Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku Isavia við bílastæði

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stöðvað gjald­töku Isavia á ytri rútu­stæðum við Leifs­stöð. Telur að Isavia hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með óhóf­legri verð­lagn­ingu. Jafn­framt mis­muni það við­skipta­vinum í verð­lagn­ingu og skil­málum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stöðvað gjald­töku Isavia á ytri rútu­stæðum við Leifs­stöð. Gjald­takan tók gildi þann 1. mars 2018, í fram­haldi af útboði og samn­ingum um nýt­ingu tveggja hóp­ferða­fyr­ir­tækja á nær­stæðum við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una.

[links]Sam­keppn­is­eft­ir­litið tók málið til skoð­unar og hefur tekið bráða­birgð­á­kvörðun í því, og telur þannig senni­legt að sú hátt­semi sem til athug­unar er gangi gegn ákvæðum sam­keppn­islaga og ef lík­legt þykir að bið eftir end­an­legri ákvörðun leiði til rösk­unar á sam­keppni eða að málið þoli ekki að öðru leyti bið.

Þannig telur eft­ir­litið senni­legt að Isavia hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með óhóf­legri verð­lagn­ingu við gjald­töku fyrir notkun á fjar­stæðum. Jafn­framt mis­muni Isavia við­skipta­vinum í verð­lagn­ingu og skil­málum.

Þá telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið að bið eftir end­an­legri ákvörðun getið skaðað sam­keppni. Verði ekk­ert að gert muni gjald­taka Isavia á fjar­stæðum hafa veru­leg skað­leg áhrif á rekstur fyr­ir­tækja sem nýta þurfi fjar­stæðin. Þá liggur fyrir að gjöld vegna stæð­anna munu að óbreyttu hækka veru­lega þann 1. sept­em­ber nk., en þá verður svo­kall­aður afsláttur á aðlög­un­ar­tíma­bili felldur niður.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur því að skil­yrði fyrir töku bráða­birgða­á­kvörð­unar séu fyrir hendi. Í henni felst að umrædd gjald­taka er stöðvuð tíma­bundið. Gildir bráða­birgða­á­kvörð­unin til 31. des­em­ber 2018.

Samhliða hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið sent Isavia and­mæla­skjal þar sem nánar er gerð grein fyrir frum­nið­ur­stöðum eft­ir­lits­ins vegna rann­sókn­ar­innar og félag­inu gef­inn kostur á að koma sjón­ar­miðum og and­mælum á fram­færi áður en end­an­leg ákvörðun verður tekin í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Isavia

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár