Isavia lýsir yfir furðu sinni vegna niðurstöðu héraðsdóms

Isavia segir nið­ur­stöð­una vera í miklu ósam­ræmi við fyrri umfjöllun Lands­réttar um málið.

Isavia lýsir yfir furðu sinni vegna nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­ness í dag í máli ALC. Segir Isavia nið­ur­stöð­una vera í miklu ósam­ræmi við fyrri umfjöllun Lands­réttar um málið, að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Isavia.

Í morgun lagði banda­ríska leigu­fé­lagið ALC Isa­via í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ALC beri ein­göngu að greiða þær skuldir sem hvíli á þot­unni sjálfri en ekki allar skuldir WOW air við Isa­via

[adspot]Málið varðar kyrr­setn­ingu vélar ALC, sem var hluti af flug­flota WOW air. Í nýju beiðn­­inni var þess kraf­ist að ALC fái full umráð þot­unn­­ar, enda sé búið að greiða þau gjöld sem tengj­­ast þot­unni beint, að því er segir í til­­kynn­ingu frá ALC í maí.

Málið hefur farið fram og aftur innan dóms­kerf­is­ins og er þetta í þriðja sinn sem málið fer fyrir hér­aðs­dóm. Hér­aðs­dómur komst áður að þeirri nið­ur­stöðu að félag­inu bæri ekki að greiða allar skuldir WOW, ein­ungis þær skuldir sem hvíldu á þot­unni. Isa­via skaut úrskurð­inum til Lands­réttar og í milli­tíð­inni lagði ALC nýja beiðni sem hér­aðs­dómur vís­aði frá, að því er kemur fram í frétt RÚV.

Í til­kynn­ingu Isavia segir að í Lands­réttur hafi lýst „með mjög skýrum hætti skoðun æðra dóms­stigs á túlkun laga­á­kvæðs­ins.“

„Þá teljum við veru­lega ámæl­is­vert að beiðni um frestun rétt­ar­á­hrifa sé hafnað í ljósi þeirra fjár­hags­legu hags­muna sem undir eru. Frestun rétt­ar­á­hrifa hefði haft óveru­leg áhrif á ALC en hefði tryggt eðli­lega með­ferð jafn mik­il­vægs máls fyrir æðra dóms­stigi. Með synjun Hér­aðs­dóms Reykja­ness á frestun rétt­ar­á­hrifa er tak­mark­aður mjög mögu­leiki Isavia til að fá end­an­legan úrskurð fyrir fjöl­skip­uðum dómi,“ segir jafn­framt í til­kynn­ingu félags­ins.

Fréttin hefur verið upp­fræð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár