Farþegum Icelandair í apríl fækkaði úr 318 þúsund í 1.700 milli ára

Milli­landa­flug Icelandair lagð­ist nán­ast af í síð­asta mán­uði og gríð­ar­legur sam­dráttur var einnig í inn­an­lands­flugi. Frakt­flutn­ingar dróg­ust hins vegar minna saman.

Alls flugu um 1.700 manns með Icelandair í apr­íl­mán­uði 2020. Í saman mán­uði árið áður voru far­þeg­arnir 318 þús­und tals­ins. Það þýðir að 99 pró­sent sam­dráttur var á milli ára.

Þetta kemur fram í nýjum flutn­ings­tölum sem Icelandair birti í dag.

Þar kemur líka fram að gríð­ar­legur sam­dráttur var í inn­an­lands­flugi. „Fjöldi far­þega hjá Air Iceland Connect var rúm­lega 1.970 í apr­íl­mán­uði og fækk­aði um 91 pró­sent á milli ára. Framboð minnk­aði um 87% og var sæta­nýt­ing 46,2 pró­sent sam­an­borið við 69 pró­sent í apríl 2019. Seldir blokk­tímar í leiguflug­starf­semi félags­ins dróg­ust saman um 75 pró­sent í mars­mán­uði.

Frakt­flutn­ingar dróg­ust hins vegar minna saman, eða um 37 pró­sent. „Á helstu flutn­inga­leiðum hefur allt fram­boð verið að fullu nýtt og sam­drætti í far­þega­flugi verið mætt með auka ferðum af frakt­vélum félags­ins til Evrópu og Banda­ríkj­anna. Þannig hefur félagið náð að tryggja útflutn­ing og verð­mæti sjáv­ar­af­urða og ann­arra útflutn­ings­vara og flutt inn nauð­synja­vörur til Íslands.“

[adspot]Icelandair Group tap­aði 30,1 millj­arði króna á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs. Það er rúm­lega tvisvar sinnum sam­eig­in­legt tap félags­ins á árunum 2018 og 2019, sem voru þó slæm rekstr­arár. Það er rúm­lega fjórum sinnum hærri upp­hæð en Icelandair tap­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. 

Og það er fyr­ir­liggj­andi að Icelandair var í fullri starf­semi þorra þeirra mán­aða sem um ræðir. Helstu mark­aðir fóru ekki að lok­ast fyrr en eftir að Banda­ríkin greindu frá sínu ferða­banni 12. mars. Evrópa fylgdi svo í kjöl­farið. Mark­aðsvirði Icelandair fór undir 30 millj­arða króna í fyrsta sinn í átta ár snemma í mars. Það er nú um níu millj­arðar króna.

Eigið fé Icelandair Group var 27,2 millj­arðar króna í lok mars, eða 191,2 millj­ónir dala. Lausa­fjár­staðan nam 40 millj­örðum króna, eða 281 milljón dala, í lok mars og er því enn yfir 29 millj­arðar króna, 200 milljón dala, við­mið­inu sem Icelandair vinnur eftir að fara ekki und­ir. Í lok árs 2019 átti Icelandair um 302 millj­ónir dala í laust fé. 

Icelandair sagði upp 2.140 manns í síð­ustu viku til við­bótar við þá 230 sem félagið rak í lok mars. Í síð­ustu viku til­kynntu stjórn­völd um að þau myndu greiða stóran hluta launa starfs­fólks fyr­ir­tækja eins og Icelandair í upp­sagn­ar­fresti og að þau myndu skoða að lána félag­inu eða ábyrgj­ast lán til þess ef það tæk­ist að end­ur­skipu­leggja sig fjár­hags­lega. Sú end­ur­skipu­lagn­ing felur í sér að biðla til kröfu­hafa að breyta kröfum í hlutafé og að auka hlutafé félags­ins um 30 þús­und milljón hluti, sem myndi þynna núver­andi hlut­hafa að óbreyttu niður í sam­eig­in­lega 15,3 pró­sent eign. Vonir standa til að Icelandair geti safnað 29 millj­örðum króna í nýtt hlutafé með þessum hætt­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár