Samherji hefur hagnast um 112 milljarða á átta árum

Samherji hefur hagn­ast gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Eigið fé sam­stæð­unnar var 111 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Fjár­fest­ingar Samherja eru mun víðar en bara í sjáv­ar­út­vegi.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: www.svn.is

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn er þekkt­astur fyrir umfang sitt í þeim geira, enda stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Samherja-sam­stæðan á alls 7,1 pró­sent af úthlut­uðum kvóta hér­lendis beint. Síld­ar­vinnslan heldur svo á 5,3 pró­sent allra afla­heim­ilda, en hún er í 44,6 pró­sent eigu Sam­herja auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

[links]Berg­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Þá er ótalið Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem heldur á 1,3 pró­sent kvót­ans, og er að öllu leyti í eigu Sam­herja. Sam­an­lagt er afla­hlut­deild þess­ara félaga 16 pró­sent. Auk þess á Samherji vit­an­lega umfangs­mikla sjáv­ar­út­vegs­starf­semi í Evrópu og Afríku.

Samherja-sam­stæðan ,sem sam­anstendur af tveimur félögum, átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok síð­asta árs. Hagn­aður Sam­herja vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­örðum króna. Hagn­aður Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hefur þar með numið yfir 112 millj­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka síð­asta árs. Hagn­að­ur­inn dróst lít­il­lega saman milli áranna 2017 og 2018, en hann var 14,4 millj­arðar króna á fyrra árin­u.

Í Kveiks­þætti sem sýndur var á RÚV í kvöld kom fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna frá Samherja til hóps sem inni­heldur meðal ann­ars tvo ráð­herra í Namibíu, séu mútu­greiðslur og að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku­land­inu séu skýr dæmi um spill­ingu.

[adspot]Með fram­ferði sínu í við­skiptum í Namibíu er Samherji grun­aður um að hafa kom­ist yfir kvóta með áður­nefndum mútu­greiðslum og að hafa komið ávinn­ingi af veiðum undan svo að fullir skattar þyrfti ekki að greið­ast til nær­sam­fé­lags­ins í Namibíu.

Eiga í óskyldum greinum

Sam­herji hf. keypti stóran hlut í Olís fyrir nokkrum árum. Það félag rann síðan saman við smá­söluris­ann Haga og í kjöl­farið eign­að­ist Samherji alls 9,26 pró­sent hlut í Högum. Í síð­ustu viku var greint frá því að Samherji hefði selt helm­ing hluta­bréfa sinna í Högum og að eftir við­skiptin standi eign­ar­hlutur sam­stæð­unnar í 4,22 pró­sentum.

Sam­herji Holding er líka stærsti ein­staki eig­andi hluta­bréfa í Eim­­skip, með 27,1 pró­­sent eign­­ar­hlut. Bald­vin Þor­­­steins­­­son, fram­­kvæmda­­stjóri við­­skipta­­þró­unar hjá sam­stæð­unni, er stjórn­­­ar­­for­­maður Eim­­skips og í jan­úar í ár var Vil­helm Már Þor­­steins­­son, frændi hans, ráð­inn sem for­­stjóri skipa­­fé­lags­ins.

Helstu eig­endur og stjórn­endur Sam­herja eru frænd­­­­urn­ir, for­­­­stjór­inn Þor­­­­steinn Már Bald­vins­­­­son og útgerð­­­­ar­­­­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­­­­son. Þeir eiga sam­tals 65,4 pró­sent í sam­stæð­unni. Helga S. Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más, á 21,3 pró­sent. Til við­bótar á félagið Bliki ehf. 11,7 pró­sent hlut í Sam­herj­a­sam­stæð­unni. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­um. Þor­steinn Már er helsti skráði stjórn­andi þess félags.

Auk þess er SVN eigna­fé­lag, félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, lang stærsti einka­fjár­festir­inn í Sjóvá með 13,97 pró­sent hlut. Samherji á 44,6 pró­sent í eigu Samherja auk þess sem Kald­bak­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Þá er Samherji líka stór eig­andi í Jarð­bor­unum í gegnum Kaldbak ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár