„Temprun“ veirunnar er nýja bælingin

Rík­is­stjórnin hefur markað nýja stefnu um opin­berar sótt­varna­ráð­staf­anir, sem sögð er að veru­legu leyti í sam­ræmi við lang­tíma­sýn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis, sem sett var fram fyrir skemmstu.

Ríkisstjórnin útskýrir nýja stefnu sína í opinberum sóttvarnaráðstöfunum í tilkynningu í dag.
Rík­is­stjórnin útskýrir nýja stefnu sína í opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum í til­kynn­ingu í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­völd ákváðu í dag að halda áfram opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum til þess að hefta útbreiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Litlar breyt­ingar verða gerðar fram til 17. sept­em­ber, þrátt fyrir að opnað sé á að allt að 500 manns geti komið saman á við­burðum ef þeir fram­vísi nið­ur­stöðum hrað­prófs við inn­göngu og met­ers­reglan á sitj­andi við­burðum verði afnumin, auk ann­arra mildra til­slak­ana.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins er sú hug­mynda­fræði sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að beita á næst­unni útskýrð, en stjórnin seg­ist vera að fara eftir „aðferða­fræði temprunar“ hvað útbreiðslu veirusmita varðar.

Hvað er temprun?

Stjórn­völd segja að „temprun“ á útbreiðslu smita virð­ist ákjós­an­leg­asta og ábyrg­asta leiðin til þess að koma sam­fé­lag­inu smám saman úr hættu­á­standi vegna COVID-19. Áður en sam­fé­lagið varð jafn bólu­sett og raunin er nú var stefnan sú að „bæla“ veiruna niður með hörðum aðgerðum og ekki leyfa smitum að dreifast um sam­fé­lagið.[links]

Samkvæmt lýs­ingum stjórn­valda er nú stefnt að því að „við­hafa aðgerðir og ráð­staf­anir sem hægja á útbreiðslu veirunnar“ og segir að þessi aðferð sé „að veru­legu leyti í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag sótt­varna á Íslandi.“

Þetta er þannig milli­vegur á milli þess að bæla niður smit með mjög hörðum aðgerðum og þess að leyfa veirusmitum að ganga óheftum yfir sam­fé­lagið.

Er þetta komið til að vera um lengri tíma?

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að aðferða­fræði temprunar gildi í „tak­mark­aðan tíma,“ nema alvar­legar breyt­ingar verði í eðli far­ald­urs­ins, til dæmis vegna nýrra afbrigða.

„Temprun smita felur í sér að tekin eru skref í átt að frek­ari opnun en álag vegna veik­inda dreif­ist á lengra tíma­bil heldur en ef aðgerðir eru aflagðar í einu vet­fangi,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Þar segir enn­fremur að á fundum rík­iss­stjórn­ar­innar að und­an­förnu með „fjöl­breyttum hópi sér­fræð­inga og hags­muna­að­ila“ hafi komið fram „rík sjón­ar­mið um mik­il­vægi þess að halda sam­fé­lag­inu gang­andi og tak­mörk­unum sem minnstum í ljósi þess að bólu­setn­ing veitir góða vernd gegn alvar­legum veik­indum.“

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að „aug­ljós­lega“ þurfi áfram að taka mið af stöðu far­ald­urs­ins og nýjum gögnum og upp­lýs­ingum sem fram munu koma við allar ákvarð­anir, en í meg­in­dráttum sé „stefnt að því að við­hafa aðgerðir sem hægja á útbreiðslu veirunnar þegar ástæða er til“.

Sam­fé­lagið þurfi þó líka „að laga sig að því að lifa með veirunni án þess að hún hafi of mikil áhrif á dag­legt líf.

Smám saman verði hægt að slaka á

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að sam­hliða því að Land­spít­al­inn og heil­brigð­is­kerfið í víð­ara sam­hengi verði styrkt til þess að bregð­ast við alvar­legum veik­indum og öðrum aðgerðum sem þörf sé að grípa til, sé sýnin sú að „leið temprunar feli í sér sífellt minni tak­mark­anir eftir því sem ónæmi og mót­stöðu­þrek vex.“

„Þannig verði smám saman unnt að draga úr kröfum um sýna­töku, sótt­kví og ein­angrun, fjölda­tak­mark­anir verði rýmkaðar, grímunotkun verði gerð val­kvæð, áhersla aukin á ein­stak­lings­bundna smit­gát og sér­stakar tak­mark­anir á opn­un­ar­tíma veit­inga- og skemmti­staða verði afnumdar í áföngum,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár