Segir framgöngu Isavia ófyrirleitna og óskiljanlega

Air Lea­se Cor­por­ation á­skilur sér allan rétt til að krefja Isavia og ís­lenska ríkið um bætur vegna tjóns sem fé­lagið kveðst hafa orðið fyrir vegna kyrr­setn­ingu far­þega­þotu fé­lags­ins. Stofn­andi ALC segir kröfu Isavia ófyr­ir­leitna og óskilj­an­lega.

For­svars­menn flug­véla­leigu­fyr­ir­tæk­is­ins Air Lea­se Cor­por­ation segj­ast áskilja sér allan rétt til að krefja Isavia og ís­lenska ríkið um bætur vegna tjóns sem fé­lagið kveðst hafa orðið fyrir vegna öftr­unar Isavia á brott­för far­þega­þotu fé­lags­ins frá Kefla­vík. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir stofn­andi ALC að krafa Isavia um að „óskylt fyr­ir­tæki“ gang­ist í ábyrgðir fyrir skuldum sem Isavia beri sjálft ábyrgð á að hafa leyft WOW air að safna hjá sér sé í senn ófyr­ir­leitin og óskilj­an­leg.

Segir WOW hafa samþykkt að afhenda vélina í apríl

Far­þega­þota ALC hefur verið meinuð brottför í nærri fjórar vikur eða allt frá gjald­þroti WOW air. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að tjón ALC vegna aðgerða Isavia sé umtals­vert og auk­ist með hverjum degi. Félagið segir WOW air hafa sam­þykkt, áður en til gjald­þrots­ins kom, að afhenda ALC vél­ina nú í apríl og því hafi félagið verið búið að skrifa undir samn­inga um að leigja þot­una til ann­ars flugfélags.

Isavia hefur sagst ekki ætla að láta þot­una af hendi nema ALC standi skil á öllum skuldum WOW air við Keflavíkur­flugvöll sem söfnuð­ust upp síðustu 9 mánuði rekstrar WOW air, upp á ríflega tvo millj­arða króna. Dómsmál ALC á hendur Isavia til að fá eign sína afhenta var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja­ness á þriðju­dag. Dómari veitti Isavia viku­frest til að leggja fram grein­ar­gerð og afla gagna, en málflutn­ingur fer fram 2. maí næst­kom­andi. [adspot]

Í til­kynn­ingu félags­ins segir að ALC telji það fráleitt að lögað­ili á Íslandi geti lagt fram eigur ann­ara sem veð og félagið undrist að opin­bert hlutafélag taki þátt í sam­komu­lagi um slíkt og telji það í sam­ræmi við ákvæði loft­ferða­laga. Þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir hafi Isavia ekki heldur feng­ist til að leggja fram sund­ur­liðun gjald­anna að baki skuld WOW air.

Þá telur félagið að með framgöngu sinni hafi Isavia brotið gegn eign­arréttarákvæðum stjórnar­skrár. Auk þess sem WOW air, vegna gjald­þrots síns, hafi ekki lengur haft yfirráð yfir far­þega­þot­unni þegar henni var meinuð brottför og því geti Isavia ekki byggt á heim­ild loft­ferða­laga til að stöðva för þot­unnar.

Gagnrýna að Isavia geri upp á milli flugrekanda

Steve Udvar-Házy, stofn­andi og starf­andi stjórnar­for­maður ALC, segir mála­til­búnað Isaviu vekja upp alvar­legar spurn­ingar um fram­göngu Isavia og hvernig félagið hefur gert upp á milli flug­rek­anda. „Á meðan WOW air var á laun, að minnsta kosti frá júlí 2018, heim­ilað að safna for­dæma­lausum skuldum við Isavia hafa önnur flugfélög sem til Íslands fljúga þurft að greiða öll flug­vall­ar­gjöld á tíma og í sam­ræmi við reglur. Í þeim hópi eru félög á borð við Icelandair, Wizz Air, SAS, EasyJet, Atlantic Airways, British Airways, Delta, og Luft­hansa. Ekki er að sjá að stuðn­ingur Isavia við einn flug­rek­anda umfram aðra eigi nokkra stoð í lögum eða reglum,“ segir Steve í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Þá segir hann að það hljóti einnig að vekja upp spurn­ingar að Isavia skuli hafa samið „á laun“ við WOW air um að flug­fé­lagið hefði öllum stundum flugvél í eigu ann­arra á Keflavíkur­flug­velli sem trygg­ingu. Hann segir ALC hafi aldrei upplýst um að eigur félags­ins væru not­aðar með þessum hætti og hefði aldrei sam­þykkt það. „Fram­ganga Isavia og krafa um að óskylt fyr­ir­tæki gang­ist í ábyrgðir fyrir skuldum sem til eru komnar án vit­undar þess og Isavia ber sjálft ábyrgð á að hafa leyft WOW air að safna hjá sér, er í senn ófyr­ir­leitin og óskilj­an­leg,“ segir Steve.

Valdið íslenskum stjórnvöldum álitshnekki

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni að ALC komi til með að leita allra leiða til að fá hnekkt ákvörðunum Isavia og end­ur­heimta eign sína. Félagið muni leita lið­sinnis hverra þeirra stofn­ana sem að þessum málum koma og láta sig varða við­skipti fyr­ir­tækja á alþjóðavett­vangi, til dæmis til Alþjóðasam­bands flugfélaga, Alþjóðaflugmálastofn­un­ar­inna, stjórnvalda í Bandaríkjunum og stofn­ana Evrópusam­bands­ins.

„Málið hefur þegar valdið Íslandi og íslenskum stjórnvöldum álits­hnekki og fylgj­ast fyr­ir­tæki í flug­iðn­aði af áhuga með fram­vind­unni,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár