Stjórnmálaflokkarnir átta fá 728 milljónir króna framlag úr ríkissjóði á næsta ári

Sex stjórn­mála­flokkar sam­þykktu til­lögu um að hækka fram­lög til þeirra flokka sem kom­ast inn á þing um 127 pró­sent skömmu eftir síð­ustu kosn­ingar. Frá þeim tíma, og fram að næstu kosn­ingum, munu þeir flokkar sem sitja á þingi fá rúm­lega 2,8 millj­arða.

Það styttist í að forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna takist aftur á í sjónvarpssal í aðdraganda kosninga. Hér sjáum við fulltrúa þeirra átta sem náðu inn á þing í kappræðum hjá RÚV haustið 2017.
Það stytt­ist í að for­svars­menn stjórn­mála­flokk­anna tak­ist aftur á í sjón­varps­sal í aðdrag­anda kosn­inga. Hér sjáum við full­trúa þeirra átta sem náðu inn á þing í kapp­ræðum hjá RÚV haustið 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Versn­andi staða rík­is­sjóðs, sem áætlað er að verði rek­inn með 533 millj­arða króna halla árin 2020 og 2021, hefur engin áhrif á áætluð fram­lög úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka á næsta ári.

Samkvæmt fram­lögðu fjár­laga­frum­varpi munu þeir skipta með sér 728,2 millj­ónum króna á árinu 2021, sem er síð­asta ár yfir­stand­andi kjör­tíma­bils, en næst verður kosið til Alþingis í sept­em­ber næst­kom­andi. Það er sama upp­hæð og áætlað er að stjórn­mála­flokk­arnir fái úr rík­is­sjóði í ár. Árið 2018, sem var fyrsta heila ár kjör­tíma­bils­ins, fengu þeir 648 millj­ónir króna og árið 2019 hæsta fram­lag sitt frá upp­hafi, 744 millj­ónir króna.

Samtals munu því rúm­lega 2,8 millj­arðar króna renna til stjórn­mála­flokka átta sem náðu inn á þing í haust­kosn­ing­unum 2017 á þessu kjör­tíma­bili. Fjár­mála­á­ætlun gerir ráð fyrir því að fram­lögin hald­ist óbreytt árin 2022 og 2023 og verði 728,2 millj­ónir króna á hvoru þeirra.

Hækkuðu um 127 prósent

Fram­lögin hækk­uðu veru­lega í kjöl­far þess að til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­is­ins til stjórn­­­­­mála­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­sent var sam­­­þykkt í fjár­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­mála­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­ónir króna á því ári.

Einu flokk­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

[adspot]Full­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­menn stjórn­­­mála­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­mál stjórn­­­mála­­flokka og fram­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­mála­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­um. Hámarks­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­ur.

Auk þess var sú fjár­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­greindur í árs­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­ur.

Því hafa tæki­­færi stjórn­­­mála­­flokka til að taka við upp­­hæðum frá ein­stak­l­ingum og fyr­ir­tækjum verið aukin sam­hliða því að upp­­hæðin sem þeir fá úr rík­­is­­sjóði var rúm­­lega tvö­­­föld­uð.

Eiga að skila árituðum ársreikningum

Í nýjum lögum um fjár­mála stjórn­mála­flokka var hug­takið „tengdir aðilar“ líka sam­ræmt, en Rík­is­end­ur­skoðun hafði gert athuga­semdir á árinu 2018 við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­mun­andi félög í eigu sömu aðila. Þar var um að ræða félög tengd Ísfé­lags­fjöl­skyld­unni í Vest­manna­eyj­um, stærstu eig­enda Morg­un­blaðs­ins, og styrki þeirra til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Alls gáfu þrjú félög tengd henni flokknum 900 þús­und krónur árið 2017, eða 500 þús­und krónum meira en hver ein­stakur aðila mátti gefa.

[links]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn end­ur­greiddi umfram­styrk­ina.

Þá var ákveðið að láta stjórn­mála­flokk­anna skila árs­reikn­ingum sínum til rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir 1. nóv­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­is­end­ur­skoðun mun hætta að birta tak­mark­aðar upp­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­ur­skoð­end­um.

Þessi breyt­ing var þó ekki látin taka gildi fyrr en í ár, 2020. 1. nóv­em­ber er á sunnu­dag. Árs­reikn­ingar stjórn­mála­flokka hafa enn ekki verið birtir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár