Fjöldi flugfarþega í júlí dróst saman um 85 prósent milli ára

Í júlí fóru tæp­lega 132 þús­und far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl. Fjöldi far­þega hefur auk­ist umtals­vert frá fyrri mán­uðum en er engu að síður ein­ungis brot af því sem hann var í sama mán­uði í fyrra.

Alls fóru 131.611 far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl í júlí síð­ast­liðnum sam­kvæmt tölum frá Isavia. Í sama mán­uði í fyrra fóru um völl­inn rúm­lega 843 þús­und far­þegar svo fækk­unin milli ára nemur rúmum 84 pró­sentum. Nú í júlí nam fjöldi komu­far­þega alls rúmum 69 þús­undum, brott­far­arfar­þegar voru rúm­lega 59 þús­und og fjöldi skiptifar­þega nam rúm­lega þremur þús­undum.

Í mars fór veru­lega að hægj­ast á flug­sam­göngum í heim­inum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins auk þess sem ferða­lög fólks til lands­ins voru tak­mörk­unum háð. Í kjöl­farið dróst veru­lega úr umferð fólks í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Í apríl fóru rúm­lega þrjú þús­und manns um flug­völl­inn og í maí fóru rúm­lega fjögur þús­und um flug­völl­inn. Fjöldi far­þega í þessum mán­uðum dróst saman um rúm­lega 99 pró­sent á milli ára.

Síðan fór að slakna á ferða­tak­mörk­unum og frá og með 15. júní hefur verið ski­mað fyrir COVID-19 á flug­vell­inum. Í júní­mán­uði fjölg­aði far­þegum tölu­vert miðað við mán­uð­ina tvo á undan. Um völl­inn fóru rúm­lega 29 þús­und í júní. Það er þó ein­ungis brot af þeim fjölda sem fór um flug­völl­inn í sama mán­uði í fyrra. Þá fóru um völl­inn tæp­lega 788 þús­und far­þegar og sam­drátt­ur­inn í júní nam því rúmum 96 pró­sentum á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár