Þota ALC, bandaríska flugleigufélagsins sem hefur átt í deilum við Isavia, er nú farin af landi brott. Flaug hún frá Keflavíkurflugvelli korter yfir níu í morgun til Evrópu. RÚV greinir frá.
Þann 17. júlí dæmdi héraðsdómur ALC í hag í þotudeilunni. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ALC beri eingöngu að greiða þær skuldir sem hvíli á þotunni sjálfri en ekki allar skuldir WOW air við Isavia.
[adspot]Málið hefur farið fram og aftur innan dómskerfisins og var það í þriðja sinn sem málið fer fyrir héraðsdóm. Héraðsdómur komst áður að þeirri niðurstöðu að félaginu bæri ekki að greiða allar skuldir WOW, einungis þær skuldir sem hvíldu á þotunni. Isavia skaut úrskurðinum til Landsréttar og í millitíðinni lagði ALC nýja beiðni sem héraðsdómur vísaði frá, að því er kemur fram í frétt RÚV.
Vildu tryggja greiðslur upp í tveggja milljarða króna skuldir
[links]Í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness að ALC væri heimilt að sækja flugvélina sem hafði verið kyrrsett í kjölfar gjaldþrots WOW. Með kyrrsetningunni vildi Isavia tryggja að hægt væri að fá greiðslur upp í tveggja milljarða króna skuldir WOW air á lendingargjöldum, sem söfnuðust upp í aðdraganda falls félagsins. Það hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta, en Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Þorsteinn Einarsson hrl. eru skiptastjórar bússins.
Íslenska ríkið er eigandi Isavia, sem rekur flugvellina í landinu, þar á meðal Keflavíkurflugvöll.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir