Áfram 200 manna fjöldatakmörk en opnað á 500 manna viðburði með hraðprófum

Lítið breyt­ist í opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum fram til 17. sept­em­ber, en þó er horft til þess að stærri við­burðir verði gerðir mögu­legir með notkun hrað­prófa.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­völd hafa ákveðið að hrað­próf verði notuð til þess að gera allt að 500 manna við­burðum kleift að fara fram og þetta verður útfært nánar á næstu dögum.

Ekki liggur fyrir um hvort hrað­prófin verði nið­ur­greidd af hinu opin­bera, sam­kvæmt því sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði í sam­tali við frétta­mann Stöðvar 2 eftir rík­is­stjórn­ar­fund dags­ins.

Áfram verða 200 manna fjölda­tak­mark­anir almennt í gildi í sam­fé­lag­inu til 17. sept­em­ber, en þá á ný reglu­gerð að renna út að óbreyttu.

Á meðal ann­arra breyt­inga sem rík­is­stjórnin ákvað á gild­andi sótt­varna­ráð­stöf­unum, sem renna út á morgun, er það að reglan um eins met­ers fjar­lægð­ar­tak­mark­anir fellur niður á sitj­andi við­burðum.

Auk þess verða full afköst nú leyfð í sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðum, sem mega í dag ein­ungis taka á móti 75 pró­sentum af þeim fjölda fólks sem stað­irnir hafa starfs­leyfi til þess að taka á móti.

Til við­bótar mun fjöldi þeirra sem mega koma saman til íþrótta­æf­inga fær­ast úr 100 upp í 200 og hið sama mun gilda um veit­inga­staði og skemmti­staði, þar munu 200 manns mega koma saman en hámarkið und­an­farnar vikur hefur verið bundið við 100 manns.

Ekki eru boð­aðar neinar breyt­ingar á opn­un­ar­tímum skemmti­staða, sem þýðir að þeir munu enn um sinn þurfa að loka dyrum sínum kl. 23 á kvöldin og tæma stað­ina fyrir mið­nætti.

Grímu­skyldan verður óbreytt, að sögn Svan­dísar, sem sagði rík­is­stjórn­ina hafa farið að ráð­legg­ingum sem Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir setti fram í minn­is­blaði sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár