Tekjur borgarinnar vegna fasteignaskatta hafa næstum tvöfaldast frá 2013

Árið 2013 námu tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna fast­eigna­skatta 11,6 millj­örðum króna. Síðan hefur fast­eigna­verð hækkað skarpt í höf­uð­borg­inni og það hefur skilað því að skatt­arnir skil­uðu 21,1 millj­arði króna í kass­ann í fyrra.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg inn­heimti alls 21,1 millj­arð króna í fast­eigna­skatta á árinu 2019. Það var 2,9 millj­örðum krónum meira en borgin inn­heimti í slíka skatta árið áður og 5,9 millj­örðum krónum meira en árið 2017, þegar tekjur hennar vegna þeirra námu námu 15,1 millj­arði króna.

Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem var birtur í lok síð­asta mán­aðar.

Þessi þróun átti sér stað þrátt fyrir að fast­eigna­skattar hafi verið lækk­aðir árið 2018. Ástæðan er ein­fald­lega sú að fast­eigna­verð í höf­uð­borg­inni hefur hækkað mikið og þar sem álagn­ingin er hlut­fall af fast­eigna­mati þá fjölgar krón­unum sem fast­eigna­eig­endur í Reykja­vík borga þrátt fyrir að skatt­pró­sentan hafi lækkað.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar af fast­eigna­sköttum voru þannig 11,6 millj­arðar króna árið 2013 og hafa því hækkað um 82 pró­sent frá því ári. Frá árs­byrjun 2013 og út síð­asta ár hækk­aði hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 81 pró­sent.

Ætla að lækka skattinn um komandi áramót

Sveit­­ar­­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­­tekju­­stofna. Ann­­ars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­­ar­­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­­eigna­skatt.

Slík gjöld eru aðal­­­lega tvenns kon­­ar. Ann­­ars vegar er fast­­eigna­skattur (0,18 pró­­sent af fast­­eigna­mati á íbúð­­ar­hús­næði og 1,65 pró­­sent af fast­­eigna­mati á atvinn­u­hús­næði) og hins vegar lóð­­ar­­leiga (0,2 pró­sent af lóða­mati á íbúð­­ar­hús­næði og eitt pró­­sent af lóða­mati á atvinn­u­hús­næð­i). Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­­hirð­u­­gjald og gjald vegna end­­ur­vinnslu­­stöðva sem hluta af fast­­eigna­­gjöldum sín­­um.

[adspot]Fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði var lækk­aður um tíu pró­sent á árinu 2017 úr 0,20 í 0,18 pró­sent. Auk þess voru afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum aukn­ir.

Í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að tekjur borg­ar­innar vegna fast­eign­ar­skatta yrðu 22,5 millj­arðar króna í ár.

Viðbúið er að þær tekjur verði minni en áætlað var. Á meðal þeirra aðgerða til að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp er komin vegna efna­hags­legra áhrifa útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, og borg­ar­ráð sam­þykkti í lok mars, var frestur á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­­eigna­skatta á þessu ári.

Þótt borg­ar­ráð hafi ákveðið að flýta áformum sínum um að lækka fast­eign­ar­skatta á atvinnu­hús­næði úr 1,65 í 1,60 pró­sent þá mun sú breyt­ing ekki taka gildi fyrr en um næstu ára­mót.

Afkoma undir áætlun

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 1.358 milljón króna hagn­aði í fyrra. Áætlun hafði gert ráð fyrir því að afkoma af rekstri hans yrði jákvæð um 3.572 millj­ónir króna. Því var afkoma A-hlut­ans 2.214 millj­ónum króna undir áætl­un. Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði var svo umtals­vert lak­ari, var jákvæð um 930 millj­ónir króna en áætl­anir hafi reiknað með að hún yrði rúm­lega fjórir millj­arðar króna.

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Meiri bók­færður hagn­aður var af rekstri B-hlut­ans en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Þar skiptir mestu að mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða skil­uðu 3.454 millj­óna króna hærri tekju­færslu en fjár­hags­á­ætlun hafði reiknað með. Það þýðir að bók­fært virði félags­legra íbúða í eigu dótt­ur­fyr­ir­tækis borg­ar­innar hafi hækkað um þá upp­hæð umfram það sem vænst var á árinu 2019.

Þetta skil­aði því að sam­an­lögð rekstr­ar­nið­ur­staða borg­ar­innar var 792 millj­ónum krónum lak­ari en í fjár­hags­á­ætl­un, eða 11,2 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár