Sóttvarnalæknir leggur upp næstu mánuði

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur lagt fram minn­is­blað til ráð­herra þar sem hann fer yfir fram­tíð­ar­sýn sína á aðgerðir á landa­mærum og inn­an­lands næstu mán­uði. Hann sér ekki fyrir sér tak­markana­laust Ísland á meðan far­ald­ur­inn geisar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir teiknar í minnisblaði sínu upp ákveðna framtíðarsýn um faraldurinn og aðgerðir vegna hans innanlands.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir teiknar í minn­is­blaði sínu upp ákveðna fram­tíð­ar­sýn um far­ald­ur­inn og aðgerðir vegna hans inn­an­lands. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir seg­ist telja ólík­legt að hægt verði að búa við tak­marka­laust sam­fé­lag á Íslandi á meðan COVID-19 geisar í heim­inum og hefur lagt til við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra bæði aðgerðir inn­an­lands og á landa­mærum til næstu mán­aða hið minnsta.

Það gerði hann í minn­is­blaði til ráð­herra sem sent var þann 11. ágúst, fyrir viku síðan. Þar kemur fram að hann telji mik­il­væg­asta þátt sótt­varna gegn COVID-19 að lág­marka flutn­ing veirunnar hingað til lands með far­þegum. Landamæra­að­gerðir eru að hans mati sömu­leiðis for­senda þess að hægt verði að við­hafa lág­marks­tak­mark­anir inn­an­lands. Aðgerð­irnar sem Þórólfur leggur til inn­an­lands eru keim­líkar þeim sem eru nú í gildi.

Tekið skal fram að ekki er búið að taka neinar ákvarð­anir sem byggja á þessu skjali, en rík­is­stjórnin ræddi það þó á fundi sínum fyrir hádegi í dag og í fram­hald­inu var það afhent fjöl­miðlum.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kall­aði þessar til­lögur sótt­varna­læknis umræðu­grund­völl til lengri tíma, í umræðu­þætt­inum Pall­borð­inu á Vísi í dag.

„Þetta er rosa­lega mik­il­vægt plagg frá sótt­varna­lækni inn í umræð­una og við eigum að horfa á þetta með þeim augum að þarna talar maður sem hefur mesta þekk­ingu af okkur öllum á far­öldrum, hvernig þeir virka og hvar við erum stödd í þess­ari bylgju núna og hvers að vænta inn í næstu mán­uði,“ sagði Svandís í þætt­inum.

Allir komufarþegar verði skimaðir

Þórólfur segir að hafa þurfi í huga að ekki sé hægt að úti­loka alveg með aðgerðum á landa­mærum að kór­ónu­veiran ber­ist hingað til lands. Áhættuna sé hins vegar hægt að lág­marka með aðgerð­unum sem hann leggur til, sem „ekki ættu að vera of íþyngj­andi.“

Sótt­varna­lækn­ir­inn leggur til að far­þegar sem hingað koma verði allir krafðir um nei­kvæða nið­ur­stöðu úr ýmist PCR-prófi eða hrað­prófi, óháð því hvort þeir séu bólu­settir eða ekki.

Þá verði allir far­þegar sem hingað koma, börn þar með talin, skimuð við kom­una til lands­ins. Þeir sem ekki geti fram­vísað vott­orðum um nei­kvæð próf við kom­una til lands­ins þurfi að und­ir­gang­ast tvö PCR-próf með 5 daga sótt­kví á milli.

Að auki leggur Þórólfur til að skoðað verði hvort ástæða gæti verið til að taka í notkun hrað­próf í stað PCR-prófa á landa­mær­unum, ef sýnt þykir að grein­ing­ar­geta vegna PCR-prófa muni ekki duga við skimanir á landa­mærum.

„Ef ekki verður hægt að anna ofan­greindum skimunum vegna fjölda ferða­manna þá legg ég til að leitað verði leiða til tak­marka fjölda ferða­manna við þann fjölda sem okkar sótt­varna­ráð­staf­anir ráða við,“ segir Þórólfur í minn­is­blaði sínu.

Leggur til svipaðar aðgerðir og eru nú í gildi innanlands

„Ég tel ólík­legt að hægt verði að búa hér við tak­marka­laust sam­fé­lag á meðan að COVID-19 geisar í heim­inum. Aldrei verður hægt að tryggja til fulls að SARS-CoV-2 ber­ist ekki inn erlendis frá þrátt fyrir góðar sótt­varna­að­gerðir á landa­mær­unum. Ef engar tak­mark­anir eru til staðar inn­an­lands þá mun hver og ein veira sem sleppur yfir landa­mærin geta sett af stað far­aldur í slíku umhverfi. Auk þess verða aldrei allir bólu­settir og vörn hjá bólu­settum getur dvínað með tím­anum. Því tel ég að ákveðnar tak­mark­anir þurfi ætíð vera til staðar til að koma í veg fyrir að slíkt ger­ist. Slíkar tak­mark­anir þurfa ekki að vera íþyngj­andi og eiga að geta tryggt hér eðli­legt líf,“ segir í minn­is­blaði Þórólfs um þær ráð­staf­anir sem hann leggur til inn­an­lands næstu mán­uði.

Þar er margt mjög svipað því sem er í gildi í dag og þar til að minnsta kosti 27. ágúst.

Þórólfur leggur til almenn fjölda­tak­mörk, sem gætu mið­ast við 200 manns. Stærri við­burðir gætu þó verið leyfðir, gegn því að gestir sýni fram á nei­kvætt PCR-próf eða antigen hrað­próf sem ekki mætti vera eldra en 24-48 klst gam­alt. „Benda má á reynslu Dana af slíku fyr­ir­komu­lagi,“ segir í minn­is­blaði sótt­varna­læknis.

[adspot]

Hann leggur til að smitrakn­ingu, ein­angrun á smit­aða og sótt­kví hjá útsettum verði áfram beitt og sagði reyndar einnig að til­laga sem fram hefur komið um að hætta sótt­kví bólu­settra yrði að hans mati „meiri­háttar mis­tök“ í sam­tali við mbl.is í dag.

Sótt­varna­læknir segir að eins metra nánd­ar­regla ætti almennt að gilda áfram, nema ef til vill á við­burðum þar sem gestir sitja og eru með grímu.

Grímu­skylda verði svo áfram við ákveðnar aðstæður, sér­stak­lega inn­an­húss þar sem margir koma saman, ekki er hægt að tryggja nánd­ar­reglu eða hús­næðið illa loft­ræst.

Þórólfur leggur til að veit­inga­staðir, skemmti­staðir og barir verði opnir til kl. 23 á kvöldin, eins og er í dag. Engar tak­mark­anir verði á skóla­starfi en áhersla lögð á almennar sótt­varnir og sér­stak­lega verði hugað að loft­ræst­ingu og loft­ræsti­kerfum í skóla­starfi og þar sem við­kvæmir hópar eru, t.d. á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Þórólfur leggur til að þessar aðgerðir „verði almennar tak­mark­anir sem verði við líði þar til far­ald­ur­inn verður um garð geng­inn,“ en gera þurfi ráð fyrir því að tíma­bundið þurfi að grípa til hertra aðgerða í sér­stökum til­vikum í stuttan tíma ef upp koma óvænt atvik sem ekki ræðst við með öðrum aðferðum.

Styrking heilbrigðiskerfis

Einnig leggur Þórólfur til að áfalla­þol og geta heil­brigð­is­kerf­is­ins til að ann­ast veika COVID-sjúk­linga verði efld án þess að það komi niður á þjón­ustu við aðra sjúk­linga­hópa, reglu­lega verði skoðað hvort gefa þurfi örv­un­ar­skammta af bólu­efni gegn COVID-19 eða bólu­setja með nýjum bólu­efnum.

Þá þurfi að gera leið­bein­ingar um reglu­bundnar skimanir með PCR eða antigen hrað­grein­ing­ar­prófum í fyr­ir­tækjum og á vinnu­stöðvum. Skylda þurfi reglu­bundnar skimanir á stöðum þar sem við­kvæm starf­semi fer fram, eins og á heil­brigð­is­stofn­unum og hjúkr­un­ar­heim­ilum og styrkja sýkla- og veiru­fræði­deild til þess að þar verði unnt að gera rað­grein­ingar á veirum og bakt­er­íum. Auk þess þurfi að styrkja almanna­varnir sem og sótt­varnir til að tryggja snörp við­brögð ef útbreitt smit kemur upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár