Sex stjórnmálaflokkar högnuðust samanlagt um rúmlega 300 milljónir króna í fyrra

Rík­is­end­ur­skoðun hefur birt árs­reikn­inga sex flokka sem eiga sæti á Alþingi. Þar kemur fram að meg­in­þorri tekna komi úr opin­berum sjóðum. Allir flokk­arnir skila mynd­ar­legum hagn­aði.

Sam­kvæmt lögum áttu allir stjórn­mála­flokkar lands­ins að skila inn árs­reikn­ingi sín­um, und­ir­rit­uðum af end­ur­skoð­anda, til Rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Stofn­unin hefur nú birt árs­reikn­inga sex þeirra átta flokka sem eiga full­trúa á Alþingi. Þar kemur fram að sam­an­lagt skil­uðu þessir sex flokkar, sem eru allir stjórn­mála­flokkar á þingi utan Pírata og Flokks fólks­ins, hagn­aði upp á 304 millj­ónir króna á árinu 2019.

Ofan á það skiptu þeir með sér 728,2 millj­ónum króna í ár og munu skipta með sér sömu upp­hæð á næsta ári, sem er síð­asta ár yfir­stand­andi kjör­tíma­bils, en næst verður kosið til Alþingis í sept­em­ber næst­kom­andi.

Sam­tals munu rúm­lega 2,8 millj­arðar króna renna til stjórn­mála­flokka átta sem náðu inn á þing í haust­kosn­ing­unum 2017 á þessu kjör­tíma­bili. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir því að fram­lögin hald­ist óbreytt árin 2022 og 2023 og verði 728,2 millj­ónir króna á hvoru þeirra.

Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn högnuðust samanlagt um meira en 100 milljónir

Algjör við­snún­ingur varð í rekstri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á síð­asta ári. Flokk­ur­inn tap­aði 35,2 millj­ónum króna árið 2018 en hagn­að­ist um 67 millj­ónir króna í fyrra. Nær allar tekjur hans koma úr opin­berum sjóðum. Flokk­ur­inn fékk 200 millj­ónir króna fram­lag úr rík­is­sjóði og 17,4 millj­ónir króna fram­lag frá sveit­ar­fé­lögum. Fjár­fram­lög lög­að­ilar voru 17,4 millj­ónir króna og fram­lög eða félags­gjöld ein­stak­lingar 35,8 millj­ónir króna. „Aðrar tekjur“, sem eru ekki sér­stak­lega skil­greindar, voru svo 77,4 millj­ónir króna. Alls námu tekjur stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins því 344,2 millj­ónum króna á árinu 2019. Þar af komu næstum tvær af hverjum þremur krónum sem fóru til flokks­ins frá opin­berum aðilum. Rekstr­ar­gjöldin dróg­ust hins vegar veru­lega saman og voru 251,3 millj­ónir króna. Þar ber að hafa í huga að á árinu 2018 fóru fram sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, með til­heyr­andi kostn­aði.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í sér­flokki þegar kemur að eignum í íslensku stjórn­mála­lands­lagi. Eignir hans eru metnar á 847,5 millj­ónir króna. Á móti eru skuldir upp á tæp­lega 452 millj­ónir króna en þær juk­ust lít­il­lega á milli ára.

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, hagn­að­ist um 38,4 millj­ónir króna á árinu 2019. Það er svipuð upp­hæð og flokk­ur­inn skil­aði í hagnað árið áður þegar slíkur nam 33,6 millj­ónum króna. Af 153,8 milljón króna tekjum komu 138,5 millj­ónir króna frá Alþingi eða rík­is­sjóði og 1,9 millj­ónir króna frá sveit­ar­fé­lögum. Það þýðir að 91 pró­sent af tekjum Vinstri grænna komu úr opin­berum sjóðum. Flokk­ur­inn seldi fast­eign fyrir nokkru síðan og greiddi sam­hliða upp skuldir sínar. Því eru Vinstri græn nokkuð skuld­léttur flokkur og skulda ein­ungis 9,3 millj­ónir króna.

Rík­is­end­ur­skoðun hefur ekki birt árs­reikn­inga Pírata og Flokks fólks­ins.

Góð afkoma hjá Framsókn og Miðflokki

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn snéri sömu­leiðis tveggja millj­óna króna tapi í 36,9 millj­óna króna hagnað á síð­asta ári. Fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði voru 82,4 millj­ónir króna og þing­flokks­styrkur til flokks­ins nam 11,6 millj­ónum króna. Saman mynd­uðu þessar tvær tekju­stoðir um 90 pró­sent af öllum tekjum flokks­ins á árinu 2019.

Rekstr­ar­gjöld Fram­sókn­ar­flokks­ins dróg­ust veru­lega saman á síð­asta ári líkt og hjá öðrum flokkum og fóru úr 102,5 millj­ónum króna í 65,7 millj­ónir króna. Flokk­ur­inn átti eignir sem metnar voru á 206 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót en skuld­aði á sama tíma 225,1 milljón króna. Skuld­irnar flokks­ins lækk­uðu um 14 millj­ónir króna í fyrra.

Mið­flokk­ur­inn, sem varð til þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn klofn­aði í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga, hefur náð að koma sér upp mynd­ar­legum sjóði á síð­ustu árum. Hagnaður flokks­ins árið 2018 var 30,6 millj­ónir króna, þrátt fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar það ár, og í fyrra bætt­ist við 66,8 milljón króna hagn­aður. Alls hagn­að­ist flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar því um næstum 100 millj­ónir króna á tveimur fyrstu heilu árum kjör­tíma­bils­ins, og þeim fyrstu eftir að fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka voru stór­aukin. Mið­flokk­ur­inn fékk alls 83,5 millj­óna króna fram­lag úr rík­is­sjóði á síð­asta ári og 17 millj­ónir króna frá Alþingi. Þá fékk flokk­ur­inn 4,1 milljón króna fram­lag frá sveit­ar­fé­lögum og því námu opin­ber fram­lög alls tæp­lega 105 millj­ónum króna. Það er rúm­lega 90 pró­sent af öllum tekjum flokks­ins. Mið­flokk­ur­inn skuldar nán­ast ekk­ert, eða alls 851 þús­und krónur.

Samfylkingin hagnaðist mest allra og Viðreisn tífaldaði hagnað

Viðreisn var stofnuð í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2016. Á árinu 2018, þegar flokk­ur­inn tók í fyrsta sinn þátt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hagn­að­ist hann um 2,3 millj­ónir króna. Í fyrra tífald­að­ist hagn­aður flokks­ins og var 23,8 millj­ónir króna.

[links]Alls voru tekjur flokks­ins 72 millj­ónir króna. Þar af komu 64,6 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði eða úr sjóðum Alþingis og 2,7 millj­ónir króna komu frá sveit­ar­fé­lögum. Því komu rúm­lega 93 pró­sent af öllum tekjum flokks­ins úr sam­eig­in­legum sjóðum. Viðreisn skuldar um 4,2 millj­ónir króna, en allar þær skuldir eru skamm­tíma­skuldir.

Sam­fylk­ingin er sá flokkur sem skil­aði mestum hagn­aði allra flokka á síð­asta ári. Þá jók flokk­ur­inn hagnað sinn frá árinu 2018, sem var 17 millj­ónir króna, í 71,5 millj­ónir króna eða um næstum 55 millj­ónir króna. Sam­fylk­ingin, líkt og aðrir eldri flokkar, burð­ast með umtals­verðar skuldir. Þær stóðu í 76,3 millj­ónum króna um síð­ustu ára­mót og högðu þá lækkað um meira en 30 millj­ónir króna á einu ári. Flokk­ur­inn á eignir á móti þessum skuldum, meðal ann­ars fast­eignir, sem metnar eru á 136,7 millj­ónir króna.

Alls námu fram­lög úr rík­is­sjóði og frá sveit­ar­fé­lögum 115,8 millj­ónum króna á síð­asta ári, sem var um 78 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum Sam­fylk­ing­ar­innar á því ári.

Stjórnmálamenn ákváðu að hækka framlögin

Fram­lög úr rík­is­sjóði hækk­uðu veru­lega í kjöl­far þess að til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­sent var sam­­­­þykkt í fjár­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­ónir króna á því ári.

Sam­an­lagt verða þau, líkt og áður sagði, um 2,8 millj­arðar króna á kjör­tíma­bil­inu öllu. Þá eru ótalin fram­lög úr sjóðum sveit­ar­fé­laga.

Einu flokk­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Stjórn­mála­flokk­arnir áttu allir að skila inn árs­reikn­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir 1. nóv­em­ber og eru reikn­ing­arnir birtir nú birtir í heild sinni í fyrsta sinn eftir að Rík­is­end­ur­skoðun fer yfir þá. Áður voru ein­ungis birtir útdrættir úr reikn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár