Ólík túlkun á ómerkingu Hæstaréttar í deilu ALC við Isavia

Hæsti­réttur hefur ómerkt úrskurð Lands­réttar í deilu ALC við Isavia og vísað því aftur Lands­réttar til lög­legrar með­ferðar.

Hæsti­réttur hefur ómerkt úrskurð Lands­réttar í deilu ALC við Isavia og vísað því aftur Lands­réttar til lög­legrar með­ferðar. Þá telur Hæsti­réttur að veru­lega hafi verið vikið frá réttri með­ferð máls­ins.

Í frétta­til­kynn­ingu Isavia segir að með nið­ur­stöð­unni telji félagið að rétt­ur­inn sé fyrst og fremst að bregð­ast „við þeirri stað­reynd að ALC kærði ekki úrskurð hér­aðs­dóms til Lands­réttar og með­ferð máls­ins fyrir Lands­rétti eftir það“.

Það að ALC hafi ekki kært úrskurð hér­aðs­dóms til Lands­réttar hafi falið í sér yfir­lýs­ingu ALC um að félagið væri sam­mála kröfum og rök­semdum Isavia. Við þær aðstæður hafi Lands­rétti borið að verða við óbreyttum kröfum Isavia í mál­inu og hafna þegar af þeirri ástæðu inn­setn­ingu.

„Isavia er þeirrar skoð­unar að dómur Hæsta­réttar stað­festi efn­is­lega afstöðu Lands­réttar til túlk­unar á beit­ingu 136. gr. laga um loft­ferðir. Málinu hefur nú verið vísað aftur til Lands­réttar. Vænta má að Lands­réttur taki það til með­ferðar og stað­festir kröfur Isavia eins og þær lágu fyrir Lands­rétti, auk ákvörð­unar um máls­kostnað.

Flug­vélin TF-GPA er áfram kyrr­sett þar til nið­ur­staða fæst í málið. Í milli­tíð­inni vill Isavia ítreka að eig­andi vél­ar­innar getur fengið hana afhenta ef skuld WOW air er greidd eða ef gild trygg­ing er lög fyrir henni,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Isavia.

ALC fer yfir næstu skref

Oddur Ást­ráðs­son, lög­maður ALC, segir í sam­tali við RÚV í dag, að nú sé verið að skoða hver næstu skref verði. Hann seg­ist fagna því að nú sé komið á hreint að rétt­ar­fars til­raunir Isavia hafi verið til­gangs­lausar. Nú þurfi fyr­ir­tækið að fara yfir það hver næstu skref verði.

Stjórn­endur Isavia ákváðu þann 28. mars síð­ast­lið­inn að kyrr­setja flug­vél sem WOW air hafði á leigu frá flug­véla­leigu­fyr­ir­tæk­inu ALC til að tryggja greiðslu á not­enda­gjöldum upp á rúm­lega tvo millj­arða króna. Sama dag varð WOW air gjald­þrota.

ALC hafn­aði greiðslu­skyldu og krafð­ist þess að fá flug­vél­ina afhenta. Hér­aðs­dómur Reykja­ness komst að þeirri nið­ur­stöðu að Isavia væri heim­ilt að kyrr­setja þot­una sem trygg­ingu fyrir greiðslu skuldar vegna þess­arar til­teknu vélar en ekki fyrir heild­ar­skuldum WOW við Isavia.

ALC greiddi Isavia 87 millj­ónir, sem voru útistand­andi skuldir vél­ar­innar og krafð­ist þess aftur að fá vél­ina afhenta. Isavia áfrýj­aði úrskurð­inum til Lands­réttar, og krafð­ist þess að við­ur­kennt yrði að heim­ilt væri að halda þot­unni til greiðslu á öllum skuldum. ALC krafð­ist þess að úrskurð­inum yrði vísað frá Lands­rétti, en til vara krafð­ist ALC þess að úrskurður hér­aðs­dóms yrði stað­festur.

Lands­réttur end­ur­skoð­aði for­sendur úrskurðar hér­aðs­dóms sem var svo stað­festur að nið­ur­stöð­unni til, en tók ekki efn­is­lega á ágrein­ingi um máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár