Segir Kristján Þór Júlíusson hafa hitt „hákarlana“ frá Namibíu

Í Stund­inni segir að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafi kynnt Kristján Þór Júl­í­us­son sem „sinn mann“ í rík­is­stjórn­inni.

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri hjá Samherja í Afríku, segir að Kristján Þór Júlísson, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Samherja, hafi fundað með þremur mönnum frá Namibíu sem unnu að því að útvega Samherja mak­ríl­kvóta gegn mútu­greiðslum.

Þetta kemur fram í Stund­inni, en haft er eftir Jóhann­esi að Þor­steinn Már, for­stjóri Samherji, hefði kynnt Kristján Þór sem „sinn mann“ hjá stjórn­völdum á fundi árið 2014.

Jóhannes segir jafn­framt að Kristján Þór hafi ekki stoppað lengi á fund­inum, aðeins um 10 mín­útur en erindi hans á fund­inn hafi verið óljóst. Kristján Þór neitar því ekki að hafa hitt menn­ina en seg­ist ekki hafa verið form­legur þátt­tak­andi á fund­inum. Hann seg­ist aldrei hafa farið á skrif­stofu Samherja eftir að hann varð sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir enn fremur að norski bank­inn DNB NOR, sem norska ríkið á þriðj­ungs­hlut í, hafi látið loka banka­reikn­ingum félags­ins Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall eyjum í fyrra, vegna hættu á pen­inga­þvætti. Samherji not­aði Cape Cod til að greiða laun sjó­manna sinna í Namibíu, að því er fram kemur í Stund­inni.

Eins og fram hefur komið, þá birti Wikileaks í gær 30 þús­und skjöl um Samherja og meðal ann­ars ítar­leg gögnum um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og mútu­greiðslur til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins og um fyrr­nefndra þriggja manna sem vinna náið með honum. Greint var fyrst frá gögn­unum og mál­inu í heild, í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveiki á RÚV í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár