Langvarandi COVID sjaldgæft hjá börnum og unglingum

Sjald­gæft er að börn og ung­lingar finni fyrir ein­kennum COVID-19 í meira en tólf vikur, sam­kvæmt nið­ur­stöður rýni á fjórtán rann­sóknum um hið svo­kall­aða langvar­andi COVID.

Stúlkur í Rúmeníu færa kennara sínum blóm á fyrsta skóladeginum.
Stúlkur í Rúmeníu færa kenn­ara sínum blóm á fyrsta skóla­deg­inum. Mynd: EPA

Börn og ung­lingar sem fá COVID-19 fá sjaldan ein­kenni sem vara lengur en í tólf vikur. Þetta er nið­ur­staða rýni hóps vís­inda­manna í fjórtán rann­sóknir sem gerðar hafa verið á fyr­ir­bæri sem kallað hefur verið langvar­andi COVID (long covid).

Nið­ur­staða rýn­innar var birt í vís­inda­tíma­rit­inu Pediatric Infectious Disease Journal, og bendir hún til að langvar­andi COVID sé fágæt­ara hjá börnum og ung­lingum en áður hafði verið ótt­ast. Þrátt fyrir þessa nið­ur­stöðu er talið að frek­ari rann­sókna sé þörf til að varpa skýru ljósi á hætt­una á hinum langvar­andi ein­kennum sjúk­dóms­ins meðal ungs fólks.

Þær fjórtán rann­sóknir sem voru rýndar náðu til tæp­lega 20 þús­und barna og ung­linga sem fengið höfðu langvar­andi ein­kenni eftir að sýkj­ast.

„Þegar þú ert að meta áhættu og ávinn­ing af bólu­efnum þá viltu alltaf vera viss að sá skaði sem sjúk­dóm­ur­inn veldur sé meiri en mögu­legur skaði af bólu­setn­ingu,“ hefur Guardian eftir einum með­höf­unda rann­sókn­ar­innar, Nigel Curtis, pró­fessor í smit­sjúk­dómum barna við Háskól­ann í Melbourne og sér­fræð­ingur hjá Murdoch Children’s Research Institute. Þar sem hættan á alvar­legum veik­indum vegna COVID-19 hjá börnum sé talin lítil sé lyk­il­at­riði að varpa skýru ljósi á langvar­andi áhrif sjúk­dóms­ins.

Ýmislegt getur að sögn Curtis skekkt nið­ur­stöður í rann­sóknum. Til að mynda sé almennt lík­legra að fólk sem finni fyrir miklum ein­kennum svari spurn­ingum um ein­kenni sjúk­dóms­ins en þeir sem fengu lítil eða engin ein­kenni. Það kunni að hafa gerst í ein­hverjum þeirra rann­sókna sem gerðar hafi verið á langvar­andi COVID.

Hann segir mik­il­vægt að gera ekki lítið úr þeirri stað­reynd að langvar­andi ein­kenni geti verið til staðar hjá börnum og að þau þurfi að greina og með­höndla. Enn er margt á huldu hvað þetta varðar. Engin ein almenn skil­grein­ing er enn til sem flækir með­ferð við kvill­unum.

Tvö börn á sjúkrahúsi á Íslandi

Í annarri rann­sókn, sem einnig var gerð af Murdoch-rann­sókn­ar­stofn­un­inni, benda nið­ur­stöð­urnar til að delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar sé ekki að valda alvar­legri sjúk­dóms­ein­kennum hjá börnum en fyrri afbrigði. Hins vegar hafi smit­hæfni afbrigð­is­ins gert það að verkum að smit­tíðni hjá börnum og ung­lingum er hærri.

Tvö börn með COVID-19 liggja á Land­spít­al­anum. Annað þeirra var á gjör­gæslu­deild í gær en var svo fært á almenna deild. Þetta er í fyrsta sinn frá upp­hafi far­ald­urs­ins sem leggja þarf inn börn vegna sjúk­dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár