Jóhannes búinn að ræða við héraðssaksóknara

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara mun taka efni Kveiks-þáttar kvölds­ins, um meintar mútu­greiðslur Samherja í Namibíu, til skoð­unar. Allt að fimm ára fang­elsi liggur við því að múta full­trúum erlends ríkis.

Jóhannes Stefánsson uppljóstrari.
Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari. Mynd: Skjáskot/RÚV

„Við munum taka efni þessa þáttar til skoð­unar og metum það sem þarna kemur fram ásamt öðrum gögnum sem emb­ættið hefur aflað sér til þess að taka afstöðu til þess sem verður gert í fram­hald­inu.“

[links]Þetta segir Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari í sam­tali við Kjarnann aðspurður um hvort að emb­ættið sé með meintar mút­ur­greiðslur og ýmis önnur meint lög­brot, eins pen­inga­þvætti og skatt­svik, Samherja í Namibíu og Noregi til skoð­unar.

Heim­ildir Kjarnans herma að Jóhannes Stef­áns­son, sem var verk­efna­stjóri Samherja í Namibíu fram til árs­ins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvölds­ins, hafi rætt við starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara í dag.

Í þætti Kveiks kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inni­heldur meðal ann­ars tvo ráð­herra í Namib­íu, séu mútu­greiðslur og að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

[adspot]Sam­kvæmt íslenskum lögum varðar það allt að fimm ára fang­elsi ef íslenskur rík­is­borg­ari mútar eða gerir til­raunir til að múta full­trúa erlends ríkis eða ein­hverjum sem seg­ist geta haft áhrif á slíkan full­trú­a.

Jóhannes gegst við því í þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namibíu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namib­íu, hefði fengið laga­lega stöðu upp­ljóstr­ara og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a.

Jóhannes var sér­stak­lega nefndur á nafn í yfir­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í gær vegna yfir­vof­andi umfjöll­unar um starfs­hætti fyr­ir­tæk­is­ins og sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Sam­herja árið 2016 vegna „óá­sætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­un­ar“. Það hafi gerst í kjöl­far þess að Sam­herji hefði orðið „þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namib­íu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann til lands­ins til að rann­saka mál­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár