Tillaga um póstnúmerabreytingu í Bryggjuhverfi afturkölluð

Ekkert virð­ist ætla að verða af hug­myndum íbúa­ráðs Graf­ar­vogs um að breyta póst­núm­eri Bryggju­hverfis úr 110 í 112. Tillaga um þá breyt­ingu hefur verið aft­ur­kölluð, en ekki reynd­ist ein­hugur á meðal íbúa um málið.

Tillaga íbúaráðs Grafarvogs um að taka upp póstnúmerið 112 í Bryggjuhverfi hefur verið dregin til baka.
Tillaga íbúa­ráðs Graf­ar­vogs um að taka upp póst­núm­erið 112 í Bryggju­hverfi hefur verið dregin til baka. Mynd: Reykjavíkurborg

Íbúaráð Graf­ar­vogs hefur dregið til baka til­lögu sína um breyt­ingu á póst­núm­eri Bryggju­hverfis, sem lögð var fram í upp­hafi árs­ins. Málið mætti and­stöðu á meðal íbúa í Bryggju­hverfi og þarfn­ast frek­ari umræðu.

Kjarninn sagði frá því fyrir tæpum mán­uði að íbúa­ráðið hefði beint til­lögu til borg­ar­ráðs um að óskað yrði eftir við því við póst­núm­era­nefnd Íslands­pósts að Bryggju­hverfið fengið póst­núm­erið 112, í stað þess að til­heyra enn póst­núm­eri 110.[links]

„Við til­heyrum Graf­ar­vogi að öllu leyt­i,“ sagði Berg­lind Eyj­ólfs­dóttir, íbúi í hverf­inu og full­trúi Sam­fylk­ingar í íbúa­ráði Graf­ar­vogs þá við Kjarnann, innt eftir útskýr­ingum á til­lög­unni.

Hún sagði um væri að ræða leið­rétt­ingu til þess að eyða mis­skiln­ingi sem stundum yrði um hvar íbúar hverf­is­ins skuli sækja þjón­ustu.

Í fyrri til­lögu íbúa­ráðs­ins sagði að í skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar fylgdi Bryggju­hverfið Graf­ar­vogi. Því væri „eðli­leg­ast að hverfið fái sama póst­númer og önnur hverfi í Graf­ar­vog­i“, sem er 112, en yrði ekki lengur með póst­núm­erið 110, sem er oft­ast tengt við Árbæ­inn.

Ekki einhugur á meðal íbúa

Þetta féll hins vegar ekki alls staðar í kramið. Hið minnsta ekki hjá Bryggju­ráði, íbúa­sam­tökum Bryggju­hverfis, sem deildi frétt Kjarnans frá 11. jan­úar á Facebook-síðu sinni með orð­unum: „Hvurs­lags enda­leysa er þetta. Höfðinn er með póst­númer 110 og við erum sam­kvæmt skipu­lagi hluti af því svæði.“

[adspot]

Einn íbúi í hverf­inu bætti við í athuga­semd: „Missti ég af þess­ari könnun ...hvar var hún aug­lýst..eru ein­hverjir sem ákveða fyrir alla????“

Tekið fyrir aðalfundi Bryggjuráðs

Í nýrri til­lögu íbúa­ráðs Graf­ar­vogs um aft­ur­köllun fyrri til­lögu segir að miklar umræður hafi skap­ast um málið í Bryggju­hverfi og ákveðið hafi verið að taka málið fyrir á aðal­fundi áður­nefnds Bryggju­ráðs.

„Var nið­ur­staða þeirra fundar að óskað yrði eftir því við íbúa­ráð Graf­ar­vogs að draga til­lög­una til baka. Vakin var athygli á því að frek­ari umræðu væri þörf í hverf­inu ef fara ætti í breyt­ingar á póst­núm­eri hverf­is­ins. Vill því íbúa­ráð Graf­ar­vogs verða við þess­ari beiðni íbúa og draga upp­haf­lega til­lögu um breyt­ingu á póst­núm­eri til baka,“ segir í nýrri til­lögu íbúa­ráðs Graf­ar­vogs, sem sam­þykkt var á fundi þess 3. febr­úar.

Ekki er því útlit fyrir að Bryggju­hverfið fær­ist úr póst­núm­eri 110 og yfir í póst­númer 112 á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár