Apple og Google eru að yfirfara íslenska smitrakningaforritið

Banda­rísku stór­fyr­ir­tækin Apple og Google eru að yfir­fara snjall­símafor­ritið Rakning C-19, sem heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa látið smíða til að auð­velda smitrakn­ingu á Íslandi. Appið verður aðgengi­legt þegar þess­ari rýni er lokið.

Alma Möller landlæknir á fundinum í dag.
Alma Möller land­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Snjall­símafor­ritið Rakning C-19, sem ætlað er að auð­velda smitrakn­ingu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, er til­búið og lands­menn munu brátt geta sótt for­ritið fyrir bæði iPhone og Android-snjall­síma.

Forritið er í skoðun hjá bæði Apple og Google sem munu svo dreifa for­rit­inu í gegnum net­versl­anir sínar, sam­kvæmt því sem fram kom í máli Ölmu Möller land­læknis á dag­legum upp­lýs­inga­fundi vegna veiru­far­ald­urs­ins í dag.

„Alveg eins og við viljum vanda okkur vilja Apple og Google gera það líka og eru að rýna til­gang þess og öryggi, svo þetta tekur ein­hvern tíma en við erum að nýta allar leiðir til að flýta þessu sem mest,“ sagði Alma, en til­kynn­ing verður send út um leið og for­ritið verður aðgengi­legt.

Rúm vika er síðan hönnun á smitrakn­inga­for­rit­inu hófst, en sam­bæri­legum for­ritum hefur verið beitt til þess að auð­velda smitrakn­ingu í öðrum ríkjum, til dæmis í Singapúr og Suður-Kóreu. Smitrakn­ing með hefð­bundnum leiðum er bæði tíma- og mann­afla­frek, auk þess sem erfitt getur reynst fyrir fólk sem reyn­ist sýkt af COVID-19 að rifja ferðir sínar nákvæm­lega upp.

Íslensk fyrirtæki buðust til að hjálpa til við þróunina

Land­lækn­is­emb­ættið ber ábyrgð á for­rit­inu, en íslensku fyr­ir­tækin Aranja, Kolibri, Stokkur, Sensa og Samsýn auk for­rit­ara frá Íslenskri erfða­grein­ingu og Syndis buðu fram aðstoð sína við smíð­ina án end­ur­gjalds, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef emb­ættis land­læknis. Þar segir einnig að í hönn­un­arteym­inu hafi einnig verið reynt fólk sem hefur starfað í tugi ára við upp­lýs­inga­ör­yggi og per­sónu­vernd.

„Notkun apps­ins byggir á sam­þykki not­enda, bæði til að taka appið í notkun og til miðl­unar upp­lýs­inga síðar meir ef þess ger­ist þörf, en þetta er kallað tvö­falt sam­þykki. Appið notar GPS stað­setn­ing­ar­gögn og eru upp­lýs­ingar um ferðir við­kom­andi ein­göngu vistaðar á síma not­anda. Ef not­andi grein­ist með smit og rakn­ingateymið þarf að rekja ferðir þá fær not­andi beiðni um að miðla þeim upp­lýs­ingum til rakn­ingateym­is­ins.

[links]

Um leið og smitrakn­ingateymið biður um aðgang að gögn­unum mun það einnig óska eftir kenni­tölu við­kom­andi svo ekki fari á milli mála hver er á bak­við gögnin. Þannig er tryggt að eng­inn hefur aðgang að þessum upp­lýs­ingum nema að not­and­inn vilji það. Stað­setn­ing­ar­gögn­unum verður svo eytt um leið og rakn­ingateymið þarf ekki lengur á þeim að halda,“ segir um virkni for­rits­ins í til­kynn­ingu á vef land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

„Hönn­un­arteymið var í reglu­legu sam­bandi við Per­sónu­vernd til að upp­lýsa um verk­efnið og eru öllum þessum aðilum færðar miklar þakkir. Öryggi kerf­is­ins hefur nú stað­ist úttekt óháðs aðila,“ segir einnig á vef emb­ættis land­læknis.

Embættið segir að því fleiri sem sæki appið, þeim mun betur muni það gagn­ast smitrakn­ingateym­inu, en einnig segir að appið muni gagn­ast við „aðstoða alla, sem velja að taka þátt, við að rifja upp ferðir sínar.“

Biðlað er til almenn­ings um að sækja for­ritið og vista á símum sínum þegar það verður aðgengi­legt, í þeirri við­leitni að halda áfram í því verk­efni að lág­marka skað­ann af COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár