Samherji kennir Jóhannesi um allt – Segjast ekkert hafa að fela

Þor­steinn Már Bald­vins­son segir það mikil von­brigði að fyrr­ver­andi starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi „hugs­an­lega flækt Samherja í við­skipti sem kunni að vera ólög­mæt.“

Í yfir­lýs­ingu sem Samherji sendi frá sér í kvöld segir að svo virð­ist sem að Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi verk­efna­stjóri Samherja í land­inu, hafi „hugs­an­lega flækt Samherja í við­skipti sem kunni að vera ólög­mæt.“ Það séu mikil von­brigði að sögn Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra og ann­ars aðal­eig­anda Samherja.

Í frétta­skýr­inga­þætti Kveiks í kvöld kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar séu um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inni­heldur meðal ann­ars tvo ráð­herra í Namib­íu, séu mútu­greiðslur og að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­íku­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u. Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að þar til nýlega hafi Samherji ekki haft neina „vit­neskju um umfang og eðli þeirra við­skipta­hátta sem Jóhannes stund­aði og óvíst er hvort þeir hafi verið raun­veru­lega með þeim hætti sem hann lýsir. Eins og við höfum þegar greint frá höfum við ráðið alþjóð­legu lög­manns­stof­una Wikborg Rein í Noregi til að rann­saka starf­sem­ina í Namibíu. Í þeirri rann­sókn verður ekk­ert und­an­skilið og munum við upp­lýsa um nið­ur­stöður hennar þegar þær liggja fyrir.“ Jóhannes er auk þess sagður hafa misst starf sitt hjá Samherja árið 2016 eftir að hann „mis­fór með fé og hegð­aði sér með ófor­svar­an­legum hætti“.

Þor­steinn Már segir að stjórn­endum Samherja sé illa brugðið. „Ekki ein­ungis við það að Jóhannes stað­hæfi að hann hafi tekið þátt í starf­semi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásök­unum sínum að fyrrum sam­starfs­fólki sínu hjá Samherja. Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við.“

Ef rann­sókn fari fram á við­skipt­unum í Namibíu hafi „Samherji ekk­ert að fela“.

Jóhannes gegst við því í þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namibíu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namib­íu, hefði fengið laga­lega stöðu upp­ljóstr­ara og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a.

Jóhannes sagði hins vegar að hann hefði ekki hafa gert neitt í Namibíu nema án aðkomu Þor­steins Más. Þar kall­aði hann starf­semi Sam­herja í Namibíu „skipu­lagða glæp­a­starf­semi“ þar sem fyr­ir­tækið græði á auð­lindum lands­ins en hafi svo fært alla pen­ing­anna sem það græddi út úr því til að fjár­festa ann­ars staðar í heim­in­um. 

Jóhannes var sér­stak­lega nefndur á nafn í yfir­lýs­ingu sem Sam­herji sendi frá sér í gær vegna yfir­vof­andi umfjöll­unar um starfs­hætti fyr­ir­tæk­is­ins og sagt að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Sam­herja árið 2016 vegna „óá­sætt­an­legrar fram­göngu hans og hegð­un­ar“. Það hafi gerst í kjöl­far þess að Sam­herji hefði orðið „þess áskynja í árs­byrjun 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstr­inum í Namib­íu“ og sent íslenskan fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mann til lands­ins til að rann­saka mál­ið.

Heim­ildir Kjarnans herma að Jóhannes hafi rætt við starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara í dag. Í þætt­inum í kvöld kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­völd í Namib­íu, hefði fengið laga­lega stöðu upp­ljóstr­ara og aðstoð­aði nú við rann­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár