Raunverulegir eigendur félaga eiga ekki lengur að geta falið sig

Hér­lendis hefur verið hægt að kom­ast upp með það að fela raun­veru­legt eign­ar­hald félaga með ýmsum hætti. Margir nýttu sér það, meðal ann­ars til að kom­ast hjá upp­gjöri á kröfum eða skatt­greiðslum. Þessi leikur á ekki að vera ger­legur lengur.

Það á ekki lengur að vera hægt að fela hver sé raunverulegur eigandi félaga sem skráð eru á Íslandi.
Það á ekki lengur að vera hægt að fela hver sé raun­veru­legur eig­andi félaga sem skráð eru á Íslandi. Mynd: 123rf.com

Á Íslandi hefur verið hægt að kom­ast upp með það að fela eign­ar­hald félaga, með ýmsum leiðum. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­ar­halds­fé­lög eða rekstr­ar­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögnum. Þannig hefur verið verið hægt að fela hver raun­veru­legur eig­andi (e. beneficial owner) félaga er.

[links]Nú hafa verið stigin skref sem eiga að koma í veg fyrir þetta.

Allir sem eiga félag á Íslandi hafa þurft, frá og með 30. ágúst 2019, að veita fyr­ir­tækja­skrá upp­lýs­ingar um nafn, lög­heim­ili, kenni­tölu, rík­is­fang og eign­ar­hlut/teg­und eign­ar­halds. Þá þurfa allir að fram­vísa gögnum sem stað­festa veittar upp­lýs­ingar og sýna fram á að við­kom­andi sé raun­veru­legur eig­andi þess félags sem um ræðir.

Þeir sem eru að stofa félag eða til­kynna um breyt­ingar á því þurfa að veita umræddar upp­lýs­ingar sam­hliða því. Aðrir hafa þangað til 1. júní 2020 til að veita upp­lýs­ing­arnar. Upp­haf­lega átti að gefa þeim frest fram til 1. des­em­ber 2019 til að gera það, en efna­hags- og við­skipta­nefnd ákvað að leggja fram breyt­ing­ar­tilögu um að lengja frest­inn þegar málið var í með­förum hennar.

Þrýstingur utan frá

Frum­varpið, sem varð að lögum 13. júní síð­ast­lið­inn, var ann­ars vegar lagt fram til að inn­leiða tvær Evr­óputil­skip­anir og hins vegar til að bregð­ast við athuga­semdum Financial Action Task Force (FATF), alþjóð­legs vinnu­hóps um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem hót­aði að setja Íslands á lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki í fyrra­vor ef stjórn­völd hér myndu ekki fara í gagn­gera upp­færslu á vörnum sínum gegn pen­inga­þvætti.

[adspot]Frum­varpið um raun­veru­lega eig­endur var ein­ungis ein af fjöl­mörgum aðgerðum sem gripið var til. Meðal ann­ars tóku gildi, í upp­hafi árs 2019, ný heild­ar­lög um varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Þrátt fyrir að margt hafi verið lagað sýndi skýrsla FATF sem birt var fyrr í þessum mán­uði að Ísland verður áfram í eft­ir­fylgni hjá sam­tök­unum. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una og nið­ur­stöðu hennar í frétta­skýr­ingu sem hægt er að lesa hér. 

Dag- og stjórnvaldssektir

Samkvæmt nýju lög­unum um raun­veru­lega eig­endur þá er hægt að refsa þeim sem ekki fylgja þeim. Ef eig­endur félaga upp­lýsa ekki um hver hinn raun­veru­legi eig­andi er, með fram­vísun þeirra gagna sem lögin kalla á, þá getur rík­is­skatt­stjóri lagt á tvenns konar sektir á við­kom­andi.

Annars vegar er um dag­sektir að ræða. Þær geta numið frá tíu þús­und krónum og allt að 500 þús­und krónum á dag. Heimilt er að ákvæða umfang þeirra sem hlut­fall af til­teknu stærðum í rekstri við­kom­andi. Við ákvörðun um fjár­hæð dag­sekta er heim­ilt að taka til­lit til eðlis van­rækslu eða brots og fjár­hags­legs styrk­leika við­kom­andi aðila. Dag­sekt­irnar sem verða ákvarð­aðar eru aðfar­ar­hæfar.

Hins vegar er um stjórn­valds­sektir að ræða. Þær er hægt að leggja á þá sem veita ekki upp­lýs­ingar eða veita rangar/vill­andi upp­lýs­ingar. Þegar brot á lög­unum er framið í starf­semi lög­að­ila, og í þágu hans, má leggja stjórn­valds­sekt á lög­að­il­ann án til­lits til þess hvort sök verður sönnuð á fyr­ir­svars­mann eða starfs­mann lög­að­ila. „Sektir sem lagðar eru á ein­stak­linga geta numið frá 100 þús. kr. til 5 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lög­að­ila geta numið frá 500 þús. kr. til 80 millj. kr. en geta þó verið hærri eða allt að 10 pró­sent af heild­ar­veltu sam­kvæmt síð­asta sam­þykkta árs­reikn­ingi lög­að­il­ans eða 10 pró­sent af síð­asta sam­þykkta sam­stæðu­reikn­ingi ef lög­að­ili er hluti af sam­stæðu,“ segir í lög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár