Ísland hefur uppfyllt 70 prósent tilmæla FATF að öllu eða mestu leyti

Ísland er enn í eft­ir­fylgni vegna varna sinna gegn pen­inga­þvætti. Miklar úrbætur hafa orðið síð­ast­liðið ár vegna hót­ana um að setja Ísland á lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki og varn­irnar styrktar.

Peningaþvættisvörnum hefur verið ábótavant á Íslandi árum saman.
Pen­inga­þvætt­is­vörnum hefur verið ábóta­vant á Íslandi árum saman. Mynd: 123rf.com

Ísland hefur upp­fyllt 28 af 40 til­mælum sem Financial Action Task Force (FATF), alþjóð­legur vinnu­hópur um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, gerir kröfu um að lög­gjöf ríkja þurfi að upp­fylla. Ísland upp­fyllir ell­efu til­mæli að hluta en ein til­mæli, sem lúta að starf­semi almanna­heilla­fé­laga, telj­ast enn óupp­fyllt.

[links]Þetta kemur fram í eft­ir­fylgn­is­skýrslu FATF sem birt var á fimmtu­dag. Nið­ur­staða hennar er að Ísland verður áfram í eft­ir­fylgni en verður ekki sett á lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki, að minnsta kosti sem stendur.

FATF skil­aði skýrslu um varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í apríl í fyrra. Nið­ur­staða hennar var að Ísland fékk fall­ein­kunn. Lagaum­hverfi, virkni eft­ir­lits og fram­fylgd var í lama­sessi að mati FATF.

Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­legan hnekki.

[adspot]Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að Ísland hefði skilað FATF eft­ir­fylgn­is­skýrslu vegna aðgerða sem Ísland hefur gripið til til að bæta varnir sínar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, snemma í sum­ar. Skýrslan var tekin til umræðu á fundi FATF þann 19. júní síð­ast­lið­inn, en Ísland hafði fram til þess tíma til að bregð­ast við fjöl­mörgum athuga­semdum FATF og sleppa við að vera sett á áður­nefndar lista sam­tak­anna.

Einn maður árum saman

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa var lengi starf­rækt innan Efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra. Þar starf­aði einn ein­stak­lingur og árangur af starf­sem­inni lít­ill sem eng­inn.

Skrif­stofan var færð yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara um mitt ár 2015. Ólafur Þór Hauksson, hér­aðs­sak­sókn­ari, var spurður af því í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut 3. októ­ber 2018 hvort aðgerðir Íslend­inga til að koma í veg fyrir að pen­inga­þvætti hefðu verið við­un­andi á und­an­förnum árum. „Þessu eru auðsvarað,“ sagði Ólafur, „nei það er það ekki.“

Skýrsla FATF ýtti veru­lega við málum hér­lendis. Það þurfti að bregð­ast við þessum athuga­semdum hratt, auk þess sem fyrir lá að fjórða pen­inga­þvætt­is­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins yrði tekin upp í samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) í des­em­ber 2018.

Starfs­hópur á vegum dóms­mála­ráð­herra var því settur í að semja frum­varp um heild­ar­end­ur­skoðun á lögum um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Sú vinna skil­aði því að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lagði fram frum­varp um ný heild­ar­lög 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Málið var afgreitt frá efna­hags- og við­skipta­nefnd 12. des­em­ber og síð­ari tvær umræður kláraðar dag­inn án ann­arra ræðu­halda en Brynjars Níels­sonar, sem mælti fyrir nefnd­ar­á­liti um málið sem full­trúar alla flokka skrif­uðu undir.

Frum­varpið varð að lögum með öllum greiddum atkvæðum þing­manna þann sama dag. Þau tóku gild 1. jan­úar 2019.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu sagði að nauð­syn­legt yrði að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á gild­andi lögum þar sem gera þarf veru­legar úrbætur á lög­unum til að upp­fylla þær lág­marks­kröfur sem gerðar eru á alþjóða­vett­vangi.

Skylt að tilkynna um grunsamleg viðskipti

Á meðal þeirra breyt­inga sem nýju lögin hafa í för með sér er að ákvæði um ein­stak­linga „í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla“ eru ítar­legri en í gömlu lög­unum. Til þessa hóps telj­ast þeir sem eru eða hafa verið hátt­settir í opin­berri þjón­ustu, nán­asta fjöl­skylda þeirra og ein­stak­lingar sem vitað er að eru nánir sam­starfs­menn þeirra. Samkvæmt nýju lög­unum þurfa til­kynn­inga­skyldir aðilar, t.d. bankar eða aðrar fjár­mála­stofn­anir, að hafa við­eig­andi „kerfi, ferla og aðferðir til að meta hvort inn­lendur eða erlendur við­skipta­maður eða raun­veru­legur eig­andi sé í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla.“

[adspot]Það var ákvæði um raun­veru­lega eig­endur gert ítar­legra. Þannig þurfi til að mynda að gera grein­ar­mun á laga­legum eig­endum og raun­veru­legum eig­endum t.d. fjár­vörslu­sjóða sem oft eru ein­ungis skráðir í eigu fjár­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja án þess að fyrir liggi hvaða ein­stak­lingar eigi fjár­mun­ina sem í sjóð­unum eru.

Pen­inga­þvætt­is­skrif­stofa hér­aðs­sak­sóknar fékk nýtt nafn, skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu. Starfs­mönnum hennar hefur verið fjölgað mjög, fjár­munir hafa verið settir í að kaupa upp­lýs­inga­kerfi til að taka á móti og halda utan um til­kynn­ingar um pen­inga­þvætti og eft­ir­lit með starf­semi innan banka hefur verið eflt. Öllum opin­berum aðilum er nú skylt að til­kynna henni um grun­sam­leg við­skipti og sú til­kynn­ing­ar­skylda víkur allri þagn­ar­skyldu stjórn­valda til hliðar.

Þvingunarúrræði og viðurlög

Með nýju lög­unum var skipun og hlut­verk stýri­hóps um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka lög­fest. Helstu verk­efni stýri­hóps­ins sam­kvæmt frum­varp­inu, verða að tryggja yfir­sýn, sam­hæf­ingu og stefnu­mótun í mála­flokknum.

Í stýri­hópnum eiga sæti full­trúar þeirra stjórn­valda sem eiga aðkomu að mála­flokknum, sem eru m.a. dóms­mála­ráðu­neytið, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, Fjár­mála­eft­ir­litið og aðrir eft­ir­lits­að­ilar með lög­unum, Seðla­banki Íslands, Toll­stjóri, skatt­yf­ir­völd, Hér­aðs­sak­sókn­ari og Lögregla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þá verða veru­legar breyt­ingar hvað varðar þving­unar­úr­ræði og við­ur­lög. Hingað til hafa eft­ir­lits­að­ilar með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á Íslandi nefni­lega ekki haft við­eig­andi úrræði til þess að bregð­ast við lög­brotum. Sektir voru einu við­ur­lögin sam­kvæmt gömlu lög­unum sem eft­ir­lits­að­ilar gátu gripið til. Í alvar­legri brotum var hins vegar hægt að ákæra.

Hvöss brynning og óviðunandi ástand

Kjarninn greindi frá því að Unnur Gunn­ars­dóttir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hafi skrifað pistil í nýj­ustu útgáfu Fjár­mála, rits stofn­un­ar­inn­ar, sem kom út seint ágúst, þar sem fram kom að þegar FATF hafi fellt áfell­is­dóm sinn yfir lög­gjöf og eft­ir­liti Íslend­inga með pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka í fyrra­vor hafi „Fjár­mála­eft­ir­litið og ýmsir aðrir [fengið] hvassa brýn­ingu um að taka til hend­inni og verða við úrbóta­kröfum alþjóða­sam­fé­lags­ins.“

Kjarninn greindi frá því 31. maí síð­ast­lið­inn að FME hefði fram­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019.

Kjarninn greindi frá því 31. maí síð­ast­lið­inn að FME hefði fram­kvæmt athugun á aðgerðum Arion banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Slík athugun á Arion banka hófst í októ­ber 2018 og leiddi til þess að eft­ir­litið gerði marg­hátt­aðar athuga­semdir við brotala­mir hjá bank­anum í jan­úar 2019.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur ekki viljað svara því hvort yfir standi athugun á aðgerðum Lands­bank­ans, Íslands­banka og Kviku banka gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Það seg­ist þó hafa fram­kvæmt tæp­lega 20 athug­anir hjá til­kynn­ing­ar­skyldum aðilum sem lúta eft­ir­liti stofn­un­ar­innar frá árinu 2017 og nú standi yfir þrjár slíkar athug­anir. Það kunni að vera að gagn­sæ­istil­kynn­ingar verði birtar vegna þeirra athug­ana innan tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár