Sjálfstæðisflokkurinn fær langhæstu styrkina frá fyrirtækjum og einstaklingum

Stærsti flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokkur, er í sér­flokki þegar kemur að fram­lögum frá lög­að­ilum og ein­stak­lingum. Í fyrra fékk hann hærri fram­lög frá slíkum en hinir fimm flokk­arnir sem hafa skilað árs­reikn­ingi til sam­ans.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sá stjórn­mála­flokkur á Íslandi sem fær lang­hæstu fram­lögin frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Alls fékk flokk­ur­inn 49,5 millj­ónir króna í slík fram­lög á síð­asta ári.

Það er meira en fimm flokkar sem sæti eiga á þingi, og Rík­is­end­ur­skoðun hefur lokið yfir­ferð á árs­reikn­ingi hjá, fengu sam­an­lagt á árinu 2019. Þá námu styrkir lög­að­ila og ein­stak­linga ásamt félags­gjöldum hjá Fram­sókn­ar­flokki, Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Viðreisn og Mið­flokknum sam­an­lagt um 44,7 millj­ónum króna.

Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingum þeirra sex flokka sem eiga full­trúa á Alþingi sem þegar hafa verið birtir á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar. Stofn­unin hefur enn ekki birt árs­reikn­ingi Pírata og Flokks fólks­ins.

Framlög lög­að­ila og ein­stak­linga til allra flokka hafa dreg­ist veru­lega saman eftir að stjórn­mála­flokk­arnir ákváðu að hækka fram­lög til sín úr rík­is­sjóði um 127 pró­sent í lok árs 2017. Sú ákvörðun full­trúa allra flokka á þingi nema Pírata og Flokks fólks­ins hækk­aði fram­lög úr rík­is­sjóði vegna árs­ins 2018 úr 286 í 648 millj­ónir króna. Í fyrra fengu flokk­arnir átta svo 744 millj­ónir króna og árin 2020 og 2021 verður fram­lagið um 728 millj­ónir króna á hvoru ári fyrir sig. Samtals munu þeir átta flokkar sem eiga sæti á þingi því fá rúm­lega 2,8 millj­arða króna í fram­lög úr rík­is­sjóði á kjör­tíma­bil­inu. Við þá upp­hæð bæt­ast fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum og bein fram­lög frá Alþingi.

Vert er að hafa í huga að kosn­ingar voru þrjú ár í röð: 2016, 2017 og 2018. Tvívegis var kosið til þings og einu sinni til sveit­ar­stjórna. Á kosn­inga­árum má búast við að fram­lög frá lög­að­ilum og ein­stak­lingum séu hærri en ella. 

Framlögin lækka milli ára

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, hefur alla tíð verið dug­leg­astur við að safna fram­lögum frá fólki og fyr­ir­tækjum. Árið 2018 námu slík fram­lög til að mynda 71,4 milljón krónum og ári áður, 2017, voru þau tæp­lega 60 millj­ónir króna. Þau lækka því umtals­vert milli ára.

[adspot]Framlög fyr­ir­tækja til flokks­ins námu 13,7 millj­ónum króna í fyrra. Nokkur fyr­ir­tæki gáfu honum hámarks­fjár­hæð, sem er nú 550 þús­und krónur á ári. Flest þeirra eru félög með tengsl við sjáv­ar­út­veg. Ísfélag Vest­manna­eyja, Hvalur hf., Síld­ar­vinnslan, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og Þorbjörn í Grinda­vík gáfu öll Sjálf­stæð­is­flokknum hámarks­upp­hæð, 550 þús­und krónur. Þá gaf Gjögur, sem er meðal ann­ars í eigu Björg­ólfs Jóhann­es­sonar ann­ars for­stjóra Samherja og er á meðal stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar, flokknum 500 þús­und krónur í fyrra. Félögin Algalíf Iceland ehf., líf­tækni­fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu á örþör­ungum og lög­manns­stofan Juris gáfu flokknum líka hámark­s­tyrkja­fjár­hæð. og eign­ar­halds­fé­lagið Hólmagil, að mestu í eigu Hermanns Guð­munds­sonar og Bjarna Ármanns­sonar, gaf honum hálfa milljón króna.

Vinstri græn fengu sam­tals um 9,5 millj­ónir króna í fram­lög frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum á árinu 2019. Þar af komu um 9,2 millj­ónir króna frá ein­stak­lingum en ein­ungis 300 þús­und krónur frá þremur fyr­ir­tækjum. Internet á Íslandi gaf Vinstri grænum 150 þús­und krónur, verk­fræði­stofan Efla gaf flokknum 100 þús­und krónur og Samherji Ísland ehf. gaf honum 50 þús­und krónur.

Þetta er mikil breyt­ing frá fyrri árum, en 2018 gáfu lög­að­ilar og ein­stak­lingar flokknum 14,2 millj­ónir króna. Þar af komu 3,3 millj­ónir króna frá fyr­ir­tækjum. Árið 2017 nam sú upp­hæð sem kom frá fólki og fyr­ir­tækjum alls rúm­lega 20 millj­ónum króna.

Samfylkingin fékk næst mest

Sam­fylk­ingin fékk næst hæst fram­lög frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum á árinu 2019, eða alls 16,5 millj­ónir króna. Það er mun minna en flokk­ur­inn fékk frá slíkum árin 2018 (um 27 millj­ónir króna) og 2017 (43,7 millj­ónir króna).

[links]Meg­in­þorri fram­laga til flokks­ins í fyrra var frá ein­stak­lingum, annað hvort í formi beinna fjár­fram­laga eða flokks­gjalda, eða um 15 millj­ónir króna. Framlög frá lög­að­ilum voru ein­ungis fimm. Mest gaf útgerð­ar­fyr­ir­tækið Brim hf., eða 550 þús­und krónur, og útgerð­ar­fyr­ir­tækið Þorbjörn gaf 400 þús­und krónur. Alþýðu­hús Reykja­víkur gaf 300 þús­und krónur, Sig­fús­ar­sjóður 200 þús­und krónur og Deloitte ehf. 50 þús­und krónur.

Viðreisn fékk alls um 4,7 millj­ónir króna í fram­lög frá fólki og fyr­ir­tækjum á síð­asta ári. Ári áður fékk flokk­ur­inn 9,8 millj­ónir króna. Þetta er ansi langt frá þeim fram­lögum sem flæddu inn til Við­reisnar á fyrstu tveimur árunum eftir að flokk­ur­inn var stofn­aður. Árið 2016 námu fram­lögin 26,8 millj­ónum króna og árið 2017 voru þau 21,4 millj­ónir króna.

Framsókn fékk tólf sinnum meira 2018

Mið­flokk­ur­inn fékk alls 7,5 millj­ónir króna í fram­lög frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum á árinu 2019. Það er meira en flokk­ur­inn fékk á fyrsta heila starfs­ári sínu ári áður, þegar slík fram­lög voru 5,9 millj­ónir króna. Tvö útgerð­ar­fyr­ir­tæki, Síld­ar­vinnslan og Brim, gáfu Mið­flokknum hámarks­fram­lag upp á 550 þús­und krónur í fyrra og þriðja útgerð­ar­fyr­ir­tækið, Þorbjörn, gaf honum 400 þús­und krónur.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 810 þús­und krónur frá lög­að­ilum í fyrra og fram­lögin voru ein­ungis fimm. Mest gaf félagið Best Hús, í eigu Jóns Rúnars Hall­dórs­sonar, eða 300 þús­und krónur. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og KS verk­takar gáfu sitt­hvorar 200 þús­und krón­urnar og aðrir minna. Það er mik­ill sam­dráttur frá árinu 2018 þegar fram­lög frá lög­að­ilum voru 9,5 millj­ónir króna, eða næstum tólf sinnum hærri en í fyrra. Árið 2017 voru þau 8,4 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár