Samherji sendir yfirlýsingu vegna yfirvofandi umfjöllunar RÚV

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu, vegna yfir­vof­andi umfjöll­unar RÚV.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem segir að félagið hafi orðið þess áskynja að fyrr­ver­andi stjórn­andi félags­ins í Namibíu, Jóhannes Stef­áns­son, hafi farið til fjöl­miðla og „lagt fram alvar­legar ásk­anir á hendur núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­endum Samherja“. „Við tökum þessu mjög alvar­lega og höfum ráðið alþjóð­legu lög­manns­stof­una Wikborg Rein í Noregi til að fram­kvæma ítar­lega rann­sókn á starf­sem­inni í Afríku. Þar til nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar liggja fyrir munum við ekki tjá okkur um ein­stakar ásak­anir,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja.

Jafn­framt segir í yfir­lýs­ing­unni, sem birt hefur verið á vef Samherja, að Samherji hafi vilja „setj­ast niður“ með RÚV til að fara yfir upp­lýs­ingar, en því hafi verið hafnað.

Á Facebook síðu RÚV hefur verið birt stutt mynd­band, þar sem fram kemur að Kveikur, frétta­skýr­inga­þáttur, sé að fara fjalla um mál­efni íslensks stór­fyr­ir­tækis í þætt­inum á morgun.

„Við höfum sér­stak­lega óskað eftir að fá að setj­ast niður með Rík­is­út­varp­inu og fara yfir upp­lýs­ingar sem við teljum skipta máli í tengslum við fyr­ir­hug­aða umfjöllun. Þeirri beiðni hefur jafn­harðan verið hafnað og hefur Rík­is­út­varpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan mynda­vélar. Teljum við þær upp­lýs­ingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri til­lits­laust vegna hags­muna þeirra ein­stak­linga sem málið varðar.

„Öll starf­semi Samherja og tengdra félaga var undir ítar­legri rann­sókn árum saman án þess að nokkuð athuga­vert hafi fund­ist. Var allt okkar bók­hald, tölvu­póstar og öll önnur gögn skoðuð ítar­lega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og vill­andi ásök­unum frá fyrr­ver­andi starfs­manni sem enn á ný eru mat­reiddar af sömu aðilum og fjöl­miðlum og í Seðla­banka­mál­inu,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Það sem við teljum rétt að koma á fram­færi á þessum tíma­punkti er að þegar við urðum þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namibíu sendum við fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann hjá sér­stökum sak­sókn­ara til Namibíu. Eftir nokk­urra mán­aða vinnu hans var nið­ur­staðan að segja umræddum starfs­manni upp störfum án tafar vegna óásætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­unar. Mikill tími hefur farið í að ná tökum á rekstr­inum en starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi hefur sam­hliða, beint og ásamt sam­starfs­mönnum sínum, kraf­ist hárra fjár­hæða frá Samherja.

Samherji hefur lagt sig fram um að vinna í sam­ræmi við lög og reglur sem gilda í þeim löndum sem félagið starfar í. Höfum við í því sam­hengi unnið náið með stjórn­völdum í Namibíu, bæði með skatt­yf­ir­völdum og Seðla­banka Namibíu. Má þar nefna að frá síð­ari hluta árs 2016 hefur öllum virð­is­auka­skatt­skyldum fyr­ir­tækjum í Namibíu verið skylt að fara í gegnum ítar­lega skoðun hjá skatt­yf­ir­völdum á tveggja mán­aða fresti þar sem allir reikn­ingar eru yfir­farnir. Á það við um okkar félög eins og öll önnur fyr­ir­tæki í Namibíu.

Frá því að við hófum starf­semi í Namibíu hefur legið fyrir að um tíma­bund­inn rekstur sé að ræða. Gerðir voru samn­ingar við ýmsa kvóta­hafa, allt frá samn­ingum til örfárra mán­aða til fimm ára en umræddir samn­ingar eru nú allir útrunnir. Þá hafa namibísk stjórn­völd unnið að breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu á und­an­förnum árum með það fyrir augum að draga úr notkun frysti­tog­ara og auka vægi land­vinnslu ásamt því að leggja aukna áherslu á að eign­ar­hald og stjórnun sé í höndum inn­lendra aðila. Í því skyni hefur eitt skip þegar verið selt og við­ræður staðið yfir frá byrjun þessa árs um sölu á öðrum rekstri Samherja í Namibíu til þar­lendra aðila,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár