Ísland orðið appelsínugult á ný

Staða Íslands, Portú­gals og ákveð­inna svæða í Frakk­landi breytt­ist á lita­korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu í gær og fengu app­el­sínugulan lit í stað þess rauða. Kortið er birt viku­lega í þeim til­gangi að sam­rýma aðgerðir innan Evrópu gegn far­aldr­inum.

Að mati Sótt­varna­stofn­unar Evrópu hefur staðan á far­aldri COVID-19 batnað á Íslandi, í Portúgal og á ákveðnum svæðum í Frakk­landi og því hafa þau fengið app­el­sínugulan lit á viku­lega upp­færðu lita­korti stofn­un­ar­innar sem auð­velda á Evr­ópu­ríkjum að sam­ræma aðgerðir sínar í far­aldr­inum. Fyrstu til­mælin voru birt í októ­ber í fyrra og byggja kortin á upp­lýs­ingum úr sam­ræmdum gagna­grunni aðild­ar­ríkja ESB og EES-ríkja.

Þótt ástandið hafi batnað víða í álf­unni eru enn mörg lönd og svæði sem enn eru rauð­lituð á kort­inu. Má þar nefna nokkur svæði í Noregi, stærstan hluta Spánar og syðsta hluta Ítalíu. Græni lit­ur­inn, þar sem ástandið er hvað best miðað við for­sendur Sótt­varna­stofn­unar Evrópu, er enn sjald­gæfur en hann má þó finna nyrst í Danmörku, í Póllandi, Tékk­landi og Ung­verja­landi.

Ástæðan fyrir því að Ísland fer af rauða list­anum og á þann app­el­sínugula er sú að hér hafa und­an­farið greinst færri en 50 smit á hverja 100 þús­und íbúa. Fleiri mæli­kvarðar eru not­aðir, m.a. hlut­fall af jákvæðum sýnum.

Hverju ljós­ari litur á kort­inu mun breyta og hvenær er ekki full­víst þar sem ríkj­unum er frjálst að setja sínar eigin reglur þótt mælt sé með því að þær séu í sam­ræmi við til­mæli og ráð­legg­ingar sótt­varna­stofn­un­ar­innar. Hún mælir t.d. með því að fólk sem er að koma frá app­el­sínu­gulum svæðum sé ekki látið sæta sótt­kví við kom­una til ann­arra landa. Hins vegar ættu aðild­ar­ríkin að krefja þá far­þega um að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi eða að fara í sýna­töku við komu.

Miklar kröfur á bólusetta

Allir þeir sem ferð­ast til Íslands verða að sýna fram á nei­kvæða nið­ur­stöðu úr Covid-19 prófi við kom­una. Í dag gerir ekk­ert annað ríki innan EES- eða Scengensvæðisins kröfu um slík vott­orð frá full­bólu­settum íbúum ann­arra aðild­ar­ríkja. Þetta sýnir sam­an­burður frétta­vefs­ins Túrista.

Þórólfur Guðnason segir í sam­tali við Túrista að aðgerðir á landa­mærum Íslands séu byggðar á þeirri reynslu sem feng­ist hafi und­an­farna mán­uði með víð­tækri skimun, smitrakn­ingu og rað­grein­ingu. „Þannig höfum við sýnt fram á að bólu­settir ein­stak­lingar sem hingað koma geta borið með sér veiruna og sett af stað útbreidda sýk­ingu inn­an­lands. Þannig tel ég rétt að krefja áfram far­þega sem hingað koma um nei­kvætt PCR/hrað­próf til að lág­marka flutn­ing veirunnar hingað til lands. Fá önnur lönd hafa skoðað þetta eins vel og við. Einkum vegna þess að fá lönd rað­greina eins mikið og við gerum,” hefur Túristi eftir Þórólfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár