Verkalýðsforystunni ekki skemmt

Ekki stendur á við­brögðum í sam­fé­lag­inu eftir afhjúp­anir frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Kveiks og Stund­ar­innar í gær­kvöldi. Forysta stærstu verka­lýðs­fé­lag­anna lætur ekki sitt eftir liggja í umræð­unni.

For­svars­menn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa tjáð sig margir hverjir um umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í gær­kvöldi um meintar mútu­greiðslur Sam­herj­a­manna í Namibíu. Mikil við­brögð hafa verið á sam­fé­lags- og frétta­miðlum vegna máls­ins.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, tjáir sig um umfjöll­un­ina á Facebook-síðu sinni í morgun en þar segir hún að eitt af aðals­merkjum nýfrjáls­hyggj­unnar, það sem hún kallar mann­kyns­sögu­legu lygi, sé að tryggja að kap­ít­alistar greiði ekki eðli­lega til sam­fé­lags­ins í gegnum skatt­kerfið.

„Með því er auð­vitað verið að tryggja að þeir geti sankað sífellt meira og meira af gæð­unum til sín og með því auð­vitað meira og meira af völd­unum, en þetta gerir það líka að verkum að þeir geta orðið eins og aðals­menn fyrri alda; þeir fá enda­laus tæki­færi til að láta eitt­hvað rakna til góð­gerð­ar­starf­semi og mál­efna sem að þeim eru hug­leik­inn eða mála­flokka sem að þeir vita að skipta fólk máli í sinni dag­legu til­veru, eins og það að geta stundað skemmti­lega úti­vist, vegna þess að fjár­magnið sem hið opin­bera hefur yfir að ráða dugar ekki til að sinna þörfum fólks,“ skrifar hún.

[links]Sólveig Anna segir þetta vera svo­kallað „win-win fyr­ir­bæri“. „Þor­steinn þessi græddi per­sónu­lega 5,4 millj­arða í fyrra, ríkir sem kóngur langefst í stig­veld­inu, með sinn ráð­herra við völd í mála­flokknum sem skiptir öllu máli, og fjár­mála­ráð­herra sem er ekk­ert ef ekki hags­muna-gæslu­maður íslenskrar auð­stéttar og getur, líkt og kóngur, dólað út milljón hér og milljón þar, svo að fólk fyllist lotn­ingu yfir gjaf­mild­inni og ríku-manna-göf­ug­lynd­inu.“

Það sé ekk­ert smá­vegis kerfi sem fólk lifi í.

„Höguðu sér eins og svívirðilegustu nýlenduherrar“

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir að myndin sem Kveikur og Stundin teikni upp sé af heims­valdasinn­uðum, gráð­ugum arð­ræn­ingjum sem svíf­ist einskis.

„Körlum sem þykj­ast sam­fé­lags­lega ábyrgir hér á landi en gæti ekki verið meira sama um aðstæður þjóðar suður í Afríku. Körlum sem komu í kjöl­far vel heppn­aðar þró­un­ar­sam­vinnu og ryksug­uðu upp auð­lindir í eigin þágu, hög­uðu sér eins og sví­virði­leg­ustu nýlendu­herrar. Þró­un­ar­sam­vinn­unni var hætt vegna hruns­ins sem varð einmitt vegna svona hegð­unar. Ógeðs­legt!“ skrifar hún.

Hver eru næstu skref þjóðarinnar?

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr á Facebook hver næstu skref þjóðar sem fékk inn­sýn í starf­semi og starfs­hætti stór­fyr­ir­tækis sem hagn­ast hafi ævin­týra­lega á sjáv­ar­auð­lind íslensku þjóð­ar­innar verði.

Gjörsamlega lamaður eftir umfjöllunina

„Ég held að það sama gildi um mig og alla þá sem horfðu á Kveik­þátt­inn að fólk sé gjör­sam­lega lamað eftir þessa umfjöllun.“ Þetta segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi.

Hann telur það vera gjör­sam­lega ólíð­andi að aðilar eins og Samherji „sem fá úthlutað miklum afla­heim­ildum úr sam­eig­in­legri fisk­veiði­auð­lind okkar Íslend­inga, skuli voga sér að setja og soga landið og þjóð­ina inn í þessa gjör­spilltu og ógeð­felldu aðferðir við að kom­ast yfir afla­heim­ildir og undan skatt­greiðslum til þess­ara fátæku þjóðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kveikur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár