Vextir lækkaðir í 1,75 prósent og sveiflujöfnunarauki afnuminn

Seðla­banki Íslands hefur lækkað vexti í annað sinn á viku og nú um 0,5 pró­sent. Auk þess hefur verið ákveðið að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd og pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafa ákveðið að grípa til frek­ari aðgerða vegna efna­hags­legra áhrif af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Vextir hafa verið lækk­aðir í annað sinn á skömmum tíma og nú niður í 1,75 pró­sent, eða um 0,5 pró­sentu­stig. Það þýðir að stýri­vextir hafa því lækkað um 2,75 pró­­­sent­u­­­stig frá því í maí síð­­­ast­liðnum þegar yfir­­­stand­andi vaxta­­­lækk­­­un­­­ar­­­ferli hófst.

Auk þess hefur fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands ákveðið að aflétta tveggja pró­senta kröfu um sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki og verður hann því núll pró­sent.

[links]Í yfir­lýs­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd­ar­innar segir að hún muni ekki hækka sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann á næstu tólf mán­uðum og verður hann því óbreyttur sam­kvæmt þeim reglum sem um hann gilda í að minnsta kosti tvö ár, fram á fyrsta árs­fjórð­ung 2022.

Aflétt­ing kröfu um sveiflu­jöfn­un­ar­auka mun auð­velda banka­kerf­inu að styðja við heim­ili og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­örðum króna, eða um 12,5 pró­sent af núver­andi útlána­safni.

Þar segir enn fremur: „Útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur haft mikil áhrif á sam­fé­lög, leitt til minnk­andi efna­hags­um­svifa og versn­andi fjár­mála­skil­yrða víða um heim. Óvissa ríkir um hversu mikil áhrifin verða og hversu lengi þau munu vara en ljóst er að efna­hags­horfur á Íslandi hafa versnað til muna, a.m.k. til skamms tíma.“

[adspot]Skýr skila­boð eru send til banka­kerf­is­ins um það hvernig eigi að nýta það mikla svig­rúm sem skap­ast með því að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann. Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd brýnir í yfir­lýs­ingu sinni fyrir fjár­mála­fyr­ir­tækjum að þau taki til­lit til þeirrar miklu óvissu sem uppi er í þjóð­ar­bú­skapnum við ákvörðun um útgreiðslu arðs og end­ur­kaup á eigin hluta­bréfum á kom­andi miss­erum. „Nefndin ætl­ast til þess að það svig­rúm sem lækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans skapar verði notað til að styðja við heim­ili og fyr­ir­tæki. Fylgst verður vel með við­brögðum banka­kerf­is­ins, stöðu heim­ila og fyr­ir­tækja, og þeim fjár­mála­legu skil­yrðum sem þeim eru búin á næstu miss­erum. Nefndin er reiðu­búin að beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varð­veita fjár­mála­stöð­ug­leika hér á landi.“

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands segir að með vaxta­lækk­un­inni sé enn slakað frekar á taum­haldi pen­inga­stefn­unnar í ljósi þess að efna­hags­horfur hafa versnað enn meira í kjöl­far auk­innar útbreiðslu COVID-19 veirunnar og þeirra umfangs­miklu aðgerða sem gripið hefur verið til hér á landi og ann­ars staðar í heim­inum til að hefta frek­ari útbreiðslu veirunnar. „Pen­inga­stefnu­nefnd mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vindu efna­hags­mála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóð­ar­bú­skap­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár