Alls 45 vilja verða tíundi starfsmaðurinn í samskiptateymi Reykjavíkurborgar

Á meðal þeirra sem vilja stýra sam­skiptateymi á vegum Reykja­vík­ur­borgar eru fyrr­ver­andi stjórn­endur ýmissa fjöl­miðla. Launa­kostn­aður við þá upp­lýs­inga­full­trúa sem þegar starfa hjá borg­inni er yfir 100 millj­ónir á ári.

Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi aðalritstjóri 365 miðla, er á meðal umsækjenda um starfið.
Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi aðal­rit­stjóri 365 miðla, er á meðal umsækj­enda um starfið. Mynd: Skjáskot

Alls sóttu 45 um að stýra sam­skiptateymi á vegum Reykja­vík­ur­borgar. Á meðal umsækj­enda eru Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi aðal­rit­stjóri 365 miðla og Frétta­blaðs­ins, Hrund Þórs­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2, Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri DV, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, frétta­maður á RÚV og Sigríður Björk Tóm­as­dóttir, almanna­teng­ill Kópa­vogs­bæjar.

Frá þessu er greint á vef RÚV.

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber að fyrir séu upp­lýs­inga­full­trúar í níu stöðu­gildum hjá Reykja­vík­ur­borg en þar af er einn í 80 pró­sent starfs­hlut­falli.

Í svar­i borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið sagði að sex hafi verið í upp­lýs­inga­deild/­sam­skiptateymi sem starfi þvert á fagsviðin og tveir hjá umhverf­is- og skipu­lags­sviði, þar af annar í 80 pró­sent starfi. Þá hafi einn nýlega ráð­inn í 100 pró­sent starf hjá vel­ferð­ar­sviði.

Árlegur launa­kostn­aður við þessi níu stöðu­gildi er um 102 millj­ón­ir, að því er fram kom í svar­inu.

Fagleg forysta varðandi framsækni og framþróun

Auglýst var eftir ein­stak­lingi í stöðu þess sem á að stýra sam­skipteymi sem yrði stað­sett á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara í síð­asta mán­uði.

[adspot]Í aug­lýs­ing­unni sagði að við­kom­andi muni fara „með fag­lega for­ystu varð­andi fram­sækni og fram­þróun í upp­lýs­inga­gjöf, vökt­un, miðlun og sam­skiptum borg­ar­innar við starfs­fólk, íbúa, fjöl­miðla og gesti borg­ar­innar og vinnur að því að Reykja­vík­ur­borg sé í far­ar­broddi á þessu sviði. Í sam­skiptateymi starfa sér­fræð­ingar á sviði upp­lýs­inga­mála.“

Helstu verk­efni og ábyrgð sem felst í starf­inu er inn­leið­ing og eft­ir­fylgni sam­skipta- og upp­lýs­inga­stefnu borg­ar­inn­ar, stjórnun og dag­leg ábyrgð á starf­semi og rekstri sam­skiptateym­is, fag­leg upp­bygg­ing og þróun sam­skiptateym­is. Jafn­framt á þessi aðili að leiða sam­ráðs­vett­vang upp­lýs­inga­full­trúa innan Reykja­vík­ur­borgar og leiða Reykja­vík­ur­borg inn í „áskor­anir í síbreyti­legu og fjöl­breyttu fjöl­miðlaum­hverf­i“. Enn fremur mun þessi ein­stak­lingur sinna ráð­gjöf á sviði sam­skipta- og upp­lýs­inga­mála borg­ar­innar og hafa yfir­um­sjón með skipu­lagi og ráð­gjöf hvað varðar sam­skipti við fjöl­miðla og almenn­ing.

Þeir sem sóttu um starfið eru í stafrófsröð:

  • C. Wagner, ferða­ráð­gjafi.
  • Anna Katrín Valdi­mars­dóttir,senior verk­efna­stjóri.
  • Anna Þóra Ísfold Rebekku­dóttir,við­skipta­fræð­ingur.
  • Árdís Rut Hlífar Ein­ars­dóttir, lög­fræð­ingur.
  • Ásgrímur Sig­urðs­son,star­fræn sam­skipti / nýmiðla­sér­fræð­ingur.
  • Ásta Gísla­dóttir, þýð­andi.
  • Berglind Hall­gríms­dóttir, sér­fræð­ingur.
  • Bergþóra Guð­bergs­dóttir, deild­ar­stjóri.
  • Borgþór Ásgeirs­son, verk­efna­stjóri.
  • Carlos Prieto Casquero, sagn- og bók­mennta­fræð­ingur.
  • Daníel Frið­riks­son, hót­el­stjóri.
  • Davíð Eldur Bald­urs­son, rit­stjóri.
  • Davíð Freyr Þór­unn­ar­son, menn­ing­ar­stjórn­andi
  • Eygló Hall­gríms­dóttir, mannauðs­stjóri.
  • Fanný S Cloé Goupil Thiercelin, umsjón­ar­maður.
  • Fjalar Sig­urð­ar­son, mark­aðs­stjóri.
  • Guðbjörg Ómars­dóttir, for­stöðu­maður.
  • Guð­mundur Bjarni Bene­dikts­son, ferða­ráð­gjafi.
  • Gunnar Kristinn Sig­urðs­son, við­skipta­fræð­ingur.
  • Gunnar Þorri Þor­leifs­son, grunn­skóla­kenn­ari.
  • Haraldur Líndal Har­alds­son, sam­skipta­ráð­gjafi.
  • Heiðdís Ein­ars­dóttir, menn­ing­ar­miðl­ari.
  • Helena Ólafs­dóttir, íþrótta­kenn­ari og þátta­stjórn­andi.
  • Hildur Krist­ins­dóttir, verk­efna­stjóri .
  • Hrund Þórs­dóttir, frétta­stjóri.
  • Hulda B. Kjærne­sted Bald­urs­dóttir, sér­fræð­ingur.
  • Jón Gunnar Borg­þórs­son, alþjóð­lega vott­aður stjórn­enda­ráð­gjafi.
  • Jón Halldór Jónasson, upp­lýs­inga­full­trúi.
  • Kristinn Árnason, mark­aðs­ráð­gjafi.
  • Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi útgef­andi og aðal­rit­stjóri 365 miðla og Frétta­blaðs­ins
  • Kristján Ó Dav­íðs­son, íþrótta­stjóri KLÍ.
  • Lilja Björk Hauks­dóttir, verk­efna­stjóri.
  • Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir, blaða­maður.
  • Lúna Grétu­dóttir, yoga­kenn­ari og þjálf­ari.
  • Magnús Sig­urðs­son, lög­fræð­ingur.
  • Marcin Zembrowski, sér­fræð­ingur í leyf­is­málum.
  • Pálmi Jónasson, MBA/frétta­maður.
  • Ragna Ingi­björg Hall­dórs­dóttir, deild­ar­stjóri.
  • Ragn­heiður S Kjart­ans­dóttir, verk­efna­stjóri.
  • Sigríður Björg Tóm­as­dóttir, almanna­teng­ill.
  • Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, frétta­maður.
  • Sigríður Sólan Guð­laugs­dóttir, kynn­ing­ar­stjóri.
  • Stefán Árni Pálsson, fjöl­miðla­maður.
  • Stein­grímur Sig­ur­geirs­son, stjórn­sýslu­fræð­ingur.
  • Þór Elíasson Bachmann, verk­efn­is­stjóri.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár