Ríkissjóður greiðir fyrir hraðprófin

Rík­is­stjórnin stefnir að því að hrað­próf, sem til stendur að nýta svo halda megi stærri við­burði, verði nið­ur­greidd að fullu. Grímu­skylda á íþrotta­við­burðum utandyra verður einnig afnumin.

Áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra munu ekki lengur þurfa að bera grímu er þeir sitja í sætum sínum.
Áhorf­endur á íþrótta­við­burðum utandyra munu ekki lengur þurfa að bera grímu er þeir sitja í sætum sínum. Mynd: kjarninn_myndir

Samkvæmt til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í dag er áætlað að fram­kvæmd hrað­prófa verði komin á fullt skrið um miðjan sept­em­ber­mánuð og að prófin verði gjald­frjáls fyrir not­endur, sem þýðir að sá kostn­aður sem fellur til þeirra vegna verði greiddur úr rík­is­sjóði.

Ráðu­neytið und­ir­býr nú að leita samn­inga um fram­kvæmd hrað­próf­anna, sem eiga að gera það mögu­legt að allt að 500 manns verði í sama sótt­varna­hólfi á stærri við­burðum.[links]

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að fundað hafi verið með hags­muna­að­ilum sem standa fyrir stórum við­burðum um frek­ari útfærslu og að ákvörð­unin hafi verið tekin um að á við­burðum þar se hrað­próf eru nýtt verði fólki heim­ilt að taka niður grímu þegar það situr.

Einnig verður börnum á leik- og grunn­skóla­aldri heim­ilt að mæta á slíka við­burði án þess að kraf­ist sé nið­ur­stöðu úr hrað­prófi.

Grímuskylda afnumin á viðburðum utandyra

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins eru einnig kynntar frek­ari til­slak­anir á sótt­varna­ráð­stöf­unum, sem taka eiga gildi á mið­nætti. Grímu­skylda á íþrótta­við­burðum utandyra verður afnumin og gildi þá einu hvort hægt sé að tryggja eins metra fjar­lægð á milli sitj­andi áhorf­enda eða ekki.

[adspot]

Athygli vakti fyrir rúmri viku er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var grímu­laus á KR-vell­inum að horfa á leik heima­kvenna gegn Víkingi í Lengju­deild kvenna.

Katrín sagði við blaða­menn eftir rík­is­stjórn­ar­fund dag­inn eftir að hún hefði talið að á leik ut­an­dyra, þar sem fjar­lægð á milli fólks væri tryggð, þyrfti ekki að bera grímu. For­sæt­is­ráð­herra sagði að henni þætti leið­in­legt að hafa brotið regl­urnar með þessum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár