Rútufyrirtæki kærir Isavia fyrir „ofurgjaldtöku“ við Leifsstöð

Gray Line hefur sent kæru til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að Isavia ætlar að rukka hóp­ferð­ar­fyr­ir­tæki um tæpar 20 þús­und krónur í hvert sinn sem rúta sækir far­þega í Leifs­stöð. Fyr­ir­tækið segir hækk­un­ina geta valdið sér óbæt­an­legum skaða.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Gray Line hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu kæru þar sem fyr­ir­tækið telur að Isavia hafi mis­notað ein­ok­un­ar­að­stöðu sína á Kefla­vík­ur­flug­velli með því að ætla sér að taka gjald af hóp­ferða­bílum sem starfi við flug­völl­inn. Gray Line telur að gjald­takan sé marg­falt hærri en eðli­legt geti talist og að hún stríð gegn hags­munum neyt­enda. Fyr­ir­tækið vill að Sam­keppn­is­eft­ir­litið stöðvi fyr­ir­hug­aða gjald­töku. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Gray Line. Isavia er í eigu íslensku rík­is­ins.

Þórir Garð­ars­son, stjórn­ar­for­maður Gray Line, segir að um sé að ræða ofur­gjald­töku í skjóli ein­ok­unar sem lendi á engum öðrum en flug­far­þegum. „Gera má ráð fyrir að far­gjaldið þurfi að hækka um 30-50 pró­sent hjá öllum hóp­ferða­fyr­ir­tækj­unum til að Isavia fái sitt. Farþegar fá ekk­ert meiri eða betri þjón­ustu. Isavia tekur þá ein­fald­lega í gísl­ingu og heimtar lausn­ar­gjald svo þeir kom­ist frá flug­stöð­inni.“

Í kæru fyr­ir­tæk­is­ins segir að á Heathrow flug­velli í London sé tekið 3.900 króna gjald fyrir stóra hóp­ferða­bíla sem sækja far­þega. „Isavia ætlar hins vegar frá og með 1. mars næst­kom­andi að taka 19.900 kr. fyrir hvert skipti sem stór rúta sækir far­þega í flug­stöð Leifs Eiríks­sonar. Gjald Isavia er fimm­falt hærra en á Heathrow. Á flug­völlum á borð við Kaup­manna­höfn, Billund og Stokk­hólm og fleiri á Norð­ur­lönd­unum er ekk­ert slíkt gjald tekið og á Gatwick flug­velli er það 2.400 kr.“

Gjald­takan er fyrir nýt­ingu á svoköll­uðu fjar­svæði, sem liggur ekki upp við flug­stöð­ina. Hún kemur til við­bótar við það sem tvö hóp­ferð­ar­fyr­ir­tæki greiða fyrir að vera með aðstöðu upp við flug­stöð­ina, en þau greiða rúm­lega 300 millj­ónir króna á ári til Isavia fyrir þá aðstöðu.

For­svars­menn Gray Line telja að skyndi­leg og mikil hækkun stefni við­skiptum fyr­ir­tæk­is­ins á svæð­inu í hættu „svo óbæt­an­legur skaði geti hlot­ist af“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár