Play leitar að 1,7 milljörðum króna frá innlendum einkafjárfestum

Play er þegar búið að tryggja sér 5,5 millj­arða króna lán frá breskum fjár­fest­ing­ar­sjóði sem á líka kaup­rétt á hlut í félag­inu. Félagið mun byrja að selja flug­miða strax og flug­rekstr­ar­leyfi er í höfn, en það verður þegar Play hefur lokið hluta­fjár­mögnun.

Lág­far­gjalda­flug­fé­lagið Play mun byrja að selja flug­ferðir strax og flug­rekstr­ar­leyfi frá Sam­göngu­stofu fyrir starf­semi þess verður komin í hús. Vinna við öflun þess hefur staðið yfir frá því í júní og er nán­ast lokið. Leyfið verður gefið út þegar Play hefur lokið hluta­fjár­mögnun sinni.

[links]Play hefur þegar tryggt sér 40 milljón evra, um 5,5 millj­arða króna, láns­fjár­mögnun frá breska fjár­fest­ing­ar­sjóðnum Athene Capital, sem hefur á móti kaup­rétt á tíu pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu. Sú fjár­mögnun er stækk­an­leg upp í 80 millj­ónir evra, um ell­efu millj­arða króna, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum.

En á þó eftir að fjár­magna 12 millj­ónir evra, tæp­lega 1,7 millj­arða króna, í eigin fé fyrir Play og Íslensk verð­bréf hafa gert einka­sölu­samn­ing við Play um að tryggja það fjár­magn. Þeir sem leggja það til munu eign­ast 50 pró­sent í Play á móti Neo ehf., félagi lyk­il­stjórn­enda þess. Hlutur beggja mun þynn­ast niður í 45 pró­sent ef Athene Capital ákveður að nýta kaup­rétt sinn.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu sem Íslensk verð­bréfa unnu og kynntu fyrir vænt­an­legum fjár­festum í Play í síð­ustu viku. Kynn­ing­in, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, er kirfi­lega merkt trún­að­ar­mál.

Leita að einkafjárfestum

Í kynn­ing­unni segir að Íslensk verð­bréf muni stofna sam­lags­hluta­fé­lag um fjár­fest­ing­una í helm­ings­hlutnum í Play og 2 stjórn­ar­menn af 5. Breski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn mun skipa einn stjórn­ar­mann og Neo ehf. mun skipa tvo. Þar kemur einnig fram að fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn TFII slhf., sem er í stýr­ingu hjá Íslenskum verð­bréfum, sé áhuga­samur um að leggja til að minnsta kosti tíu pró­sent af þeirri upp­hæð sem vantar í verk­efnið.

[adspot]Neo er í eigu Arnars Más Magn­ús­sonar, for­stjóra Play og ann­arra lyk­il­starfs­manna. Þeir eru Sveinn Ingi Stein­þór­s­­­son, sem verður fjár­­­­­mála­­­stjóri, Bogi Guð­­­munds­­­son, sem mun halda utan um sölu-, mark­aðs- og lög­­­fræð­is­við­ið, og Þóróddur Ari Þór­odds­­­son, sem verður meið­eig­andi.

með fyr­ir­vara um sam­þykki hags­muna­ráðs og stjórnar, þar sem stjórn­endur sjóðs­ins telji verk­efnið vera nægi­lega arð­bært að teknu til­liti til áhættu.

Í kynn­ing­unni stendur enn fremur að þar sem tímara­mm­inn fyrir söfnun hluta­fjár sé stuttur, og fjár­hæðin, um 1,7 millj­arðar króna, sé frekar lág, þá sé frekar leitað til einka­fjár­festa og fjár­fest­inga­fé­laga. „Líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög eru lík­lega ekki svig­rúm til að taka svona fjár­fest­inga­á­kvörðun nægi­lega hratt þó svo að slíkir aðilar væru ákjós­an­legir fjár­festar í svona þjóð­hags­lega hag­kvæmu verk­efni.“

Í kynn­ing­unni er miðað við að fjár­­­festar sem komi inn í félagið í upp­­hafi muni geta fengið 12 til 13 földun á fjár­­­fest­ingu sína á innan við þremur árum, gangi áætl­­­anir félags­­ins eftir og að gefnum for­­sendum fyrir verð­mati.

[adspot]Mögu­legar leiðir út úr fjár­fest­ing­unni, svo­kall­aða „exit“, eru sagðar vera: Bein sala á félag­inu, sam­runi við annað félag í svip­uðum rekstri, arð­greiðslur sem borgi upp fjár­fest­ing­una eða skrán­ing á mark­að.

Áætla að Play verði verð­mæt­ara en Icelandair

Kjarn­inn greindi frá því í gær­kvöldi að áform Play gerðu ráð fyrir því að innan þriggja ára verði félagið komið með tíu flug­vélar í rekstri og að verð­mið­inn á félag­inu, miðað við rekstr­­ar­hagnað fyrir fjár­­­magnsliði og afskriftir (EBIDT.) upp á 100 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala, eða um 12,5 millj­­arða króna, geti numið um 630 millj­­ónum Banda­­ríkja­dala, eða sem nemur um 78 millj­­örðum króna, í lok árs 2022.

Til sam­an­­burðar er Icelandair, með verð­miða upp á 40,7 millj­­arða króna, miðað við verðið eins og það var við lokun mark­aða í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár