Fyrsta COVID-19 andlátið á Íslandi síðan í maí

Einn sjúk­lingur lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala vegna COVID-19 und­an­far­inn sól­ar­hring. Andlátið er hið fyrsta vegna kór­ónu­veirunnar hér á landi síðan í maí.

Andlát vegna COVID-19 á Íslandi eru nú orðin 31 talsins.
Andlát vegna COVID-19 á Íslandi eru nú orðin 31 tals­ins. Mynd: EPA

Sjúk­lingur lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala á und­an­förnum sól­ar­hring vegna COVID-19. Þetta er fyrsta and­látið sem rakið er til sjúk­dóms­ins hér á landi síðan í maí­mán­uði. Hinn látni var á sjö­tugs­aldri.

Heild­ar­fjöldi þeirra sem lát­ist hafa vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á Íslandi er nú kom­inn upp í 31. Samkvæmt upp­lýs­ingum á töl­fræði­vef yfir­valda liggja átjan manns nú inni á sjúkra­húsi með COVID-19, þar af fjórir á gjör­gæslu­deild.

[adspot]

Alls greindust 103 smit und­an­far­inn sól­ar­hring, þar af 25 hjá óbólu­settum ein­stak­lingum.

Lang­flestir þeirra alls 930 ein­stak­linga sem eru í ein­angrun vegna veirusmits hér á landi eru undir 50 ára aldri, en alls eru níu manns yfir átt­ræðu í ein­angrun og 27 ein­stak­lingar á átt­ræð­is­aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár