Eva Bergþóra ráðin teymisstjóri samskiptateymis Reykjavíkurborgar

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­frétta­stjóri á Stöð 2 og Bylgj­unni sem hefur starfað hjá háskóla í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum und­an­far­inn ára­tug hefur verið ráðin til að leiða upp­lýs­inga­gjöf Reykja­vík­ur­borgar.

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir mun leiða samskiptateymi Reykjavíkurborgar.
Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir mun leiða sam­skiptateymi Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Af vef Reykjavíkurborgar

Eva Bergþóra Guð­bergs­dóttir hefur verið ráðin til þess að leiða sam­skiptateymi Reykja­vík­ur­borgar, en frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef borg­ar­innar. Alls sóttu 45 manns um starfið, sem var aug­lýst í des­em­ber.

Í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar segir að Eva Bergþóra hafi víð­tæka reynslu af sam­skipta- og upp­lýs­inga­málum, en hún hefur starfað sem aðstoð­ar­frétta­stjóri á Stöð 2 og Bylgj­unni, og áður sem frétta­maður bæði á Stöð 2 og RÚV.[links]

Síð­ast­lið­inn ára­tug hefur hún starfað hjá sam­skipta­sviði Midd­lebury-háskól­ans í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum, nú síð­ast sem deild­ar­stjóri. Fram kemur í til­kynn­ingu borg­ar­innar að starf hennar þar þar hafi snúið að upp­lýs­inga­miðlun, gerð mark­aðs­efnis fyrir vef og sam­skipta­miðla, stefnu­mótun ásamt innri og ytri sam­skiptum. Eva Bergþóra er jafn­framt aðjúnkt við skól­ann.

Eva Bergþóra er með BA í ensku og stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið MA gráðu í alþjóða­samn­inga­gerð og MPA gráðu í stjórn­sýslu­fræðum frá Midd­lebury Institute of International Studies.

[adspot]

Í aug­lýs­ing­unni um starfið sagði að við­kom­andi myndi fara „með fag­­lega for­ystu varð­andi fram­­sækni og fram­­þróun í upp­­lýs­inga­­gjöf, vökt­un, miðlun og sam­­skiptum borg­­ar­innar við starfs­­fólk, íbúa, fjöl­miðla og gesti borg­­ar­innar“ og vinna að því að Reykja­vík­­­ur­­borg yrði í far­­ar­broddi á þessu sviði.

Verður tíundi starfsmaðurinn í upplýsingafulltrúastöðu hjá borginni

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber að fyrir væru upp­­lýs­inga­­full­­trúar í níu stöð­u­­gildum hjá Reykja­vík­­­ur­­borg, þar af einn í 80 pró­­sent starfs­hlut­­fall­i.

Í svar­i borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið sagði að sex hafi verið í upp­­lýs­inga­­deild/­­sam­­skiptateymi sem starfi þvert á fagsviðin og tveir hjá umhverf­is- og skipu­lags­sviði, þar af annar í 80 pró­­sent starfi. Þá hafi einn nýlega ráð­inn í 100 pró­­sent starf hjá vel­­ferð­­ar­sviði.

Árlegur launa­­kostn­aður við þessi níu stöð­u­­gildi var um 102 millj­­ón­ir, að því er fram kom í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár