Samþykkt að lækka hámarkshraðann víða í Reykjavíkurborg

Skipu­lags- og sam­göngu­ráð borg­ar­innar sam­þykkti á fundi sínum í dag til­lögu um að lækka hámarks­hraða á götum á for­ræði borg­ar­innar niður í 40 eða 30 víð­ast hvar, til dæmis á Suð­ur­lands­braut, Bústaða­vegi og víðar.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs.
Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir borg­ar­full­trúi Pírata og for­maður skipu­lags- og sam­göngu­ráðs. Mynd: Bára Huld Beck

Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fundi sínum í dag til­lögu um að hámarks­hraði á lang­flestum borg­ar­götum verði lækk­aður í 40 eða 30 kíló­metra hraða.

Enginn akvegur á for­ræði borg­ar­yf­ir­valda en ekki Vega­gerðar, verður lengur með yfir 50 kíló­metra hámarks­hraða og engin borg­ar­gata vestan Elliðaáa verður með yfir 40 kíló­metra hámarks­hraða, sam­kvæmt þess­ari nýju hámarks­hraða­á­ætlun borg­ar­innar.

Formaður ráðs­ins og borg­ar­full­trúi Pírata, Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, sagði frá þess­ari sam­þykkt ráðs­ins á Twitter í dag. Tillagan fær­ist nú áfram í borg­ar­kerf­inu og fer fyrir borg­ar­ráð og svo borg­ar­stjórn í fram­hald­inu.

Samkvæmt skýr­ing­ar­myndum sem hún birtir þar felur til­lagan í sér að hámarks­hraði á fjöl­mörgum götum, til dæmis Suð­ur­lands­braut, Bústaða­vegi, Snorra­braut, Löngu­hlíð, Grens­ás­vegi og svo mætti áfram lengi telja, verði lækk­aður úr 60 eða 50 km/klst niður í 40 km/klst.

Sjá má sam­an­burð á núver­andi stöðu og því sem fellst í til­lög­unni á mynd­unum hér að neðan:

400 ný „30 km hlið“ og 700 yfirborðsmerkingar

„Það var stór­kost­legt átak að ná Hring­braut­inni niður í 40 km. Í dag munu miklu fleiri íbúar í öllum hverfum borg­ar­innar fá að njóta þess sama,“ segir Sig­ur­borg Ósk á Twitter.

[adspot]

Hún segir að til þess að fylgja nýja hraða­plan­inu eftir verði settir upp yfir 400 ný „30 km hlið“ upp á götum borg­ar­innar og 700 nýjar yfir­borðs­merk­ingar, með nýjum hámarks­hraða gatna. Götur verði einnig þrengdar og gróðri bætt í götu­rými, auk þess sem hjóla­stígar verði lagðir sam­síða götu.

„Lægri hraði = færri slys. Reykja­vík­ur­borg á ekki að vera bíla­borg heldur borg á for­sendum fólks­ins,“ skrifar Sig­ur­borg Ósk.

Markmiðið er að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum innan borgarinnar

Nánar er fjallað um nýja hámarks­hraða­á­ætlun Reykja­víkur í til­kynn­ingu á vef borg­ar­innar í dag. Þar segir að hún byggi á Umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun Reykja­víkur 2019-2023 sem sam­þykkt var af skipu­lags- og sam­göngu­ráði og borg­ar­ráði síð­asta sumar. Tillagan hafi verið kynnt sér­stak­lega fyrir full­trúum Strætó og full­trúum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fengu hana einnig til umsagnar. Íbúaráð borg­ar­innar fengu einnig senda áætlun við­kom­andi borg­ar­hluta til umsagnar. Hægt er að kynna sér umsagnir og svör við þeim hér.

„Markmið hámarks­hraða­á­ætl­un­ar­innar er að stuðla að bættu umferð­ar­ör­yggi í sam­ræmi við áherslur umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætl­unar borg­ar­innar. Það er yfir­lýst mark­mið Reykja­vík­ur­borgar að eng­inn slas­ist alvar­lega eða lát­ist í umferð­ar­slysum innan borg­ar­innar. Það er því ekki rétt­læt­an­legt að fórna heilsu veg­far­enda fyrir aðra hags­muni sam­fé­lags­ins, eins og til dæmis minni tafir. Sé ætl­unin að koma í veg fyrir alvar­leg slys á fólki í umferð­inni þar sem ólíkir ferða­mátar mæt­ast verður blöndun ólíkra ferða­máta að vera á for­sendum gang­andi og hjólandi veg­far­enda. Eitt skref í þá átt er að stuðla að lágum umferð­ar­hraða við þær aðstæður,“ segir í til­kynn­ing­unni á vef borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár