn­ingu þátt­ar­ins sem sýndu að fyrsta við­tals­beiðni hafði borist tæpum mán­uði fyrr og að önnur beiðni, með ítar­legum upp­lýs­ingum um efn­is­at­riði umfjöll­un­ar­innar, hafi verið send rúmum tveimur vikum áður en að þátt­ur­inn var sýndur.

Í bréfi Björgólf er því haldið fram að slík hegðun sé í and­stöðu við hug­mynd­ina um bestu venjur alþjóð­lega þegar kemur að upp­ljóstr­unum. Hann end­ur­tekur að heppi­leg­ast og upp­byggi­leg­ast sé að taka á slíku inn­an­húss hjá fyr­ir­tækjum svo að hægt sé að breyta hinni brot­legu hegðun. Þess í stað hafi Jóhannes ákveðið að gera grín að því við frétta­mann hvernig Samherja hefði verið komið í opna skjöldu vegna máls­ins.

Hægt er að lesa bréf Björg­ólfs til Undercurrent news, sem er ritað á ensku, í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár