Play flýgur meðal annars til Alicante og London til að byrja með

Þegar Play fer í loftið mun flug­fé­lagið fljúga til sex borga í Evrópu. Áfanga­stöðum mun svo fjölga jafnt og þétt fram á árið 2022. Búið er að semja um aðstöðu- og afgreiðslu­tíma á þeim flug­völlum sem byrjað verður að fljúga á.

Þegar lág­fjar­gjalda­flug­fé­lagið Play hefur sig til lofts mun það vera með tvær flug­vélar í rekstri. Þær munu fljúga til Alicante, Berlínar, Kaup­manna­hafnar, London, Parísar og Tenerife.

[links]Í maí á næsta ári stendur svo til að fjölga vélum félags­ins í sex, ári síðar eiga þær að vera orðnar átta og frá maí­mán­uði 2022 tíu tals­ins. Samhliða mun áfanga­stöðum fjölga og flug hefj­ast til Banda­ríkj­anna auk fleiri borga í Evrópu.

Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­legum fjár­festum í Play í síð­ustu viku. Kynn­ing­in, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er kirfi­lega merkt trún­að­ar­mál.

Samið um eldsneytisvarnir og slot

Þar kemur fram að Play sé þegar búið að tryggja sér svokölluð slot, eða aðstöðu- og afgreiðslu­tíma, á þeim flug­völlum sem það mun byrja sitt áætl­un­ar­flug til. Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í dag mun sala á flug­ferðum hefj­ast um leið og flug­rekstr­ar­leyfi Play verður komið í hús, en það mun ger­ast þegar félagið hefur lokið hluta­fjár­mögnun sinni, sem felst í að sækja 1,7 millj­arð króna til íslenskra einka­fjár­festa.

[adspot]Play hefur þegar tryggt sér láns­fjár­mögnun frá breska fjár­fest­ing­ar­sjóðnum Athene Capital upp á 5,5 millj­arða króna. Samkvæmt áætlun um þróun lausa­fjár félags­ins, sem birt er í kynn­ing­unni, reiknar Play með að geta end­ur­greitt láns­féð haustið 2021.

Í kynn­ing­unni segir að Play sé þegar búið að semja um elds­neytis­kaup og varnir við elds­neyt­is­ris­ann BP og að elds­neyt­is­verð verði fest sex mán­uði fram í tím­ann. Með því mun kom­ast meiri fyr­ir­sjá­an­leiki í rekstur Play sem vant­aði til að mynda hjá WOW air á síð­ari stigum til­veru þess félags, þegar það festi ekki elds­neyt­is­verð sitt og miklar hækk­anir á heims­mark­aði höfðu alvar­legar afleið­ingar á rekstr­ar­hæfni.

Þá seg­ist Play vera búið að semja um við­hald á flug­vélum félags­ins með hag­stæð­ari samn­ingum en WOW var með og að búið sé að semja við nýjan aðila sem muni sjá um alla flug­afgreiðslu á Kefla­vík­ur­flug­velli „á áður óþekktum kjörum.“

Áætla að Play geti verið 78 milljarða virði

Kjarn­inn greindi frá því í gær­kvöldi að áform Play gerðu ráð fyrir því að innan þriggja ára verði félagið komið með tíu flug­vélar í rekstri og að verð­mið­inn á félag­inu, miðað við rekstr­­ar­hagnað fyrir fjár­­­magnsliði og afskriftir (EBIDT.) upp á 100 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala, eða um 12,5 millj­­arða króna, geti numið um 630 millj­­ónum Banda­­ríkja­dala, eða sem nemur um 78 millj­­örðum króna, í lok árs 2022.

Til sam­an­­burðar er Icelandair, með verð­miða upp á 40,7 millj­­arða króna, miðað við verðið eins og það var við lokun mark­aða í gær.

Íslensk verð­bréf koma að því að fjár­­­magna það sem útaf stend­­ur, eins og fram kom á kynn­ing­­ar­fund­inum á þriðju­dag, en í máli Arn­­ars Más Magn­ús­­sonar for­­stjóra, kom fram að horft sé til þess að erlendir fjár­­­festar komi með 80 pró­­sent fjár­­­magns og 20 pró­­sent komi frá inn­­­lendum aðil­u­m.

Arn­­­ar Már Magn­ús­son er for­stjóri Play. Auk hans verða þeir Sveinn Ingi Stein­þór­s­­­son, sem verður fjár­­­­­mála­­­stjóri, Bogi Guð­­­munds­­­son, sem mun halda utan um sölu-, mark­aðs- og lög­­­fræð­is­við­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­­­son, sem verður titl­aður meið­eig­andi, í stjórn­­enda­teymi félags­­ins. Þeir munu auk þess eiga stóran hlut í félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár