Seðlabankastjóri segir bankann vera „rétt að byrja“ að takast á við stöðuna

Ásgeir Jónsson segir að Seðla­bank­inn eigi enn ýmis tól í vopna­búri sínu til að bregð­ast við síversn­andi efna­hags­horfum. Þá segir seðla­banka­stjóri hækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans hafa verið „hár­rétta ákvörðun“, sem nú sýni gildi sitt.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hóf upp­lýs­inga­fund pen­inga­stefnu­nefndar og fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar vegna þeirra aðgerða sem nefnd­irnar kynntu í morgun, vaxta­lækkun og afnáms sveiflu­jöfn­un­ar­aukans, á því að taka það skýrt fram það væri rangt, sem haldið hefði verið fram, að það hefðu verið mis­tök að hækka sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann á síð­asta ári.

Fjár­mála­kerfið hefur gagn­rýnt ákvörðun fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar um hækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans, sem hækk­aði síð­ast um 0,25 pró­sentu­stig í byrjun febr­úar, upp í 2 pró­sent. Yngvi Örn Krist­ins­son hag­fræð­ingur Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja kall­aði þannig eftir því í haust, í blaða­grein, að sú ákvörðun yrði end­ur­skoðuð og sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn jafn­vel lækk­aður.

„Rétti dag­ur­inn til þess að gera við þakið er ekki þegar það rignir heldur þegar það er sól,“ sagði Ásgeir og sagði hækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans hafa verið „hár­rétta ákvörðun“ sem hefði nú leitt til þess að banka­kerfið á Íslandi væri bólgið af eigið fé og vel undir það búið að takast á við þá maka­lausu stöðu sem nú er uppi í efna­hags­máum.

„Eig­in­fjár­staða bank­anna er gríð­ar­lega sterk, um 25 pró­sent, það þekk­ist ekki í lönd­unum í kringum okkur,“ sagði seðla­banka­stjóri, en hann tók það skýrt fram að algjört skil­yrði fyrir afnámi sveiflu­jöfn­un­ar­aukans nú væri að bank­arnir greiddu engan arð til eig­enda sinna á þessu ári. Pen­ing­arnir þyrftu að vera áfram inni í bönk­unum og Seðla­bank­inn myndi fylgj­ast vel með því.

Frekari tíðinda að vænta frá Seðlabankanum

Seðla­banka­stjóri sagði að ekki ætti að búast við því að það yrði tíð­inda­laust úr Seðla­bank­anum á næst­unni, bank­inn væri bara „rétt að byrja“ að takast á við stöð­una í efna­hags­líf­inu.

„Það hefur átt sér gríð­ar­leg þróun erlendis í því hvernig Seðla­bankar hafa verið að beita sér og við erum ekki búin að gera neitt af þeim,“ sagði Ásgeir og bætti við að hinn nýji Seðla­banki, eftir sam­ein­ingu við Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, hefði ótal tól í sínu vopna­búri.

[links]

Hann var hins vegar ekki til­bú­inn að sýna mikið frekar á spilin, er einn fund­ar­gesta í Seðla­bank­anum spurði hvaða mögu­legu aðgerðir hefðu verið ræddar.

„Við erum að hugsa ýmsa hluti, ég held að það verði ekki tíð­inda­laust héðan, á næstu vikum og mán­uðum, við skulum orða það þannig. En kannski ekk­ert sem ég vil deila með þér núna, samt sem áður,“ sagði Ásgeir, sem hafði þó fyrr á fund­inum ekki úti­lokað að Seðla­bank­inn myndi kaupa rík­is­skulda­bréf, þó það hefði ekki sér­stak­lega komið til tals.

Varðandi kaup á rík­is­skulda­bréfum kom það fram í máli Þórarins G. Pét­urs­sonar, fram­kvæmda­stjóra sviðs hag­fræði og pen­inga­stefnu hjá bank­anum, að erlendir seðla­bankar sem hefðu gripið til þess ráðs væru í annarri stöðu en er uppi hér á Íslandi, þar sem meg­in­vextir hér eru hærri. Þeir hefðu þannig ekki tök á því að grípa til vaxta­lækk­ana, eins og Seðla­banki Íslands hefur nú gert tvær vikur í röð.

Ræddi bara gjaldeyrismálin við lífeyrissjóðina

Seðla­banka­stjóri fund­aði með for­svars­mönnum Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða í gær og í kjöl­farið sendu sam­tökin út hvatn­ingu til félags­manna sinna, líf­eyr­is­sjóða lands­ins, um að halda að sér höndum hvað gjald­eyr­is­kaup varðar næstu mán­uði. Ásgeir var spurður um hvað þetta sam­tal hefði snú­ist um og sagði hann það ein­ungis hafa snúið að gjald­eyr­is­mark­aðnum.

„Að öðru leyti var ég ekki að segja þeim hvernig þeir ættu að fjár­festa pen­ing­unum, þó að það væri freist­andi,“ sagði Ásgeir í léttum tóni, en spurn­ingin laut að því hvort hann hefði einnig hvatt líf­eyr­is­sjóð­ina til þess að ein­beita sér að fjár­fest­ingum inn­an­lands fremur en erlendis á næst­unni. Svo er ekki.

Greint var frá því í Mark­að­inum í morgun að Seðla­bank­inn hefði selt gjald­eyri fyrir and­virði átta millj­arða íslenskra króna í síð­ustu viku, þar af fyrir 3,6 millj­arða á föstu­dag­inn. Ásgeir ljóstr­aði því upp á fund­inum að engin inn­grip hefðu átt sér stað af hálfu Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði það sem af er þess­ari viku.

Ásgeir sagði aðspurður að það væri „mjög gott“ að vera með sjálf­stæða mynt við núver­andi aðstæður, við hefðum með því sveigj­an­leika til að bregð­ast við og einnig væri hollt að krónan væri að veikj­ast, en hún hefur veikst um 10 pró­sent frá ára­mótum.

„Veiking krón­unnar er í sjálfu sér ekk­ert meiri en hjá öðrum smærri myntum, það er þannig ef það er óvissa eða óstöð­ug­leiki á alþjóða­vett­vangi sækja fjár­festar í stærri mynt­irnar, doll­ar­ann, evr­una, jenið,“ sagði seðla­banka­stjóri.

Tímabundið áfall

Ásgeir sagði mik­il­vægt að muna að útbreiðsla kór­ónu­veirunnar væri tíma­bundið áfall og að efna­hags­að­gerð­irnar yrðu að ein­hverju leyti að byggj­ast á því. Ísland yrði áfram vin­sælt ferða­manna­land þegar fólk færi aftur að ferð­ast og þegar krísan væri yfir­staðin yrðum við fljót­lega komin aftur í við­skipta­jöfnuð.

Seðla­banka­stjóri var einnig spurður að því hvort hann væri með til­mæli til almenn­ings, um það hvernig fólk ætti að haga sínum per­sónu­legu fjár­málum við þær aðstæður sem nú eru uppi.

„Þegar stórt er spurt. Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að fólk haldi ró sinni. Þessi veiki er hættu­leg af því það stafar hætta að lífi fólks og heilsu, en sem efna­hags­á­fall er þetta skamm­vinnt áfall sem við ættum að geta farið í gegnum,“ sagði Ásgeir og bætti við að fólk ætti ekki að þurfa að breyta öllum áætl­unum um líf sitt, þó að það væri kannski erfitt fyrir hann að vera að gefa ráð um það.

Fram kom í máli nefnd­ar­manna að við­búið væri að sam­dráttur yrði á Íslandi í ár, en í nýj­ustu spá Seðla­bank­ans var búist við um 1 pró­sent hag­vexti. Næsta þjóð­hags­spá bank­ans verður gefin út í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár