Jón Ásgeir segir Guðlaug Þór hafa tekið á sig sök í styrkjamálinu

Stjórn­endur FL Group tóku ákvörðun um að veita háan styrk til Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok árs 2006 og kvittun fyrir greiðsl­unni var gefin út eftir á. Þetta segir Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Hann telur Geir H. Haarde hafa staðið á bak­við málið.

Í vænt­an­legri bók Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, sem Einar Kárason skrifar og ber heitið „Málsvörn“, er fjallað um hið svo­kall­aða styrkja­mál. Í því fólst að FL Group, þá umsvifa­mikið fjár­fest­inga­fé­lag, og Lands­banki Íslands, greiddu upp skuldir Sjálf­stæð­is­flokks­ins með tveimur fram­lögum upp á 56 millj­ónir króna, þar af komu 30 millj­ónir króna frá FL Group. Umræddir styrkir voru veittir síðla árs 2006, nánar til­tekið 29. des­em­ber það ár. Þremur dögum eftir að styrkirnir voru veittir, 1. jan­úar 2007, tóku gildi ný lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka sem gerðu það að verkum að flokkum var meinað að taka við styrkjum yfir 300 þús­und krónum frá ein­stökum lög­að­ilum.

Í fréttum RÚV, þar sem fjallað var um bók Jóns Ásgeirs og við­tal hans við Kveik sem sýnt verður í kvöld, sagð­ist Jón Ásgeir hafa orðið „fokvondur“ þegar hann heyrði af því eft­irá að félagið hefði ásamt Lands­banka Íslands greitt upp skuldir Sjálf­stæð­is­flokks­ins með þessum hætti. Hann hafi fyrst frétt af mál­inu þegar end­ur­skoð­endur spurð­ust fyrir um það hjá stjórn FL Group mörgum mán­uðum eftir að styrkirnir voru veittir.

Jón Ásgeir segir við RÚV að hann hafi ekki tekið ákvörðun um að veita styrk­inn frá FL Group. Aðspurður hvort það hafi verið Hannes Smárason, þáver­andi for­stjóri FL Group og einn stærsti hlut­hafi félags­ins á þeim tíma, svar­aði Jón Ásgeir því til að það hafi vænt­an­lega verið stjórn­endur félags­ins sem hafi tekið hafi ákvörð­un­ina.

Í frétt RÚV kom fram að í bók­inni um Jón Ásgeir segi að Hannes hafi ekki fengið kvitt­anir fyrir greiðsl­unni til Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar hún var fram­kvæmd. Slíkri hafi verið skotið inn í bók­hald FL Group eftir á að næt­ur­lagi, og með því hafi verið að brjóta bók­halds­lög.

„Samið við Geir frekar en Gulla“

Styrkja­málið vakti mikla hneykslun þegar það komst upp í apríl 2009 og Geir H. Haarde, sem þá hafði látið af störfum sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist í til­kynn­ingu bera fulla ábyrgð á við­töku styrkj­anna. Bjarni Bene­dikts­son, sem þá var nýtek­inn við sem for­maður flokks­ins, sagði við­töku styrkj­anna „stang­ast gróf­lega á við þau gildi sem ég vil að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn starfi eftir.“

Andri Ótt­ars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hætti störfum nokkrum dögum eftir að málið kom upp. Í yfir­lýs­ingu frá Andra vegna þessa kom fram að hann hafi ekki átt frum­kvæði að því að haft var sam­band við FL Group eða Lands­bank­ann um styrk­veit­ingu og að hann hafi ekki tekið ákvörðun um að veita styrkj­unum við­töku. „Þrátt fyr­ir þetta og þær skýr­ing­ar sem komu fram í yf­ir­lýs­ingu fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins er það mitt mat að við nú­ver­andi aðstæður þjóni það best hags­mun­um Sjálf­stæðis­flokks­ins að ég láti af störf­um sem fram­kvæmda­stjóri hans þar sem mik­il­vægt er að leita allra leiða til að skapa traust og frið um flokks­starfið. Af þeim sök­um hef ég boð­ist til að víkja úr stöðu minni.“.

[adspot]Þann 11. apríl sendu Þor­steinn M. Jónsson, þáver­andi stjórn­ar­maður í FL Group sem er oft­ast kenndur við Kók, og Steinþór Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður verð­bréfa­deildar Lands­bank­ans, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögð­ust hafa haft milli­göngu um að útvega Sjálf­stæð­is­flokknum styrk­ina. Þeir sögðu einnig að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hefði haft sam­band við þá og greint frá bág­bor­inni fjár­hags­legri stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í fram­haldi hafi hann ekki haft frek­ari afskipti, upp­hæð styrkj­anna hefði verið ákveð­inn af fyr­ir­tækj­unum og stjórn flokks­ins ákveðið að veita þeim við­töku.

Í frétt RÚV er greint frá því að í bók­inni um Jón Ásgeir komi fram að hann telji sig vita til þess að Geir H. Haarde hafi staðið á bak­við beiðn­ina um styrk­ina en að Guð­laugur Þór hafi verið lát­inn taka á sig sök í mál­inu. „Það var það sem ég heyrði, að þetta hefði verið samið við Geir frekar en Gulla[...]Ég var þarna í stjórn og mér gefin sú skýr­ing.“

Ekkert fyrirliggjandi um endurgreiðslu

[links]Kjarninn hefur ítrekað spurt Þórð Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um hvort verið sé að greiða styrk­ina til baka. Í síð­asta svari hans, sem barst í nóv­em­ber­lok í fyrra, sagði að flokk­ur­inn hefði end­ur­greitt styrk­ina af rekstr­arfé sínu. „Áform voru uppi um að ljúka end­ur­greiðslum fyrir árið 2018. Það gekk því miður ekki eft­ir. Ástæðan fyrir því er m.a. að kosn­ingar hafa verið tíð­ari en ráð var fyrir gert, en þær eru lang­sam­lega fjár­frek­ustu útgjalda­liðir stjórn­mála­flokka. End­ur­skoðuð áætlun gerir ráð fyrir að end­ur­greiðslum ljúki á næstu miss­erum.“ 

Þegar Kjarninn hafði sam­band við Júl­íus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóra Stoða sem áður hétu FL Group, vorið 2015 og spurði hann hvort og hversu mikið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi greitt til baka sagði hann félagið hafa ákveðið að tjá sig hvorki af eða á um mál­ið. Þáver­andi upp­lýs­inga­full­trúi slita­bús Lands­bank­ans sagð­ist sömu­leiðis ekki geta upp­lýst um greiðslur ein­stakra við­skipta­vina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kveikur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár