Isavia sagði í dag upp 133 starfsmönnum og settu tólf til viðbótar í lægra starfshlutfall. Aðgerðirnar koma til viðbótar því að 101 starfsmanni var sagt upp í lok mars. Isavia, sem rekur meðal annars Keflavíkurflugvöll, hefur því sagt upp 234 manns frá því að COVID-19 faraldurinn skall á Íslandi. Frá því faraldurinn hófst hefur stöðugildum hjá móðurfélagi Isavia nú fækkað um 40 prósent.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem er að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins, segir að frá því að faraldurinn skall á hafi það gripið til umfangsmikilla aðgerða sem snerti öll svið þess vegna samdráttarins sem orðið hefur í flugi til og frá landinu í yfirstandandi heimsfaraldri.
[adspot]Auk uppsagna hefur Isavia gripið til ýmissa annarra hagræðingaaðgerða og skipulagsbreytinga svo sem sameiningu sviða og fækkunar í framkvæmdastjórn félagsins.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir að eftir ágætis gang í sumar, þar sem fjölgun ferðamanna um Keflavíkurflugvöll var nokkuð stöðug, hafi orðið alger viðsnúningur í kjölfar ákvörðunar um tvöfalda skimun með sóttkví á milli.
Nú sé veruleg óvissa um framvindu næstu mánaða og Isavia ætlar ætlar að endurskoða stöðuna reglulega. „Flugfélög hafa dregið verulega úr framboði og eins og staðan er í dag þá er útlit fyrir að það breytist ekki í náinni framtíð. Forsendur okkar frá í sumar eru því brostnar og í dag gerum við ráð fyrir að umsvifin í vetur verði mjög lítil á Keflavíkurflugvelli. Það er því útlit fyrir að verkefni verði af skornum skammti fyrir hóp starfsmanna okkar næstu mánuðina.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir