Samkeppniseftirlitið rannsakar gjaldtöku Isavia

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hyggst rann­saka háa gjald­töku af hóp­ferða­bílum við flug­stöð­ina á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hyggst rann­saka háa gjald­töku af hóp­ferða­bílum við flug­stöð­ina á Kefla­vík­ur­flug­velli. Gray Line kærði áform Isavia um skipu­lag og fyr­ir­hug­aða gjald­töku á almennum bíla­stæðum fyrir hóp­ferða­bif­reiðir við flug­stöð­ina, þar sem þess var kraf­ist að eft­ir­litið gripi til íhlut­unar vegna þeirra sam­keppn­is­hamla sem fyr­ir­tækið taldi að fælist í fyr­ir­hug­aðri gjald­töku.

Gray Line fór fram á að eft­ir­litið taki ákvörðun til bráða­birgða þar sem stöðvuð yrði gild­is­taka fyr­ir­hug­aðra stæð­is­gjalda fyrir hóp­ferð­ar­fyr­ir­tæki sem og að Isavia verði gert óheim­ilt að mis­muna akst­urs­að­ilum eftir eign­ar­haldi og að allir sem sinni hóp­ferð­arakstri í sam­keppni til og frá flug­stöð­inni greiði sama gjald. Fyr­ir­tækið krafð­ist þess einnig að eft­ir­litið beitti sekt­ar­úr­ræðum sam­kvæmt sam­keppn­is­lögum leiði rann­sókn í ljós að Isavia hafi gerst brot­legt við lögin.

Í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til Isavia segir að ljóst sé af frummati eft­ir­lit­is­ins að fyr­ir­huguð gjald­taka muni að óbreyttu leiða til mik­illar verð­hækk­unar á far­þega­flutn­ingum til og frá flug­vell­inum. Þegar af þeirri ástæðu og vegna for­sögu máls­ins hafi Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákveðið að taka kæru Gray Line til með­ferðar og hefja rann­sókn.

Isavia fær frest til 16. febr­úar til að skýra sjón­ar­mið sín og skila upp­lýs­ingum um gjald­töku­á­formin, en gjald­takan á að hefj­ast 1. mars. Í bréf­inu segir enn­fremur að fyrir liggi að atvinnu­starf­semi tengd flug­stöð­inni geti haft veru­lega sér­stöðu í sam­keppn­is­legu til­liti, sem geti falið í sér rök fyrir hrað­ari máls­með­ferð heldur en ella. Óskað er eftir sjón­ar­miðum Isavia til bráða­birgða­á­kvörð­unar og spurt hvort til álita komi af hálfu rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins að fresta gjald­tök­unni á meðan rann­sóknin stendur yfir.

Þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn til­kynnti Isavia að gjalda­taka myndi hefj­ast þann 1. mars af hóp­ferða­bílum sem sækja far­þega á svoköll­uðum fjar­stæðum við flug­stöð­ina á Kefla­vík­ur­flug­velli. Gjaldið á að vera 7.900 krónur fyrir minni bíla og 19.900 fyrir stærri bíla. Gray Line kærði þessi áform til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á þeim for­sendum að fyr­ir­huguð gjald­taka væri marg­falt hærri en eðli­legt gæti talist og stríddi alvar­lega gegn hags­munum neyt­enda. Benti Gray Line á að við margrar alþjóð­legar flug­stöðvar í nágranna­lönd­unum væri ýmist ekk­ert gjald tekið af þessum hag­kvæma og umhverf­is­væna ferða­máta, eða miklu lægra en Isavia áform­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár