Nýi Seðlabankastormurinn hófst eftir að Kveikur nálgaðist Þorstein Má

Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur frá því í lok síð­asta mán­aðar ítrekað ásakað RÚV og Helga Seljan um hafa verið ger­endur í rann­sókn á Samherja sem hófst 2012. Þegar ásak­an­irnar hófust hafði Þor­steini þegar verið greint frá umfjöll­un­ar­efni Kveiks.

Samherji, og sér­stak­lega for­stjór­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son, hafa beint sjónum sínum mjög hart að RÚV síð­ustu vikur og ásakað rík­is­fjöl­mið­il­inn um að vera ger­anda í hús­leit sem átti sér stað fyrir rúmum sjö árum. Það eru nýmæli, en áður hafði reiði Samherja vegna rann­sóknar Seðla­banka Íslands á meintum brotum fyr­ir­tæk­is­ins á gjald­eyr­is­lögum beinst gegn bank­anum, Má Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, og Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

[links]Í umfjöllun Kveiks um meintar mútu­greiðslur og skatta­snið­göngu Samherja í Namibíu sem sýndur var á RÚV í gær­kvöldi kom fram að frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn leit­aði til Þor­steins Más um við­tal vegna umfjöll­unar þátt­ar­ins um meintar mútu­greiðslur og skatta­snið­göngu Samherja í Namibíu 15. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hann hafn­aði þeirri beiðni en fékk svo skrif­lega beiðni tíu dögum síðar, 25. októ­ber, þar sem Kveikur greindi honum frá því í smá­at­riðum hvað var verið að fjalla um.

27. októ­ber var greint frá því í fréttum Stöðvar 2 að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði vísað máli vegna ætl­aðs upp­lýs­inga­leka frá Seðla­banka Íslands til RÚV í aðdrag­anda hús­leitar hjá Samherja árið 2012 til lög­reglu.

Sú umfjöllun, þar sem Þor­steinn Már var til við­tals og bar þungar sakir á RÚV og einn frétta­manna Kveiks, Helga Seljan, hófst því tveimur dögum eftir bréf Kveiks um umfjöll­un­ar­efni þáttar kvölds­ins var sent til Samherja.

Upplýstur 9. september

Forsaga hins ætl­aða upp­lýs­inga­leka var sú að þáver­andi seðla­banka­stjóri, Már Guð­munds­son, upp­lýsti Katrínu með bréfi sent 18. ágúst 2019 um að starfs­maður Seðla­banka Íslands hefði átt í tölvu­póst­sam­skiptum við starfs­mann RÚV í aðdrag­anda hús­leit­ar­innar í mars 2012. Í þeim sam­skiptum virt­ist sem frétta­mað­ur­inn hefði upp­lýs­ingar um hús­leit­ina áður en hún fór fram en að engar trún­að­ar­upp­lýs­ingar hefðu verið sendar frétta­mann­inum.

[adspot]Ásgeir Jónsson tók við sem seðla­banka­stjóri tveimur dögum eftir að bréfið var sent og ákvað að leggja það fram sem hluta af máls­skjölum vegna skaða­bóta­máls sem Samherji hefur höfðað á hendur Seðla­banka Íslands. Það mál var þing­fest 9. sept­em­ber. Í kjöl­far þess hringdi Ásgeir í Þorstein Má og tjáði honum að hann geti gengið að þessum upp­lýs­ingum sem hluta af máls­skjöl­unum. Í mál­inu krefur Samherji Seðla­banka Íslands um 322 millj­ónir króna í bætur vegna aðgerða gegn fyr­ir­tæk­inu.

Rúmum sex vikum síðar rataði bréfið í fréttir.

RÚV og Helgi sagðir gerendur

Í fréttum Stöðvar 2 þetta kvöld sagði Þor­steinn Már: „Helgi Seljan sagði það 20. jan­úar [2012] austur á fjörðum að hann ætl­aði að taka mig. Ég fékk hring­ingu um það 22. jan­úar að hann hafi sagst ætla að taka mig fyrir fisk­verð. Þannig að Helgi Seljan og RÚV eru ger­endur í þessu ásamt Seðla­bank­anum og má segja þaul­skipu­lögð árás á Samherja og starfs­fólk Samherja.“

Síðar sagði hann: „Eins og að þessu var staðið að hálfu Seðla­bank­ans og RÚV og Helga Seljan að þá var fólk og fyr­ir­tæki fyrir miklu tjóni.“

Helgi Seljan er einn þeirra sem vann umfjöllun Kveiks sem sýnd var í gær­kvöldi. Þetta var í fyrsta sinn sem Þor­steinn Már ásakar hann og RÚV opin­ber­lega um að vera ger­endur í mál­inu. Þor­steinn Már hafði áður, í sept­em­ber 2015, farið í við­tal við Helga Seljan í Kast­ljósi til að ræða málið.

Eftir fréttir Stöðvar 2, að kvöld 27. októ­ber, var Þor­steinn til við­tals hjá mbl.is. Þar sagði hann m.a.: „Fyr­ir mér stað­fest­ir þetta það sem var í raun aug­ljóst, að RÚV og Seðla­banki Íslands skipu­lögðu það sam­an hvernig átti að standa að þess­ari hús­leit. Að sjálf­sögðu er manni aðeins brugðið þegar þetta kem­ur upp eft­ir öll þessi ár.“

Þann 28. októ­ber 2019 mætti Þor­steinn Már í við­tal við Bítið á Bylgj­unni. Þar end­ur­tók hann að málið hefði haf­ist að und­ir­lagi Helga Seljan á þorra­blóti 20. jan­úar 2012, en önnur útgáfa af þeirri sögu hafði áður verið sett fram í Bókinni „Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits“ eftir sagn­fræð­ing­inn Björn Jón Bragason sem kom út fyrir jólin 2016. Þá sner­ist hún hins vegar um að fyrr­ver­andi sjó­maður Síld­ar­vinnsl­unnar hafi sagt Helga frá vanga­veltum um að Samherji væri að selja karfa til dótt­ur­fé­laga sinna erlendis á und­ir­verði á umræddu þorra­blóti, ekki að „taka“ ætti Þorstein Má. Samkvæmt frétt í Frétta­tím­anum frá því í des­em­ber 2016 keypti Samherji heilt upp­lag af umræddri bók og gaf starfs­mönnum sínum í jóla­gjöf.

[adspot]Í við­tal­inu við Bítið sagði hann meðal ann­ars að hús­leitin hjá Samherja 2012 hafi verið „rudda­leg­asta hús­leit sem hefur verið fram­kvæmd á Íslandi og hún var gerð í sam­starfi við RÚV, þeir voru mættir á undan og greini­lega allt þaul­skipu­lagt, það hefur aldrei farið á milli mála.“

Þor­steinn sagði einnig að RÚV hefði farið fram með offorsi gegn Samherja og að RÚV væri ekki minni ger­andi í mál­inu en Seðla­banki Íslands. „Er eðli­legt að rík­is­fjöl­mið­ill sé að reyna að búa til glæp með með stofnun sem á að vera mesta virð­ing­ar­stofnun lands­ins?“ Þor­steinn sagði hins vegar að Samherji myndi ekki stefna RÚV vegna máls­ins.

Ásakaði RÚV um að nálgast sig á „fölskum forsendum“

Í yfir­lýs­ingu Samherja frá því í fyrra­dag er sleg­inn sam­bæri­legur tónn. Þar er haft eftir Þor­steini Má að öll starf­semi Samherja og tengdra félaga hafi verið undir ítar­legri rann­sókn árum saman án þess að nokkuð athuga­vert hafi fund­ist. „Var allt okkar bók­hald, tölvu­póstar og öll önnur gögn skoðuð ítar­lega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og vill­andi ásök­unum frá fyrr­ver­andi starfs­manni sem enn á ný eru mat­reiddar af sömu aðilum og fjöl­miðlum og í Seðla­banka­mál­inu.“

Þar sagði enn fremur að Samherji hefði sér­stak­lega óskað eftir að fá að setj­ast niður með RÚV og fara yfir upp­lýs­ingar sem fyr­ir­tækið taldi skipta máli í tengslum við fyr­ir­hug­aða umfjöllun. „Þeirri beiðni hefur jafn­harðan verið hafnað og hefur Rík­is­út­varpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan mynda­vélar. Teljum við þær upp­lýs­ingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri til­lits­laust vegna hags­muna þeirra ein­stak­linga sem málið varðar.“

Í Frétta­blað­inu í gær­morgun var svo haft eftir Þor­steini Má að RÚV hefði reynt að nálg­ast Samherja „á fölskum for­sendum“ og að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins teldu að RÚV væri ekki að sinna hlut­leys­is­skyldu sinni.

Í engu ofan­greindra við­tala, þar sem Þor­steinn Már ræddi ítrekað um RÚV, nafn­greindan frétta­mann og meinta aðför þeirra gegn sér, minnt­ist hann á að yfir­vof­andi væri ítar­leg umfjöllun um meintar mútu­greiðslur og skatta­snið­göngu í sama miðli né að búið væri að upp­lýsa hann um efn­is­at­riði þeirrar umfjöll­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár