Íbúar í Bryggjuhverfinu vilja skipta um póstnúmer

„Við til­heyrum Graf­ar­vogi að öllu leyti,“ segir full­trúi Sam­fylk­ingar í íbúa­ráði Graf­ar­vogs. Ráðið sam­þykkti í síð­ustu viku til­lögu um að póst­núm­er­inu í Bryggju­hverf­inu verði breytt úr 110 í 112.

Frá Bryggjuhverfi. Íbúar þar vilja fá póstnúmerið 112.
Frá Bryggju­hverfi. Íbúar þar vilja fá póst­núm­erið 112. Mynd: Reykjavíkurborg

Íbúaráð Graf­ar­vogs sam­þykkti á fundi sínum í síð­ustu viku til­lögu um að óska eftir því við póst­núm­era­nefnd Íslands­pósts að póst­núm­eri Bryggju­hverfis verði breytt, úr 110 í 112. Til­lög­unni var vísað áfram til borg­ar­ráðs.

Í til­lögu íbúa­ráðs­ins kemur fram að óskað sé eftir þess­ari breyt­ingu vegna óska frá íbúum Bryggju­hverfis. Í skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar fylgi Bryggju­hverfið Graf­ar­vogi. Því sé „eðli­leg­ast að hverfið fái sama póst­númer og önnur hverfi í Graf­ar­vogi“, sem er 112, en verði ekki lengur með póst­núm­erið 110, sem er tengt við Árbæinn.

Fasteignaauglýsingar og kirkjuumdæmi

Berglind Eyj­ólfs­dóttir, íbúi í Bryggju­hverf­inu og vara­borg­ar­full­trúi sem situr í íbúa­ráði Graf­ar­vogs fyrir hönd Sam­fylk­ingar, segir í sam­tali við Kjarnann að fyrst og fremst sé íbúa­ráðið að óska eftir þess­ari breyt­ingu til þess að eyða mis­skiln­ingi um að Bryggju­hverfið til­heyri Árbænum.

Hún tekur sem dæmi, í sam­tali við blaða­mann, að þegar fólk fari inn á fast­eigna­síður fjöl­miðl­anna og hafi hug á að skoða íbúðir í Graf­ar­vogi stimpli fólk inn póst­núm­erið 112. Þá sjá­ist ekki eign­irnar sem séu til sölu í Bryggju­hverf­inu. Þó sé það svo að hverfið sé hluti Graf­ar­vogs hvað skipu­lag borg­ar­innar og þjón­ustu varðar.

[adspot]

„Við til­heyrum Graf­ar­vogi að öllu leyti,“ segir Berglind og nefnir að íbúar í hverf­inu séu í Graf­ar­vogs­sókn og börnin í hverf­inu sæki skóla yfir Gull­in­brúna. Margir íbúar telji hins vegar til dæmis að hverfið til­heyri Árbæj­ar­sókn, vegna póst­núm­ers­ins. Þetta sé því bara leið­rétt­ing til að eyða mis­skiln­ingi sem stundum verði um hvar íbúar hverf­is­ins skuli sækja þjón­ustu.

Bryggjuhverfið teygir úr sér og stækkar

Fyrstu húsin í Bryggju­hverf­inu risu skömmu fyrir alda­mót og um þessar mundir er verið að byggja fjölda íbúða í vest­ur­hluta hverf­is­ins, sem verið hefur á teikni­borð­inu um ára­bil.

Í fyll­ingu tím­ans verður Bryggju­hverfið svo nátengt þeirri miklu upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis sem borg­ar­yf­ir­völd áætla að verði næsta ára­tug á Ártúns­höfð­anum og í Elliða­ár­vogi, þar sem iðn­að­ar­svæði víkur fyrir nýrri íbúa­byggð.

Gert er ráð fyrir að íbúðir í nýju borg­ar­hverfi á Ártúns­höfða verði allt að 6.000 tals­ins þegar hverfið verður að fullu upp­byggt. Það eru svipað margar íbúðir og eru í öllum Graf­ar­vog­inum í dag. Ráðgert er að þrjú skóla­hverfi verði í nýja borg­ar­hlut­anum, eins og sagði frá í umfjöllun Kjarnans í haust.[links]

Ártúns­höfð­inn allur, auk Bryggju­hverfis, er í póst­núm­eri 110 í dag, sem nær líka yfir allan Árbæinn og Norð­linga­holt. Handan Elliða­ár­vogar er svo að rísa íbúða­byggð hins nýja Voga­hverfis, sem er í póst­núm­eri 104, en það póst­númer teygir sig svo Vogana og langt vestur í Laug­ar­dal.

Nýja hverfið á Ártúns­höfða og í Voga­byggð verður þannig á mörkum þriggja póst­núm­era, 112, 110 og 104. Berglind segir við blaða­mann að það hafi ekk­ert komið fram um það hvort Ártúns­höfð­inn og Elliða­ár­vog­ur­inn fái kannski í fyll­ingu tím­ans sitt eigið póst­númer og hvort Bryggju­hverfið núver­andi fylgi þá þar með eða verði áfram hluti Graf­ar­vogs­hverfis. Það verði allt að koma í ljós.

En eins og mál standa nú óskar íbúa­ráðið í Graf­ar­vogi þess að póst­núm­eri Bryggju­hverf­is­ins verði breytt, sem áður segir. Tillagan hefur verið send til borg­ar­ráðs, sem mun taka málið fyrir og svo mögu­lega beina til­lög­unni áfram til póst­núm­era­nefndar Íslands­pósts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár