Samherji fjallaði sérstaklega um spill­ingu og mútur í árs­reikn­ingi

Í nýjasta árs­reikn­ingi Samherja segir að fyr­ir­tækið ætli að setja sér skrif­leg við­mið um sið­ferði, spill­ingu, mann­rétt­indi og mútur á árinu 2019. Nú er Samherji ásak­aður um spill­ingu og mútur í Namibíu.

Í árs­reikn­ingnum þeirra tveggja félaga sem mynda Samherja-sam­stæð­una á Íslandi, Samherja hf. og Samherja Holding ehf., fyrir árið 2018 er fjallað um það sem er kallað „ófjár­hags­leg upp­lýs­inga­gjöf“.

[links]Þar segir meðal ann­ars að Sam­herj­a­sam­stæðan virði „al­menn mann­rétt­indi, rétt allra til félaga­frelsis og kjara­samn­inga. Áhersla er lögð á að verk­takar og und­ir­verk­takar fari eftir gild­andi lögum er varðar alla sína starfs­menn, hvort sem það eru þeirra laun­þegar eða eigin und­ir­verk­tak­ar.“ Sam­stæðan hafi þó ekki sett sér skrif­leg við­mið um sið­ferði, spill­ingu, mann­rétt­indi eða mútur en að vinna við það hafi verið í gangi og ljúki vænt­an­lega á árinu 2019.

Í Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í kvöld kom fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna frá Samherja til hóps sem inni­heldur meðal ann­ars tvo ráð­herra í Namibíu, séu mútu­greiðslur og að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku­land­inu séu skýr dæmi um spill­ingu.

[adspot]Með fram­ferði sínu í við­skiptum í Namibíu er Samherji grun­aður um að hafa kom­ist yfir kvóta með áður­nefndum mútu­greiðslum og að hafa komið ávinn­ingi af veiðum undan svo að fullir skattar þyrfti ekki að greið­ast til nær­sam­fé­lags­ins í Namibíu.

Í árs­reikn­ing­unum er auk þess fjallað um að félög innan sam­stæð­unnar hafi und­an­farið unnið að marg­vís­legum stefnum og áætl­unum sem eigi það sam­merkt að styðja beint eða óbeint hver við aðra. „ Má þar nefna inn­leið­ingu á við­bragðs­á­ætlun gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legu og kyn­bundnu áreiti og ofbeldi, mann­rétt­inda­stefnu, stefnu í vinnu­vernd­ar- og örygg­is­mál­um, jafn­rétt­is­á­ætl­un, per­sónu­vernd­ar­stefnu og fleira. Vinna við fram­an­greindar stefnur og áætl­anir er vel á veg komin og er stefnt að því að þær verði inn­leiddar á árinu 2019.“

Þar kemur fram að vinna standi yfir við gerð mann­rétt­inda­stefnu Sam­herja og Sam­herja Holding sem miði að því að tryggja að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóti mann­rétt­inda án til­lits til kyn­ferð­is, kyn­hneigð­ar, trú­ar­bragða, skoð­ana, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­þátt­ar, lit­ar­hátt­ar, efna­hags, ætt­ernis og stöðu að öðru leyti. „Engum skal haldið í nauð­ung­ar­vinnu eða barna­þrælkun og hafnar Sam­herji hvers kyns þræl­dómi, nauð­ung­ar­vinnu og man­sali.“

Sam­herj­a­sam­stæðan seg­ist telja að sam­fé­lags­leg ábyrgð sé ekki ein­ungis ábyrgð heldur að í henni felist einnig tæki­færi til að bæta vel­ferð nær­sam­fé­lags­ins. „Sam­stæðan leggur sitt af mörkum til að efla kom­andi kyn­slóðir og stuðla að fram­förum í sam­fé­lag­inu og hefur Sam­herji veitt styrki til ýmissa sam­fé­lags­verk­efna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár