Sjálfstæðisflokkurinn ekki enn búinn að endurgreiða styrki

Samkvæmt fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa styrkir sem flokk­ur­inn ætl­aði að end­ur­greiða fyrir árið 2018 ekki enn verið greiddir. End­ur­skoðuð áætlun gerir ráð fyrir að end­ur­greiðslum ljúki á næstu miss­erum.

Jón Gunnarsson, Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.
Jón Gunn­ars­son, Bjarni Bene­dikts­son og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Til stóð hjá Sjálf­stæð­is­flokknum að ljúka end­ur­greiðslu styrkja, sem hann fékk í lok árs 2006 frá FL Group og Lands­banka Íslands, fyrir árið 2018. Þessi áform hafa ekki gengið eftir, sam­kvæmt svari Þórðar Þór­ar­ins­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Sam­tals námu styrkirnir 56 millj­ónum króna.

„Eins og áður hefur komið fram hlutu stjórn­mála­flokkar háa styrki frá fyr­ir­tækjum árið 2006. Þó að styrkirnir væru í fullu sam­ræmi við þágild­andi lög sættu þeir mik­illi gagn­rýni í opin­berri umræðu. Ólíkt öðrum stjórn­mála­flokkum ákvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einn flokka að end­ur­greiða þá styrki. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur, eins og áður hefur komið fram, end­ur­greitt af rekstr­arfé sínu,“ segir í svari Þórðar til Kjarnans.

Til stóð að ljúka end­ur­greiðslum fyrir árið 2018, eins og áður segir. „Það gekk því miður ekki eftir, meðal ann­ars vegna þess að kosn­ingar reynd­ust mun tíð­ari en ráð var fyrir gert, en þær eru lang­sam­lega fjár­frek­ustu útgjalda­liðir stjórn­mála­flokka. End­ur­skoðuð áætlun gerir ráð fyrir að end­ur­greiðslum ljúki á næstu miss­erum,“ segir enn fremur í svar­inu.

Sagði að flokkurinn væri búinn að endurgreiða styrkina

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði end­ur­greiðslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins að umtals­efni í stöðu­upp­færslu á Facebook þann 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar tal­aði hann um styrk­ina sem Sam­fylk­ingin fékk frá Samherja og ákvörðun flokks­ins að skila þeim til fólks­ins í Namibíu. Brynjar sagði að það væri út af fyrir sig góðra gjalda vert og að fleiri mættu styrkja bág­stadda í heim­inum.

„Þeir sem eru eldri en tvæ­vetur muna kannski eftir styrkj­unum til stjórn­mála­flokka fyrir hrun og voru eðli­lega gagn­rýndir. Þar tróndu Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á toppnum. En Sam­fylk­ingin hefur ekki end­ur­greitt þá tugi millj­óna sem hún fékk í styrki þá. Það gerði þó Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn,“ skrif­aði Brynjar.

Formaðurinn sagði árið 2009 að styrkirnir yrðu endurgreiddir

Styrkirnir voru veittir í lok árs 2006 og námu sam­tals 56 millj­ónum króna. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­son, þá nýkjör­inn for­maður flokks­ins, að styrkirnir yrðu end­ur­greidd­ir.

Á lands­fundi flokks­ins 2013 kom fram í máli Jón­mundar Guð­mars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að flokk­ur­inn hefði þegar end­ur­greitt um 18 millj­ónir króna. Sam­kvæmt því stóðu þá 38 millj­ónir króna eftir árið 2013.

Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ákvað einn flokka að end­­ur­greiða háa styrki sem hann fékk fyrir hrun. Sam­fylk­ingin fékk einnig styrki upp á rúmar 36 millj­ónir króna árið 2006 frá Kaup­þingi, FL Group, Glitni, Lands­banka Íslands og Baugi. Flokk­ur­inn sagð­ist hins vegar ekki ætla að greiða styrk­ina til baka líkt og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ákvað að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár