Samfylking stækkar, Sjálfstæðisflokkur tapar og Vinstri græn ekki verið minni frá 2016

Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að dala og mælist nú tæp­lega helm­ingur af því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Flokkur for­sæt­is­ráð­herra yrði minnsti flokk­ur­inn á þingi ef kosið yrði í dag.

Alls segjast um 40 prósent kjósenda að þeir myndu kjósa stjórnarflokkanna þrjá.
Alls segj­ast um 40 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa stjórn­ar­flokk­anna þrjá. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins í nýrri könnun MMR. Alls segj­ast 21,9 pró­sent lands­manna að þeir myndu kjósa flokk­inn ef gengið yrði til kosn­inga í dag. Það er umtals­vert færri en sögð­ust ætla að gera það í lok sept­em­ber þegar að fylgi flokks­ins mæld­ist 25,6 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur því tapað 3,7 pró­sentu­stigum milli mán­aða. Fylgi hans hefur ekki mælst lægra frá því áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hér­lendis. í lok febr­úar.

Sam­fylk­ingin bætir mestu fylgi við sig milli mán­aða og mælist nú með 15,2 pró­sent fylgi. Það er 2,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með fyrir um mán­uði.

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, mæl­ast með 8,3 pró­sent fylgi. Það er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því í mars 2016, eða áður en að Panama-skjölin, sem leiddu til kosn­inga síðar á því ári, voru opin­beruð. Ef kosið yrði í dag væru Vinstri græn sjö­undi stærsti flokkur lands­ins og sá minnsti sem myndi ná inn á þing. Flokk­ur­inn hefur tapað rúm­lega helm­ingnum af fylgi sínu frá síð­ustu kosn­ingum, þegar 16,9 pró­sent atkvæða féllu honum í skaut.

Næst verður kosið til Alþingi í sept­em­ber 2021.

Um 40 prósent myndu kjósa stjórnarflokka

Þriðji flokk­ur­inn sem situr í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hress­ist milli mán­aða og mælist nú með 10,2 pró­sent fylgi. Allir þrír stjórn­ar­flokk­arnir eru þó undir kjör­fylgi og sam­an­lagt mæl­ast þeir með 40,4 pró­sent fylgi. Haustið 2017 fengu þeir 52,8 pró­sent atkvæða. Í til­felli Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna eru efri vik­mörk könn­un­ar­innar einnig undir kjör­fylgi.

Mið­flokk­ur­inn, sem varð til þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son klauf Fram­sókn­ar­flokk­inn í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, bætir lít­il­lega við sig frá síð­ustu könnun og mælist nú yfir kjör­fylgi með 11,6 pró­sent fylgi.

Píratar dala eilítið milli mán­aða, hafa sæta­skipti á ný við Sam­fylk­ing­una og yrðu þriðji stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag með 13,5 pró­sent atkvæða. Viðreisn myndi fá 9,7 pró­sent í dag, en það er nán­ast sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í sept­em­ber. Sam­an­lagt fylgi frjáls­lyndu flokk­anna þriggja í stjórn­ar­and­stöðu mælist því nú 38,4 pró­sent og mun­ur­inn á þeim og stjórn­ar­flokk­unum þremur innan skekkju­marka. Það er 10,4 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu haustið 2017.

Mörg atkvæði gætu fallið niður dauð

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 4,6 pró­sent fylgi, sem tví­sýnt er um að gætu skilað flokknum þing­manni, og Flokkur fólks­ins með 3,8 pró­sent. Alls 1,3 pró­sent aðspurðra nefndi aðra flokka í könn­un­inni. Miðað við þessa stöðu yrði raun­veru­legur mögu­leiki á því að tæp­lega tíu pró­sent atkvæða myndu falla niður dauð og ekki skila full­trúa inn á þing. Það myndi þá ýkja stöðu þeirra flokka sem næðu inn umtals­vert.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist 50,3 pró­sent, tæpu pró­sentu­stigi minna en við síð­ustu mæl­ingu.

Könnunin var fram­kvæmd 23. - 28. októ­ber 2020 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 933 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár