Svipað margar íbúðir verði á Ártúnshöfða og eru í öllum Grafarvogi í dag

Gert er ráð fyrir því að á Ártúns­höfða verði árið 2040 svipað margar íbúðir og eru í öllum Graf­ar­vogi í dag. Búist er við því að þrjú skóla­hverfi verði á Höfðanum, sam­kvæmt upp­færðu aðal­skipu­lagi borg­ar­innar til 2040 sem er komið í kynn­ingu.

Ártúnshöfði og Elliðaárvogur verða í forgangi þegar kemur að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavíkurborg fram til ársins 2030.
Ártúns­höfði og Elliða­ár­vogur verða í for­gangi þegar kemur að upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Reykja­vík­ur­borg fram til árs­ins 2030. Mynd: Reykjavíkurborg/Kjarninn

Gert er ráð fyrir að íbúðir í nýju borg­ar­hverfi á Ártúns­höfða verði allt að 6.000 tals­ins þegar hverfið verður að fullu upp­byggt. Það eru svipað margar íbúðir og eru í öllum Graf­ar­vogi í dag. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í til­lögum að breyt­ingum á aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar, sem eru nú komnar form­lega í kynn­ingu.

Í til­lög­unum, sem fram­lengja stefnu núgild­andi aðal­skipu­lags með breyt­ingum fram til árs­ins 2040, segir að mótun þessa nýja borg­ar­hluta marki mikil tíma­mót, að því leyti að um sé að ræða „nýja gerð hverfis í Reykja­vík“, í þeirri merk­ingu að Ártúns­höfð­inn verði í raun fyrsta heild­stæða borg­ar­hverfið í Reykja­vík sem grund­vall­ist á þeirri alþjóð­legu sýn á sjálf­bæra borg­ar­þróun sem hafi verið að mót­ast á síð­ustu árum og ára­tugum.

Þar segir einnig að það séu „breyttir tímar“ frá því að íbúð­ar­hverfin í Graf­ar­vogi voru skipu­lögð á hátt í 400 hekt­ara land­svæði í lok síð­ustu aldar og rúm­uðu um 6.000 íbúðir. Ártúns­höfð­inn muni rúma svip­aðan fjölda íbúða, þrátt fyrir að svæðið sé ein­ungis um 80 hekt­arar að stærð, eða innan við fjórð­ungur af skipu­lögðu land­rými Graf­ar­vogs. Í til­lög­unni segir að lík­legt sé að þessi upp­bygg­ing kalli á bygg­ingu þriggja nýrra grunn­skóla í hverf­inu, en til sam­an­burðar hafi Graf­ar­vog­ur­inn verið skipu­lagður sem heil átta skóla­hverfi.

Þróun þessa nýja borg­ar­hverfis á Ártúns­höfða og í Elliða­ár­vogi á að verða í for­gangi við upp­bygg­ingu borg­ar­innar fram til árs­ins 2030, sam­kvæmt mark­miðum upp­færðs aðal­skipu­lags.

Veruleg fjölgun íbúða víða

Í gild­andi aðal­skipu­lagi er gert ráð fyrir um það bil 2.800 íbúðum í nýja íbúð­ar­hverf­inu á Ártúns­höfða og er því gert ráð fyrir veru­legri fjölgun íbúða miðað við fyrri stefnu. Ártúns­höfð­inn er ekki eini upp­bygg­ing­ar­stað­ur­inn í borg­inni þar sem sú ætlan er til staðar, en áform borg­ar­yf­ir­valda um fjölgun íbúða á þegar skil­greindum upp­bygg­ing­ar­svæðum fyrir íbúð­ar­byggð og bland­aða byggð hafa reglu­lega verið til umfjöll­unar í fréttum vegna skipu­lags­vinnu á und­an­förnum árum.

Þessar breyt­ingar eru dregnar saman í kynn­ingu á breyttu aðal­skipu­lagi borg­ar­innar. Á Kringlu­reitnum er til dæmis gert ráð fyrir að íbúðir geti orðið allt að 1.000 tals­ins í stað 150, en aukn­ing atvinnu­hús­næðis minnkar þar að sama skapi. Á upp­bygg­ing­ar­reit í Skeif­unni er gert ráð fyrir að íbúðir get orðið allt að 750 tals­ins í stað 500 áður og þar á það sama við, gert er ráð fyrir að aukn­ing atvinnu­hús­næðis minnki á móti.

Í Knarr­ar­vogi í nýja Voga­hverf­inu er svo gert ráð fyrir því að íbúðum geti fjölgað upp í allt að 600, sér­stak­lega vegna þess að gert er ráð fyrir því að Sæbraut verði sett í stokk á eins kíló­met­ers kafla sem bætir hljóð­vist og eykur land­rými sem getur farið undir íbúðir og annað hús­næði. Í Gufunesi er ráð­gert að íbúðum geti fjölgað um allt að 500 miðað við eldri stefnu, með stækkun mið­svæðis.

Um 25 ný svæði undir íbúðarbyggð boðuð

Í aðal­skipu­lag­inu eru alls yfir 100 svæði í borg­inni sem ætluð eru undir nýja íbúð­ar­byggð, en þar af eru um 25 ný svæði boðuð í þeim breyt­inga­til­lögum sem nú eru lagðar fram. Þetta eru bæði smáir upp­bygg­ing­ar­reitir í eldri hverfum, ný skóla­hverfi eins og í Skerja­firði, Keldna­landi og Voga­byggð og svo nýir heilir borg­ar­hlutar, eins og Ártúns­höfð­inn og Vatns­mýrin.

Yfir 90 pró­sent þess­ara upp­bygg­ing­ar­svæða eru við fyr­ir­hug­aða Borg­ar­línu eða aðrar öfl­ugar almenn­ings­sam­göngur og sama hlut­fall upp­bygg­ing­ar­svæð­anna er í göngu­færi við grunn­skóla. Stefna Reykja­vík­ur­borgar er að 1.000 íbúðir verði byggðar á hverju ári að með­al­tali fram til árs­ins 2040, í þéttri og bland­aðri byggð innan núver­andi vaxt­ar­marka borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár