Tilkynnt um röskun á tíðahring yfir 800 kvenna eftir bólusetningu

Tíða­hring­ur­inn er annað hvort styttri eða lengri en vant er. Tíðum fylgir sárs­auki, miklar blæð­ingar og milli­blæð­ingar. Þetta er meðal þess sem hund­ruð kvenna hafa fundið fyrir í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn COVID-19. Lyfja­stofnun er að rann­saka málið.

Konur um allan heim hafa fundið fyrir röskun á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19.
Konur um allan heim hafa fundið fyrir röskun á tíða­hring í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn COVID-19. Mynd: Pexels

Þær eru allt frá því að vera tán­ingar og komnar yfir sex­tugt, kon­urnar sem fundið hafa fyrir óvenju­legum blæð­ingum eftir að þær voru bólu­settar gegn COVID-19. Samtals hafa til­kynn­ingar um 804 þeirra ratað til Lyfja­stofn­unar. Þeim hefur því fjölgað um allt að 200 frá því í byrjun mán­að­ar­ins.

Sársaukafullar tíðir

Lang­flestar til­kynn­ing­arnar snúa að röskun á tíða­hring sem er með þeim hætti að tíða­hringur var í eitt skipti annað hvort styttri eða lengri en vant er en þeirrar rösk­unar hafði ekki orðið vart aftur, skrifar Lyfja­stofnun í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Ef algeng­ustu ein­kennin sem til­kynnt hafa verið eru skoðuð eru það vanda­mál tengd tíða­hring (menstrual dis­order), tíða­þrautir/sárs­auka­fullar tíðir vegna sam­drátta í legi (dys­men­orr­hea), miklar blæð­ingar (heavy menstrual bleeding), milli­blæð­ingar (intermenstrual bleeding) og stytt­ing tíða­hrings (polymen­orr­hoea). Einnig hafa borist til­kynn­ingar vegna blæð­inga kvenna á breyt­inga­skeiði.

[adspot]

229 til­kynn­ingar snúa að konum á aldr­inum 16-29, 302 að 30-39 ára og 216 eru vegna kvenna á aldr­inum 40-49 ára. Þá hafa 49 til­kynn­ingar borist vegna kvenna á aldr­inum 50-59 ára og ein vegna konu á sjö­tugs­aldri.

Fjöl­margar konur um allan heim hafa upp­lifað þetta sama. Að eftir bólu­setn­ingu hafi tíðir þeirra breyst. Um 35 þús­und konur í Bret­landi hafa til­kynnt slíka röskun. Flestar þeirra lýsa meiri verkjum en þær eru vanar og óreglu­legri blæð­ingum.

Í byrjun ágúst til­kynnti Lyfja­stofnun um upp­haf rann­sóknar „á til­kynn­ingum vegna gruns um röskun á tíða­hring í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn COVID-19“, í sam­starfi við land­lækni og sótt­varna­lækni. Þá hafði nokkrum sinnum verið fjallað um málið í fjöl­miðlum og konur stigið fram og m.a. lýst miklum blæð­ingum, jafn­vel í nokkrar vikur, eftir að hafa fengið bólu­setn­ingu.

Sú rann­sókn stendur enn yfir en nið­ur­staðna er að vænta á næstu dögum.

Konurnar ekki teknar í læknisskoðun

Við rann­sókn­ina var ákveðið að rann­saka nokkur valin til­felli sem til­kynnt hafa verið Lyfja­stofnun: Blæð­ingar eftir tíða­hvörf, alvar­legar til­kynn­ingar og langvar­andi ein­kenni, þ.e. blæð­ingar í meira en þrjár vikur. Meðal ann­ars er verið að skoða hvort lík­legt sé að orsaka­sam­hengi sé á milli til­fell­anna og bólu­setn­ingar. Það er gert með því að skoða fyr­ir­liggj­andi gögn um þá sem upp­lifðu valin ein­kenni. Hringt er í við­kom­andi og leyfis aflað til að skoða upp­lýs­ingar í sjúkra­skrám um sjúk­dóms­sögu, nýlegar fyr­ir­liggj­andi nið­ur­stöður blóðprufa þar sem það á við, sam­hliða notkun ann­arra lyfja o.s.frv. Við rann­sókn­ina var ekki talið nauð­syn­legt að kalla þá sem um ræðir til sér­stakrar lækn­is­skoð­unar.

Ef orsaka­sam­band er talið lík­legt milli til­fell­anna og áhrifa á tíða­hring verða sér­fræð­ing­arnir beðnir um að leggja mat á mögu­legar ástæður (e. mechanism). Einnig er lagt upp með að setja saman ráð­legg­ingar fyrir konur og heil­brigð­is­starfs­fólk.

Ekki enn sýnt fram á orsakasamband

„Að svo stöddu hefur ekki verið sýnt fram á orsaka­sam­band milli bólu­setn­ingar og rösk­unar á tíða­hring,“ segir í svari Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvað erlendar rann­sóknir hafa sýnt hvað þetta varðar, þar sem nið­ur­staða þeirrar íslensku liggur ekki fyrir.

Í grein sem birt­ist í vik­unni í BMJ segir að til­kynn­ing­arnar, sem skipti eins og áður segi tug­þús­undum í Bret­landi, teng­ist ekki einu bólu­efni frekar en öðru. Ekkert bendi til að tíða­röskun hefði langvar­andi áhrif á frjó­semi og að mán­uði eftir að finna fyrir ein­kennum séu flestar kon­urnar búnar að jafna sig.

[adspot]

Í umfjöllun The Tel­egraph um grein BMJ (British Medical Journal) kemur fram að mögu­legum áhrifum bólu­setn­ingar á tíða­hring kvenna hafi lít­ill gaumur verið gef­inn fyrst í stað. Í þeim klínísku rann­sóknum sem fram fóru áður en bólu­efnin fengu mark­aðs­leyfi, þar sem marg­vís­legar auka­verk­anir voru rann­sak­aðar og skráðar, voru áhrif á blæð­ingar kvenna ekki rann­sökuð sér­stak­lega. Þess vegna var röskun á tíða­hring ekki skráð sem auka­verkun þegar konur fóru að til­kynna um slíkt og eru það ekki enn. „Þetta er bara til­viljun – var okkur sagt,“ skrifar Caroline Criado-Perez, pistla­höf­undur Tel­egraph, „að óreglu­legar blæð­ingar séu algengt vanda­mál hjá konum“.

Í grein BMJ segir að þrátt fyrir að trufl­anir á tíða­hring séu í flestum til­fellum ekki langvar­andi þurfi að rann­saka ræki­lega hver orsökin sé. „Tregða til bólu­setn­inga meðal ungra kvenna má að miklu leyti rekja til falskra stað­hæf­inga um að bólu­efni gegn COVID-19 geti haft áhrif á frjó­semi þeirra í fram­tíð­inni. Verði orsakir rösk­unar á tíða­hring ekki rann­sak­aðar ítar­lega mun það ýta undir frek­ari ótta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár