Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn ekki endurgreitt styrki eins og til stóð

Styrkir sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætl­aði að end­ur­greiða fyrir árið 2018 hafa ekki enn verið greiddir. Kjarninn fékk sama svar frá fram­kvæmda­stjóra flokks­ins nú og fyrir ári síðan.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Áform Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins um að ljúka end­­ur­greiðslu styrkja, sem hann fékk í lok árs 2006 frá FL Group og Lands­­banka Íslands, hafa enn ekki gengið eft­ir. Þetta kemur fram í svari Þórðar Þór­­ar­ins­­son­­ar, fram­­kvæmda­­stjóra Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, við fyr­ir­­spurn Kjarn­ans. Sam­tals námu styrkirnir 56 millj­­ónum króna.

Í svar­inu segir að stjórn­mála­flokkar hefðu hlotið háa styrki frá fyr­ir­tækjum árið 2006 en að þeir hefðu verið í sam­ræmi við þágild­andi lög. Styrkirnir hefðu verið gagn­rýndir í opin­berri umræðu og ákvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einn flokka að end­ur­greiða styrki sem hann hlaut árið 2006.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur end­ur­greitt af rekstr­arfé sínu. Áform voru uppi um að ljúka end­ur­greiðslum fyrir árið 2018. Það gekk því miður ekki eftir. Ástæðan fyrir því er m.a. að kosn­ingar hafa verið tíð­ari en ráð var fyrir gert, en þær eru lang­sam­lega fjár­frek­ustu útgjalda­liðir stjórn­mála­flokka. End­ur­skoðuð áætlun gerir ráð fyrir að end­ur­greiðslum ljúki á næstu miss­erum,“ segir í svari fram­kvæmda­stjór­ans en svarið er hið sama og fyrir ári þegar Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hvort flokk­ur­inn væri búinn að end­ur­greiða styrk­ina.

38 milljónir stóðu eftir árið 2013

Styrkirnir voru veittir í lok árs 2006 og námu sam­tals 56 millj­­ónum króna, eins og áður segir. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­­son, þá nýkjör­inn for­­maður flokks­ins, að styrkirnir yrðu end­­ur­greidd­­ir.

Á lands­fundi flokks­ins 2013 kom fram í máli Jón­­mundar Guð­mar­s­­son, þáver­andi fram­­kvæmda­­stjóra Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, að flokk­­ur­inn hefði þegar end­­ur­greitt um 18 millj­­ónir króna. Sam­­kvæmt því stóðu þá 38 millj­­ónir króna eftir árið 2013.

Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­­­ur­inn ákvað einn flokka að end­­­ur­greiða háa styrki sem hann fékk fyrir hrun. Sam­­fylk­ingin fékk einnig styrki upp á rúmar 36 millj­­ónir króna árið 2006 frá Kaup­­þingi, FL Group, Glitni, Lands­­banka Íslands og Baugi. Flokk­­ur­inn sagð­ist hins vegar ekki ætla að greiða styrk­ina til baka líkt og Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ákvað að gera.

Sjálfstæðisflokkurinn fær langhæstu framlögin

[links]Kjarninn greindi frá því í gær að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri sá stjórn­mála­flokkur á Íslandi sem fengi lang­hæstu fram­lögin frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­ling­um. Alls fékk flokk­ur­inn 49,5 millj­ónir króna í slík fram­lög á síð­asta ári en það er meira en fimm flokkar sem sæti eiga á þingi, og Rík­is­end­ur­skoðun hefur lokið yfir­ferð á árs­reikn­ingi hjá, fengu sam­an­lagt á árinu 2019.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, hefur alla tíð verið dug­leg­astur við að safna fram­lögum frá fólki og fyr­ir­tækj­um. Árið 2018 námu slík fram­lög til að mynda 71,4 milljón krónum og ári áður, 2017, voru þau tæp­lega 60 millj­ónir króna. Þau lækka því umtals­vert milli ára.

Þá námu styrkir lög­að­ila og ein­stak­linga ásamt félags­gjöldum hjá Fram­sókn­ar­flokki, Sam­fylk­ingu, Vinstri græn­um, Við­reisn og Mið­flokknum sam­an­lagt um 44,7 millj­ónum króna á síð­asta ári. Rík­is­end­ur­skoðun hefur enn ekki birt árs­reikn­ingi Pírata og Flokks fólks­ins.

Fram­lög lög­að­ila og ein­stak­linga til allra flokka hafa dreg­ist veru­lega saman eftir að stjórn­mála­flokk­arnir ákváðu að hækka fram­lög til sín úr rík­is­sjóði um 127 pró­sent í lok árs 2017. Sú ákvörðun full­trúa allra flokka á þingi nema Pírata og Flokks fólks­ins hækk­aði fram­lög úr rík­is­sjóði vegna árs­ins 2018 úr 286 í 648 millj­ónir króna. Í fyrra fengu flokk­arnir átta svo 744 millj­ónir króna og árin 2020 og 2021 verður fram­lagið um 728 millj­ónir króna á hvoru ári fyrir sig. Sam­tals munu þeir átta flokkar sem eiga sæti á þingi því fá rúm­lega 2,8 millj­arða króna í fram­lög úr rík­is­sjóði á kjör­tíma­bil­inu. Við þá upp­hæð bæt­ast fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum og bein fram­lög frá Alþing­i.

Vert er að hafa í huga að kosn­ingar voru þrjú ár í röð: 2016, 2017 og 2018. Tví­vegis var kosið til þings og einu sinni til sveit­ar­stjórna. Á kosn­inga­árum má búast við að fram­lög frá lög­að­ilum og ein­stak­lingum séu hærri en ella.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár