Kveikur sendir frá sér yfirlýsingu

Rit­stjóri Kveiks segir að vinnu­brögð RÚV og sá tími sem Samherja gafst til and­svara sé fylli­lega í sam­ræmi við lög­bundar skyldur sam­kvæmt lögum um Rík­is­út­varpið og reglum sem hvíla á blaða- og frétta­mönnum.

Kveikur
Kveikur Mynd: Skjáskot/RÚV

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna sam­skipta við Samherja í aðdrag­anda umfjöll­unar sem birt­ist í gær­kvöldi um við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Undir hana skrifar Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri RÚV og rit­stjóri Kveiks.

Í henni segir að vegna full­yrð­inga for­stjóra Samherja hf. í fjöl­miðlum um að RÚV hafi nálg­ast fyr­ir­tækið á fölskum for­sendum, hafnað fund­ar­beiðni og ekki sinnt hlut­leys­is­skyldu sinni við vinnslu á frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í gær­kvöld telji RÚV ástæðu til að birta öll sam­skipti frétta­manna og frétta­stjóra RÚV við Samherja síð­ustu vikur.

Sam­skiptin má finna á vef Kveiks.

Fyrsta við­tals­beiðni frétta­manna Kveiks hafi verið send for­stjóra Samherja þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn með þeim orðum að til stæði „að fjalla um þró­un­ar­að­stoð Íslend­inga í sjáv­ar­út­vegi og aukin umsvif íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja erlendis.“ Þeirri beiðni hafi verið hafnað sam­dæg­urs með þeim orðum að for­stjóri Samherja sæi ekki ástæðu til að fara í slíkt við­tal.

Önnur við­tals­beiðni, með ítar­legum útskýr­ingum um efn­is­at­riði og spurn­ingum til Samherja, hafi svo verið send 25. októ­ber síð­ast­lið­inn en þar segi meðal ann­ars: „Meðal gagna sem við byggjum umfjöll­un­ina á eru tölvu­póstar, myndir, reikn­ingar og greiðslu­kvitt­anir, sem sýna fram á að félög í eigu Samherja hafi greitt aðilum tengdum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu umtals­verðar fjár­hæðir fyrir aðgengi að fisk­veiði­kvóta í land­inu.“

Gefinn hafi verið rúmur tími til and­svara í sam­ræmi við vinnu­reglur frétta­stofu RÚV en ekk­ert svar hafi borist frá Samherja.

RÚV hafi svo borist form­legt svar frá Samherja 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem fyr­ir­tækið hafi sagst taka fyr­ir­spurn Kveiks alvar­lega og boðið frétta­stjóra RÚV, sem ábyrgð­ar­manni Kveiks, til fundar í Lundúnum til að ræða málið og fá bak­grunns­upp­lýs­ingar sem fyr­ir­tækið teldi mik­il­vægar.

Í svari frétta­stjóra til Samherja 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafi við­tals­beiðni Kveiks verið ítrekuð, fyr­ir­tæk­inu boðið að svara spurn­ingum skrif­lega sem og að koma gögnum til þátt­ar­ins. Fund­ar­boði Samherja til frétta­stjóra í Lundúnum hafi hins vegar verið hafnað.

Í svari RÚV 9. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafi enn verið ítrekuð við­tals­beiðni Kveiks til Samherja, boð um að veita skrif­leg svör eða að koma gögnum á fram­færi. Þar hafi einnig sagt: „...frá­leitt að halda því fram að fund­ar­boð til London á bak við luktar dyr telj­ist eðli­legt eða gegn­sætt ferli sem íslenskur fjöl­mið­ill geti fall­ist á að taka þátt í.“

Samherji hafi boð­ist í kjöl­farið til að hitta full­trúa RÚV á fundi í Reykja­vík og hafi sagt í svari sínu 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafa við­kvæmar upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um mögu­lega ólög­mæta hátt­semi fyrr­ver­andi starfs­manns fyr­ir­tæk­is­ins. Þessum upp­lýs­ingum sé hins vegar ekki hægt að deila með almenn­ingi að svo stöddu.

Í svari RÚV 11. nóv­em­ber segir: „Frétta­menn Kveiks eru, sem fyrr, reiðu­búnir að hitta for­stjóra Samherja á fundi til að fá svör við spurn­ingum, gögn sem tengj­ast mál­inu eða yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu svo koma megi and­svari Samherja á fram­færi í fyr­ir­hug­aðri umfjöllun. Fund­ur­inn verður hins vegar að vera opinn og gegn­sær og ekki háður skil­yrðum Samherja.“

Bréf og tölvu­póstar stað­festi að Kveikur hafi ítrekað reynt að leita svara og við­bragða hjá Samherja. Hann hafi veitt ítar­legar upp­lýs­ingar um umfjöll­un­ar­efnið og sett fram efn­is­legar spurn­ingar í við­tals­beiðni til fyr­ir­tæk­is­ins 25. októ­ber síð­ast­lið­inn. Vinnu­brögð RÚV og sá tími sem fyr­ir­tæk­inu gafst til and­svara sé fylli­lega í sam­ræmi við lög­bundar skyldur sam­kvæmt lögum um Rík­is­út­varpið og reglum sem hvíla á blaða- og frétta­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kveikur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár